Vísbending


Vísbending - 22.04.2016, Síða 2

Vísbending - 22.04.2016, Síða 2
VíSBENDING framh. afbls. 1 VIS næstu ár á eftir var talað um að ekki væri vitneskja um neinn atburð sem undir trygginguna myndi falla. A fundi lífeyrissjóðsins árið 2010 má segja að upp úr hafi soðið. Eftir að opn- að var fyrir fyrirspurnir úr sal spurði einn fundarmanna hvort sjóðnum væri heimilt að selja skuldatryggingar. Var því svarað til að svo væri, þar sem þær flokkuðust sem framseljanleg verðbréf. Deilurnar snerust ekki síst um það hvort um afleiðusamning hefði verið að ræða sem óheimilt hefði verið að kaupa. Stjórnin var svo sett af í septem- ber sama ár. Kröfur vegna skuldabréfanna á Glitni og Kaupþing voru seldar í nóvember árið 2012 á um 760 milljónir króna. Hér var um að ræða bréf sem keypt var á um 2.500 millj- ónir. I ag ist 2014 var fyrrverandi stjórn og framkvæmdastjóra stefnt, sem og VIS sem tryggingafélagi sjóðsins. í góðri trú Hinir stefndu, forráðamenn sjóðsins, gripu að sjálfsögðu til varna og töldu að um raun- verulegt skuldabréf hefði verið að ræða og því fallið undir leyfilegar fjárfestingar. Þeir segjast hafa byggt á vitneskju á þeim tíma sem ákvarðanirnar voru teknar, en ekki í ljósi þess hvernig atvik þróuðust. Ekki sé hægt að gera ríkari kröfur til stjórnenda einstaks lífeyrissjóðs um vitneskju en til stjórnvalda, lánshæfismatsfyrirtækja og upplýsinga í ársreikningum sem áritaðir séu af trúnaðarmönnum hluthafa og opinber- um sýslunarmönnum. Reikningsuppgjör Glimis og Kaupþings hafi gefið til kynna sterka stöðu. Opinber álagspróf Fjármálaeftirlitsins bentu til þess að bankarnir gætu staðist veruleg áföll og ráða- menn töldu stöðu þeirra sterka eins og álit Seðlabankans í maí 2008 hafi verið að fjár- málakerfið væri í meginatriðum traust. Jafn- framt hafi alþjóðleg lánshæfismatsfyrirtæki, sem eru óháðir og alþjóðlegir sérfræðingar í áhættumati, veitt bönkunum háar einkunn- ir. Var lánshæfismatseinkunn þeirra yfir meðallagi og sýndi takmarkaða áhættu. Þessu til viðbótar kom fram á þessum tíma að stjórnvöld höfðu fulla trú á rekstr- arhæfi bæði Glitnis og Kaupþings þar til yfir lauk. Stjórnvöld hafi litið á vanda Glitnis banka sem tímabundinn og ákveðið að kaupa 75% hlutafjár í bankanum þann 29. september 2008. Þar sem hlutafjárfjár- festing er mun áhættumeiri en lánveiting hefði slík ákvörðun ekki verið tekin ef stjórnvöld töldu líkur á „lánshæfisatburði“ framundan. Þá hafði Seðlabankinn einnig slíka trú á Kaupþingi banka að hann lánaði félaginu 500 milljónir evra þann 6. október 2008, en slíkt lán hefði ekki verið veitt ef Seðlabankinn taldi líkur á „lánshæfisat- burði“ framundan. Sjóðurinn vitnaði á móti til ummæla úr skýrslu úttektarnefndar Landssamtaka lífeyrissjóða um viðskiptin þar sem fram kom að nefndin teldi „mjög hæpið [...] fyrir lífeyrissjóði að fjárfesta yfirhöfuð í gerningum sem þessum, enda [hefðu] þeir í sér fólgið ákveðið veðmál um hvernig ákveðnum fyrinækjum sem eru utan skuld- bindingarinnar sjálfrar reiðir af.“ Einnig var vitnað til ummæla úr skýrslu nefndarinnar um að ,,[á]hættumat stjórnar Lífeyrissjóðs verkfræðinga sem samþykkti fjárfestinguna [yrði] að teljast mjög vafasamr, að minnsta kosti [ef] litið [væri] í baksýnisspegilinn.“ Um það var sem sé deilt hvort það sem augljóst er eftirá hafi verið jafnljósi begar ákvarðanirnar voru teknar. Niðurstaöa Af gögnum málsins má ráða að ein af helstu ástæðum þess að stjórnarmenn og fram- kvæmdastjóri réðust í gerð samningsins hafi verið væntingar þeirra um að sjóðurinn gæti hagnast á því að skuldatryggingarálag Kaupþings og Glitnis hækkaði ekki frekar. I fyrrnefndri fúndargerð fjárfestingarráðs 3. mars 2008 eru ummælin um að „krækja í skuldatryggingarálagið". I glærukynningu afleiðumiðlunar Landsbanka Islands hf. sem fram fór næsta dag og þar sem fram- kvæmdastjóra, fjármálastjóra og stjórnarfor- manni var kynntur sá kostur að fjárfesta í skuldabréfi svissneska bankans UBS sem byggt væri á skuldatryggingarálagi Glitnis og Kaupþings, kom einnig fram um fjár- festinguna að þar væri um að ræða skulda- bréf fyrir fjárfesta sem „trúa að skulda- tryggingarálag eigi ekki eftir að hækka mikið, eru tilbúnir að setja höfuðstólinn að veði og sækjast eftir mikilli ávöxtun." Dómsorð var að tjónið næmi 353 milljónum króna vegna fyrra bréfsins og 626 milljónum króna vegna þess seinna. Vegna þess að hámarksfjárhæð samkvæmt tryggingasamningnum væri 500 milljónir var ábyrgð VIS takmörkuð við þá fjárhæð. Eftir standa 126 milljónir króna sem eru ótryggð ábyrgð stjórnarmanna. Ofan á þessar fjárhæðir bætast dráttarvextir sem hækka fjárhæðina um 50%. Tekið var tillit til þess að sjóðurinn jók tjón sitt með illa tímasettri sölu krafna í slitabúin. Ábyrgð stjórnenda Fyrir einstaklinga eru 126 milljónir engin smáupphæð. Stjórnarmennirnir höfðu fengið samtals fjórar milljónir króna í laun árið 2008 og framkvæmdastjórinn var með 990 þúsund krónur á mánuði og voru meira en 250 starfsmenn fjármálafyrirtækja með hærri laun skv. tekjublaði Frjálsrar verslunar árið 2009. Ekki var því hægt að segja að stjórnendurnir, sem stefnt var, hafi verið hálaunamenn. Þeir höfðu engan fjár- hagslegan ávinning eða persónulega hags- muni af fjárfestingunni. Dómarinn ákvað að stjórnendurnir skyldu í sameiningu greiða 36 milljónir króna auk dráttarvaxta, þannig að heildar- fjárhæðin er yfir 50 milljónir króna eða meira en átta milljónir króna á hvern þeirra. í dómnum segir að síðari viðskiptin þann 29. september 2008 hafi ekki haft neitt annað hlutverk en að forða sjóðnum frá yfirvofandi fjártjóni vegna fyrri fjár- festingar í lánshæfistengdum skuldabréfum UBS, gegn því að leggja meira af fjármun- um sjóðsins undir um að ekki kæmi til gjaldþrots, greiðslufalls eða fjárhagslegrar endurskipulagningar Glitnis eða Kaup- þings. Einnig vakna spurningar um það hver hafi verið ábyrgð stjórnenda Seðlabankans sem með áformum sínum með yfirtöku Glitnis gáfú til kynna að bankanum væri við bjargandi. Abyrgð stjórnenda lá ekki í því að hafa ekki séð fyrir óorðna hluti heldur að taka ákvarðanir um fjárfestingar sem eru í trássi við settar lagareglur um fjárfestingar lífeyris- sjóða eins og raunin er í þessu máli. Skaðabótaábyrgðin nær hins vegar að mati dómsins eingöngu til þess tjóns sem með sanngirni má ædast til að stjórnar- menn og framkvæmdastjóri gátu séð fyrir á þeim tíma sem hún átti sér stað. Mat dómsins á ábyrgð stjórnarmann hefur greinilega verið huglæg. Stjórnar- menn lögðu engin gögn um fjárhag sinn fyrir dóminn. Hann gat því ekki vitað hvaða fjárhæðir yrðu of þungbært að greiða með tilliti til fjárhags þeirra. Niðurstaðan var að þau skyldu greiða fyrrnefndar 36 milljónir króna auk dráttarvaxta. Verði dómurinn staðfestur fyrir Hæsta- rétti sýnir hann hve geysileg áhætta getur fylgt því að setjast í stjórn eða taka við fram- kvæmdastjórn í félagi eða sjóði. Jafnframt ýtir hann undir það hve mikil ábyrgð fylgir slíkum störfum. Niðurstaðan hlýtur að vera sú að stjórnarmenn verði að verja miklum tíma í störf sín, undirbúa ákvarðanir vel og að sjálfsögðu að gæta þess að þær séu í samræmi við lög og reglur. Jafnframt sýnir dómurinn að laun stjórnarmanna og stjórn- enda sem bera slíka ábyrgð þurfa að vera mun hærri en víðast hvar hefúr verið og loks að stjómendatryggingar þurfa að vera nægilega háar til þess að þærgeti bætt tjón af einstökum ákvörðunum. u 2 VÍSBENDING • ÍS.TBL. 2016

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.