Vísbending - 22.04.2016, Síða 4
jramh. afbls. 3
rykfellur bara ofan í dimmum kjöllur-
um.
Helsti kosturinn við gullfót var að
hann takmarkaði svigrúm til peninga-
prentunar sem útilokaði óðaverðbólgu
vegna þess að einhver seðlabankastjórinn
missti sig við prentvélarnar. Annar kostur
og reyndar um leið galli var að gullfótur
stuðlaði að fastgengi gjaldmiðla. Gengið
fór einfaldlega eftir gullinnihaldi hverrar
myntar. Gullfætinum fylgdu hins vegar
ekki síður ýmsir aðrir gallar og á endan-
um var hann lagður af með öllu. Richard
M. Nixon Bandaríkjaforseti á heiðurinn
af því að taka síðustu myntina af gullfæti.
Hans er þo fremur minnst fyrir annað.
Rafræni námugröfturinn á sömuleið-
is að korna .i veg fyrir að það sé hægt að
búa til órakmarkað magn af tilteknum
rafeyri fynr 'ralítið og grafa þannig und-
an verðmætí hans. Það er út af fyrir sig
skynsamlegr en veitir þó mjög takmark-
aða tryggingu fyrir verðgildi rafeyris.
Óstööugleiki
Ostöðugt verðgildi er einmitt einn helsti
Akkilesarhæll rafeyris. Jafnvel þótt hægt
sé að stilla framleiðslu á nýjum rafeyri
í hóf hefur framboðið og eftirspurnin á
markaði reynst afar sveiflukennt og því
um leið verðgildi rafeyris. Vandinn hér er
m.a. sá að vegna þess hve rafeyrir er lítið
notaður eru vörur og þjónusta almennt
ekki verðlagðar í rafeyri, langtímasamn-
ingar eru ekki gerðir í þessum myntum
og launþegar gera t.d. ekki kjarasamn-
inga í rafeyri. Á hverjum degi eru þús-
undir ef ekki tugþúsundir vara verðlagð-
ar í íslenskum krónum og í gildi eru alls
konar samningar í krónum. I myntum
sem notaðar eru á stærri svæðum á þetta
enn frekar við. Þessi staða tryggir ekki
verðgildi krónunnar en býr til ákveðna
tregðu svo að verðgildi hennar getur
mjög ólíklega t.d. breyst um mörg pró-
sent á einum degi. A.m.k. ekki ef miðað
er við kaupmátt hennar innanlands þar
sem hún er almennt notuð. Gengi krón-
unnar gagnvart öðrum myntum getur þó
breyst svo hratt, jafnvel fallið eða hækkað
um nokkur prósent á einum degi.
Það sama á við um rafeyri, jafnvel
enn frekar. Mynt eins og Bitcoin get-
ur sveiflast verulega á stuttum tíma,
mælt með gengi hennar gagnvart hefð-
bundnum gjaldmiðlum. Þannig eru
sveiflur í gengi Bitcoin gagnvart Banda-
ríkjadal mun meiri en sveiflur gjaldmiðla
þróaðra ríkja gagnvart dalnum. Daglegar
sveiflur í gengi Bitcoin gagnvart dollar
eru um fimm sinnum meiri en sveiflur
Aörir sálmar
Á hausinn á sterum
í gengi evru, punds eða yens gagnvart
dollar. Þetta þýðir í raun að Bitcoin er
nánast ónothæfur gjaldmiðill nema sem
millistig í greiðslumiðlun sem byrjar og
endar í öðrum gjaldmiðlum á örstuttum
tíma. Það er mjög óskynsamlegt að gera
langtímasamninga í slíkri mynt eða taka
stöðu í henni nema sem lið í hreinni spá-
kaupmennsku. Þessi óstöðugleiki hamlar
mjög vaxtarmöguleikum rafeyris eins og
Bitcoin.
Seölabankar eiga næsta
leik
Það er þó ekki þar með sagt að öll nótt
sé úti. Það er vel hugsanlegt að annars
konar rafeyrir eigi eftir að gegna stóru
hlutverki í framtíðinni og nýta flesta
kosti þess rafeyris sem nú þekkist. Það
er nefnilega ekkert því til fyrirstöðu ið
seðlabankar gefi út rafeyri sem byggd
ur er á núverandi tilskipunarpeningum
og nýti m.a. grunnkeðjutækni til að
halda utan um hana. Það gæti gerbreytt
greiðslumiðlun um heim allan og gert
hana miklu hagkvæmari og öruggari en
nú. Rafeyrir seðlabanka kallar ekki á
neina sóun vegna námuvinnslu, hann er
einfaldlega búinn til með einföldum og
nánast kostnaðarlausum aðgerðum.
Englandsbanki hefur sýnt þessum
málum mikinn áhuga og ætlar að gefa
út eigin rafeyri, RSCoin sem byggir á
breska pundinu. Kínverski seðlabank-
inn hefur viðrað svipaðar hugmyndir.
Slíkur rafeyrir er líklega ekki mjög að
skapi þeirra sem hafa litið á myntir eins
og Bitcoin sem lið í því að sleppa und-
an oki og eftirliti ríkisvaldsins en það er
annað mál. Það væri kaldhæðni örlag-
anna ef frumkvöðlarnir í þróun og notk-
un rafeyris hafa á endanum bara rutt
brautina fyrir nýjar leiðir til að sýsla með
tilskipunarpeninga.
Gangi þessar hugmyndir eftir gætu
því ekki bara fylgt róttækar breytingar á
greiðslumiðlun. Áhrifin gætu líka orðið
mikil á innstæðukerfi og þar með inn-
lánsstofnanir og starfsemi seðlabanka.
Ein hugsanleg sviðsmynd er að í fram-
tíðinni verði laust fé einstaklinga og fyr-
irtækja að mestu rafeyrir sem stunduð
verða viðskipti með án nokkurs teljandi
kostnaðar og áhættu með snjallsímum
eða -úrum eða jafnvel einhverjum öðr-
um tæknilausnum. Grundvallartæknin
er öll til staðar og verður bara betri með
hverju árinu. Það eru í raun góðar líkur
á því að næstu ár verði meiri og örari
breytingar á fjármálakerfi heimsins vegna
tækninýjunga en sést hafa áratugum
saman. Q
ví hefur verið haldið fram með sterk-
um rökum að bónusar bankamanna
hafi verið meginástæðan fyrir bankahrun-
inu, ekki bara á Islandi heldur alls staðar
í heiminum. Árið 2008, hrunárið sjálft,
voru tæplega 50 starfsmenn íslenskra
fjármálafyrirtækja með milli fjórar og 36
milljónir króna í mánaðarlaun. Bankarn-
ir voru á hausnum og landið ein rjúkandi
rúst. Samt voru starfsmennirnir á launum
sem flestir íslendingar töldu himinhá.
Bónusarnir virkuðu þannig að menn voru
á sterum við að koma Islandi á kúpuna.
Nú eru Bandaríkjamenn loks að setja
reglur um að bónusgreiðslum banka-
manna eigi að dreifa á mörg ár þangað til
komið sé í ljós hvert virði viðskiptanna
sem að baki bónusunum liggja sé raun-
verulega. Jafnframt eru komin ákvæði um
að endurkrefja megi um fjárhæðir sem
hafi reynst „illa fengnar“ í einhverjum
skilningi.
Margir kunna að spyrja hvers vegna
þetta hafi ekki löngu verið gert. Svarið er
annars vegar að kerfið er þungt í vöfum
og hins vegar að margir bankar hafa þegar
sett slíkar reglur að eigin frumkvæði.
Loks er þess að geta að enginn vildi verða
fyrstur til þess að takmarka bónusana í
samkeppnisumhverfi þar sem bestu starfs-
mennirnir gátu fært sig til annarra sem
ekki fylgdu slíkum varúðarreglum.
Fjármálafyrirtæki kvarta enn yfir því að
þau fái ekki að greiða þá bónusa sem þurfi
til þess að halda starfsmönnum í vinnu
hér á landi. Þetta eru vissulega sterk rök,
ekki síst í ljósi þess hve mikil samkeppni
var á alþjóðamörkuðum um þá afburða-
menn sem misstu vinnuna í hruninu.
Sýndarveruleiki
Forsetinn heldur áfram að skýra fyrir
heiminum hve stórkosdegir Islendingar
séu. Á EVE Fanfest sagði hann: „Þakka
ykkur kærlega, þið sem komuð alla leið til
Islands erlendis frá til að vera með okkur.
Þið gerið ykkur kannski ekki grein fyrir
því hversu kraftmikil heimsókn ykkar er,“
sagði Ólafúr. Hann sagði ævintýri CCP
hafa breytt því hvernig Islendingar hugsa
að vissu leyti, áður höfðu íslendingar að-
eins hugsað um sig í samhengi landsins en
með tilkomu CCP hefðu íslendingar farið
að segja sögur fyrir allan heiminn."
You airítseen nothingyet! bj
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík.
Sími: 512 7575.
Netfang: benedikt@heimur.is.
Prentun: Heimur. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita
án leyfis útgefanda.
4 VÍSBENDINC • IS.TBL. 2016