Vísbending


Vísbending - 07.03.2016, Blaðsíða 4

Vísbending - 07.03.2016, Blaðsíða 4
Aðrir sálmar VíSBENDING _________ Sjö spora endurhæfing fyrir stjórnmálamenn eir sem villast af réttri leið þurfa að finna hana aftur, en það er ekki alltaf svo auðvelt. Aukakílóin fara ekki öll á einum degi og alkóhólistinn þarf að taka einn dag í einu. Margir fylgja svo- nefndu tólf spora kerfi. Blinder sem vitnað er til á forsíðu gefur villuráfandi stjómmála- mönnum eftirfarandi ráð. Margir töldu að í kjölfar kreppunnar myndi koma fram ný tegund stjórnmálamanna. Menn sem ein- beittu sér að lausnum á vanda samfélagsins en ekki eigin pólitískum markmiðum og karpi um aukaatriði. Vandaðir stjórnarhætt- ir yrðu settir í forgang. Raunin hefur verið önnur. Lýðskrum hefur aldrei verið meira og kjósendur fagna loddurum með einfald- ar lausnir eins Trump hinum bandaríska, þó að einnig megi finna nærtækari dæmi. Skrefin sjö Eins einkennilegt og það virðist hafa fáir Is- lendingar sem voru í hringiðu atburðanna árið 2008 reynt að skrifa um lærdóminn af hruninu. Sumir hafa lýst sinni upplifun, sem auðvitað er mikils virði og aðrir eyða miklum krafti í að skýra að allt hafi verið öðrum að kenna. Mest væri gagnið að því að menn litu í eigin barm í ljósi reynslunnar og hugsuðu hvað hefði verið hægt að gera betur. Meðan beðið er eftir slíkri bók verða ráð Blinders að duga í bili: 1. Ekki reyna að gera of margt í einu Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tókst á við mörg stórverkefni samtímis: Umsókn- ina að Evrópusambandinu, breytingar á stjórnarskránni og umbyltingu skattkerfis- ins. Oll verkefnin biðu skipbrot vegna þess að um þau var ekki víðtæk sátt og ekki var reynt að skapa slíka sátt. Það var ekki einu sinni samstaða innan stjórnarliðsins, hvað þá að reynt væri að ná til stjórnarandstöð- unnar. 2. Utskýrið vandann fyrir almenningi Ef menn æda að fara í grundvallar- breytingar er nauðsynlegt að hafa sterkan talsmann. Jóhanna Sigurðardóttir var ef- laust eini mögulegi forsætisráðherrann fyr- ir vinstri flokkana á þessum tíma, en hún hafði ekki hæfileika til þess að vera leiðtogi sem skýrði hvert hún vildi stefna og fylkti fólki að baki sér. 3. Notið mál sem almenningur skilur Stjórnmálamenn með mikla reynslu segja frá því að um leið og einhver nefnir hag- vöxt, framleiðni eða raungengi sé eins og þoka setjist milli ræðumanns og áheyrenda. Þess vegna er það sem menn eins ogTrump og Bill Clinton ná vinsældum. Þeir tala mál sem fólk skilur og setja sínar skoðanir fram á skiljanlegan hátt. 4. Endurtakið skref 2 og 3 Róm var ekki byggð á einum degi og það er stuðningur almennings ekki heldur. Þess vegna þurfa menn að flytja fagnaðarerindið aftur og aftur, kannski með nýrri og nýrri aðferð hverju sinni. Góð vísa er aldrei of oft kveðin. 5. Stillið væntingum í hóf Þessu ráði er erfitt að fylgja. Almenningur skilur ekki hvers vegna hann á að fá smá- vægilega hækkun launa meðan stjórnendur og eigendur fyrirtækja fá fúlgur fjár. 6. Fylgist með viðhorfi almennings, for- dómum og misskilningi Menn eiga ekki að elta almenningsálitið, en þeir þurfa samt að fylgjast með því. Það er ekki létt verk að æda að breyta lífs- viðhorfi fólks, en það getur þó gerst þegar meiriháttar viðburðir eins og hrunið verða. Þeir stjórnmálamenn sem skilja það verða ofan á, hvort sem það verður almenningi svo til góðs eða ills. Heimsstyrjöldin fyrri leiddi til sjötíu ára kommúnisma í Sovét- ríkjunum og kreppan til uppgangs nasista í Þýskalandi. 7. Setjið sanngimi í algeran forgang Ef það er eitthvað sem almenningur þolir ekki þá er það að mismunað sé milli Jóns og séra Jóns. Leiðin til þess að komast hjá þessu er að ástunda vandaða stjórn- sýslu, gagnsæi og jafnræði. Ekkert af þessu tryggir að menn verði ekki fyrir gagnrýni, en ef almenningur hefur tilfinningu fyrir því allir séu meðhöndlaðir eins dregur það úr tortryggni. Ekkert er stjórnmálamanni jafnmikils virði og traust. Menn eru lengi að ávinna sér það og fljótir að tapa því aft- ur. Og þá þurfa þeir að byrja á nýjan leik, sem vel að merkja tekst oft, bæði vegna þess að fólk er gleymið og líka vegna þess að al- menningur á auðvelt með að fyrirgefa þeim sem iðrast og sýnir yfirbót. Margir spyrja: Eyddum við hruninu til einskis? Þurfti almenningur víða um lönd að fara gegnum ótrúlegar hremmingar án þess að af því væri dreginn nokkur lær- dómur? Hjá stjórnmálamönnum gildir það sama og alkóhólistanum: Enginn nær ár- angri fyrir þá. Og þó. Það er hægt að skipta um stjórnmálamenn. Q Aftur á kreik Nýlega kom út á íslensku þýðing á bók eftir þýskan höfund um sjálfan Adolf Hitler. I kynningu útgefanda segir: ,Adolf Hider vaknar einn góðan veður- dag árið 2011 í almenningsgarði í Berlín eftir að hafa sofið frá árinu 1945. Hann veit ekkert hvað hefur gerst í millitíðinni en hyggst halda sínu striki hvað sem á dynur. Allir sem á vegi hans verða telja að hér sé snjall leikari á ferð og hann vek- ur hvarvetna hrifningu fyrir sannfærandi gervi og ótrúlega innlifun í hlutverk For- ingjans. Fljótlega kemst hann í kynni við framleiðendur skemmtiþáttar í sjónvarp- inu og fær þar tækifæri til að láta Ijós sitt skína. Hann slær í gegn og myndskeið með ræðuhöldum hans slá öll áhorfsmet á YouTube. Leiðin virðist greið á ný ...” Bergþóra Gísladóttir skrifar nýlega um söguhetjuna á blog.is: „Hann kann ekkert á þennan nýja heim og saknar samstarfsmanna sinna úr fyrra lífi. En Hitler er eldklár og nær ótrúlega fljótt að átta sig nægilega vel á aðstæðum til þess að ná völdum á ný. Hitler hefur ekkert breyst. Okkur gefst tækifæri til að skoða heiminn, okkur sjálf frá sjónarhorni Hiders. Mér fannst þetta satt að segja afar óþægilegt og það hefur eflaust verið enn erfiðara fyrir Þjóðverja sjálfa, því að þeim beinist gagnrýnin. Bókin er fyndin á ein- hvern vandræðalegan hátt, maður veit aldrei almennilega hvort maður hafi leyfi til að hlæja. ... Það er afar óþægileg til- finning þegar maður stendur sig að því að vera sammála Hitler í gagnrýni hans á nútímann. Réttlætingar hans á gjörð- um koma illa við mann, ónotaleg fyndni. Verst þótti mér þó þegar mér fannst Hitler vera að tala beint inn í íslenska orðræðu.“ Hvað ef á íslandi kæmi út bók um Hriflu-Jónas endurborinn: „Stífan, húmorslausan, smámunasaman ... yfir- þyrmandi og orðljótan ...“ svo vitnað sé í gagnrýni Sunday Times á bókina um Hitler. Jónas væri kominn aftur í samtím- ann og berðist fyrir sérhagsmunum sveit- anna, talaði niður til borgarbúa og vildi endurreisa þjóðlega list og arkitektúr. Gerði lítið úr andstæðingum sínum og svaraði allri gagnrýni með skætingi. En kannski þarf ekki slíka bók, við leysum málið öðruvísi. bj Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík. Sími: 512 7575. Netfang: benedikt@heimur.is. Prentun: Heimur. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda. 4 VÍSBENDING • 9.TBL. 2016

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.