Vísbending


Vísbending - 21.03.2016, Page 3

Vísbending - 21.03.2016, Page 3
V Er Island Hvað segja tölurnar? Tafla: Útgjöld til samgæða í nokkrum löndum 2006 Land Almanna- þjónusta Landvamir Allsherjar- regla Samtals Svíþjóð 7,7 1,7 1,3 10,7 Danmörk 6,0 1,6 1,0 8,6 ísland 4,8 0,1 1,4 6,3 Bretland 4,9 4,9 2,6 10,0 Bandaríkin 4,8 4,8 2,1 11,2 Heimild: OECD. ■ Hannes H. Gissurarson prófessor Stundum hefur verið efast um, að ísland sé nógu stórt til að vera sjálf- stætt ríki. Til dæmis gerði danski rithöfundurinn Georg Brandes 1906 gys að sjálfstæðistilburðum Islendinga og breski sagnfræðingurinn Alfred Cobban skrifaði 1944, að ísland þyrfti skjól af voldugra ríki. Frambærilegustu röksemd- irnar fyrir því, að Island sé of lítið, setti bandaríski hagfræðingurinn Anne Sibert fram í grein í nettímaritinu Vox 10. ágúst 2009. Sumar þeirra eru prófanlegar. Dreifist fastur kostnaður á færri í smáríkjum? Ein röksemdin er, að talsverður fastur kostnaður sé af framleiðslu samgæða (en þau eru gæði, sem erfitt er eða ókleift að verðleggja á frjálsum markaði, til dæmis landvarnir og löggæsla), og í fjölmennum ríkjum dreifist sá kostnaður á marga, svo að rekstur ríkisins sé þar hagkvæmari. Við fyrstu sýn virðist eitthvað vera til í þessu. I íslensku utanríkisþjónustunni starfa til dæmis um 250 manns, sem er 0,0008% þjóðarinnar, en í hinni bresku um 14 þús- und, sem er 0,0002% Breta. Utanríkis- þjónustan íslenska er með öðrum orðum fjórum sinnum stærri á mann en hin breska. Þessi kostnaður er þó óverulegur. Þótt lítið sé, hefur Island efni á sinni utanríkisþjónustu. Kenning Siberts um samgæði í smáríkjum virðist hafa takmarkað gildi. Efnahags- og framfarastofnunin í París safnar tölum um útgjöld til almanna- þjónustu, sem er lagasetning og fram- kvæmdastjórn ríkisins, utanríkisþjónusta og lánasýsla. Hún á líka í fórum sínum tölur um kostnað af landvörnum og lög- gæslu í víðasta skilningi. I töflunni má sjá útgjöld til þessara samgæða árið 2006 (en þær voru væntanlega nýjustu tölur, sem Sibert gat útvegað sér) sem hlutfall af vergri landsframleiðslu í fimm löndum. Þessar tölur eru fróðlegar. Minni ríkin eyddu miklu minna á mann í hernað en hin stærri. Smáríki eru oftast friðsamari en stórveldi, sem leggja út í margvísleg hernaðarævintýri. Það kostar líka minna á mann að halda uppi allsherjarreglu í minni ríkjunum. Ein skýring á því er, að litlar þjóðir eru oft samleitari en stórar og því friðsælli. Miklu færri morð á mann eru til dæmis framin á íslandi en í mörg- um stærri ríkjum, og tiltölulega færri sitja í fangelsum. Sú röksemd Siberts virðist því tvíeggjuð, að smæðin kosti sitt. Verið getur, að stærðin kosti meira. Skattlagning og samkeppni í smáríkjum Onnur röksemd Siberts er, að smáríki grípi oft til óhagkvæmra skatta eins og tolla og vörugjalda, því að fastur kostn- aður af þeim sé lítill og breytilegur mikill öfugt við tekjuskatt, sem sé þó hagkvæm- ari. En þetta gildir að minnsta kosti ekki um fsland. Árin 2003-4 var tekjuskattur 41,5% skatttekna á íslandi, en 36,5% í Bretlandi og 43,4% í Bandaríkjunum. Þriðja röksemd Siberts er, að lítil sem engin samkeppni í framleiðslu gæða utan markaðarins (til dæmis milli orkufyrir- tækja, háskóla og sjúkrahúsa) fái þrifist með litlum þjóðum. Þetta er ekki fráleitt. En smáþjóðir geta auðvitað leitað um sér- hæfð verkefni til stærri þjóða, til dæmis um flókna læknismeðferð. Álitamál er líka, hvort háskólar bæti velsæld. Lúxem- borg og Singapúr eru ekki auðug ríki vegna háskóla sinna. Og lítil hagkerfi geta tengst stærri með bættri tækni, til dæmis í miðlun orku. Þessi röksemd er gild, en ekki mikilvæg. „Þetta reddast“ Fjórða röksemd Siberts er, að smáríki séu viðkvæmari fyrir náttúruhamförum en stór ríki. Islendingar þekkja það af eigin raun. Hér hafa orðið eldgos og jarðskjálft- ar, hafís lokað höfnum, kuldaskeið eytt gróðri. Þessi röksemd á hins vegar frekar við um lítil lönd en fámennar þjóðir. Hollendingar myndu allir gjalda þess, ef sjór flæddi inn í landið. Eldgos á Islandi hafa hins vegar sjaldnast áhrif nema í ein- um landshluta, af því að landið er fremur stórt. Fimmta röksemd Siberts er, að hag- kerfi lítilla þjóða séu óstöðugri en stórra, auk þess sem óvíst sé, að hagsæld sé þar meiri. Það er rétt, að sum lítil hagkerfi eru óstöðug, þar á meðal hið íslenska. En Hannes Finnsson biskup benti á það þegar árið 1796, að Islendingar eru til- tölulega fljótir að ná sér eftir áföll. Þetta á enn við. Hagkerfið er gagnsætt og sveigj- anlegt. Þegar Islendingar segja: „Þetta reddast,“ eru þeir að lýsa veruleika, sem þeir þekkja. Opin hagkerfi hagkvæm Hitt er hæpnara, sem Sibert kastar fram, að hagsæld sé ekki meiri í litlum hag- kerfum en stórum. Fimm ríkustu hag- kerfi heims eru í Sviss, Noregi, Lúxem- borg, Singapúr og Bandaríkjunum. I fjórum þessara landa búa smáþjóðir, og Bandaríkin eru samband fimmtíu ríkja. Fimm fjölmennustu þjóðir heims búa í Kína, Indlandi, Bandaríkjunum, Brasilíu og Indónesíu. Þessar þjóðir eru allar fremur fátækar nema Bandaríkjamenn. Skýringin á því, að litlar þjóðir eru oft- ast efnaðri en stórar, er, að hagkerfi þeirra eru opnari. Þær reiða sig frekar á alþjóða- viðskipti. Þannig njóta þær góðs af þeirri alþjóðlegu verkaskiptingu, sem Adam Smith taldi helstu orsök auðlegðar þjóð- anna. Þessi er eflaust um leið skýringin á því, að smáríkjum hefur snarfjölgað síð- ustu sjötíu ár. Árið 1946 voru 76 sjálfstæð framh. á bls. 4 VÍSBENDING •ll.TBt. 2016 3

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.