Vísbending - 18.02.2016, Síða 1
ÍSBENDING
Vikurit um viðskipti og efnahagsmdl
18. febrúar 2016
6. tölublað
34. árgangur
ISSN 1021-8483
Hvernig spörum við?
Mynd 1: Hlutabréfavísitalan á
íslandi 1998-2008
oooo
»000
»000
rsoo
7000
6500
6000
5300
5000
«500
«000
»500
3000
2500
2000
1500
1000
500
Mynd 2: Hlutabréfavísitalan á
íslandi 2009-2016
Til eru ýmiss konar ráð um það
hvernig menn eigi að spara. Ein-
hver gömul gyðingaspeki er sögð
ganga út á það að menn eigi þriðjung í
hlutabréfum, þriðjung í auðseljanleg-
um verðbréfum og þriðjung í fasteign-
um. Almennt telja menn þó að rétt
sé að minnka áhættuna eftir því sem
þeir verða eldri. Ungt fólk getur tekið
meira áhættu en það eldra vegna þess
að það á lengra líf í vændum og getur
hrist af sér áföllin. Þess vegna vakti það
athygli þegar nýlega birtist í New York
Times grein sem hvatti menn til þess
að leggja allan sparnað sinn í hlutabréf.
Hvað skilar mestu?
Sá sem sparar vill fyrst og fremst ná fram
góðri ávöxtun með lágmarksáhættu.
Nánast allar kannanir sýna að hlutabréf
gefa betri ávöxtun yfxr langt tímabil en
önnur sparnaðarform. David A. Levine
kallar fyrrnefnda grein: How Much of
Your Nest Egg to Put Into Stocks? All of
It. Hann sýnir fram á að yfir 12 mánaða
tímabil gefi hlutabréf betur af sér en
skuldabréf í 60-70% tilvika. Á fimm ára
tímabili er hlutfallið 71-76%. Ef tek-
in eru 20 ár er það orðið nánast öruggt
að hlutabréf gefa best af sér miðað við
reynsluna.
Haft er eftir Nóbelsverðlaunahafanum
Paul Samuelson, sem skrifaði vinsæla
byrjendabók í hagfræði, að gallinn við
reynsluna væri að við hefðum bara eina
sögu að styðjast við. Það er auðvitað rétt
svo langt sem það nær, en það eru hluta-
bréfamarkaðir í mörgum löndum. Með-
al annars á Islandi. Þar hrundi markað-
urinn bókstaflega eins og mynd 1 sýnir.
Eftir ævintýralega ávöxtun í fjögur ár í
röð kom skelfilegt hrun sem þurrkaði út
alla ávöxtun. Skýringarnar eru margar,
en meðal þeirra eru markaðsmisnotkun
og ævintýramennska af áður óþekktu
tagi. Allt var lagt í ævintýramennskuna,
en ekkert í stöðugleikann. Byggður var
pýramídi sem stóð á haus og varð stöð-
ugt valtari þar til hann hlaut að hrynja.
Allir sjá að ekki var skynsamlegt fyrir
nokkurn mann að eiga allt sitt í íslensk-
um hlutabréfum á þessum tíma. Mark-
aðurinn var allt of lítill og tengdur inn-
byrðis, jafnvel þó að ekki hefði komið til
allt það hring eignarhald sem síðar hefur
komið í Ijós.
framh. á bls. 2
1 Margar kenningar eru uppi um það hvernig best sé að fjárfesta miðað við aldur og áhættufíkn. Þó að hlutabréf kunni £| að gefa besta ávöxtun til lengdar er ekki ráðlegt að eiga allt undir þeim. Skattasniðganga veldur yj því að fyrirtæki færa sig þangað sem þau þurfa minnst að borga. A Ein ástæðan fýrir því hve *J lítill árangur næst í þjóðlífinu er að Islendingar ráðast á afleiðingar, ekki orsakir.
VÍSBENDING • 6.TB1. 2016 1