Vísbending


Vísbending - 17.05.2016, Qupperneq 4

Vísbending - 17.05.2016, Qupperneq 4
Aórir sálmar framh. afbls. 1 Ætla má að úrsögn leiði til frek- ari veikingar pundsins og mun því til skemmri tíma hafa áhrif á lífskjör al- mennings í Bretlandi, en á sama tíma batnar samkeppnishæfni breskra fyrir- tækja í framleiðslu og verslun. Verðbólga gæti þó farið upp fyrir 2,0% markmiðið ef gengið fellur miklu meira en orðið er. Bankastjórinn tekur í sama streng Mark Carney sem sfyrir seðlabankanum Bank ofEngland var á svipaðri línu. Hann taldi úrsögn leiða til verðbólgu, atvinnu- leysis og lækkandi gengis pundsins. Bank- inn myndi þá lenda í þeirri erftðu stöðu að þurfa að velja á milli lágra vaxta áfram til þ ess að örva hagvöxt eða hækka þá til þess að sporna við verðbólgu. Hærri vextir myndu svo leiða til þess að verð á húsnæði félli. Neikvæðar fréttir úr hagkerfmu væru líklegar til þess að hafa sömu áhrif. Neyt- endur héldu að sér höndum og eftirspurn minnkaði. Norman Lamont sem var fjármála- ráðherra í stjórn Johns Majors átaldi seðlabankastjórann. Hann ætti ekki að taka afstöðu og bæri mikla ábyrgð ef spá- dómur hans rættist. Lamont var einmitt fjármálaráðherra þegar Bretar gengu úr evrópska myntsambandinu og er nú í hópi þeirra sem telur að Bretar eigi gríðar- lega möguleika utan sambandsins. Þeir geti „staðið á eigin fótum eins og öll önn- ur nútímaleg, sjálfstæð ríki.“ Hann telur þá 27 ríki Evrópusambandsins væntanlega ekki með í hópi nútímalegra, sjálfstæðra ríkja. Úrsögn þýöir kannski I kosningabaráttu af þessu tagi hættir andstæðum fylkingum til þess að draga upp svarta mynd af ástandinu ef þeirra málsstaður tapar. Spurt er: Viltþú að Bret- land haldi áfram í Evrópusambandinu eða gangi úrþví? Líklegast er að verði þeir sem vilja vera inni ofan á þýði það að úrsögn verði tekin út af borðinu í tuttugu ár eða svo. Þau úrslit draga ótvírætt úr óvissu og eru líkleg til þess að ýta undir stöðugleika. Erfiðara er að segja til um hvaða áhrif úrsögn hefur. Líklegt er að til skemmri tíma verði áhrifin mikil. Cameron þarf þá væntanlega að fara frá og ekki ólíklegt að Boris Johnson taki við. Sjálfstæðiskröfur Skota gætu orðið háværari og atkvæða- greiðsla um aðskilnað frá Englandi yrði væntanlega endurtekin. Einhvern veginn þarf þó að ákveða hvert samband Breta við Evrópusam- bandið verður. Þeir munu eflaust ekki afnema allar reglugerðir og lög á einu bretti og hætt er við að mörgum þeim sem styðja úrsögn fmnist lítið til „frelsis- ins“ koma. Ekki er útilokað að Johnson taki upp nýjar aðildarviðræður þar sem frekari kröfur um undanþágur koma fram. Muni Bretar hins vegar endanlega slíta böndin við aðrar Evrópusambands- þjóðir er líklegt að áhrifin veri mest á fjármálaheiminn. Miðstöð fjármála í Evrópu mun færast frá London til Frankfurt og mörg fyrirtæki færa höfuð- stöðvar sínar væntanlega þangað. Þannig gæti úrsögnin orðið til þess að styrkja stöðu Þjóðverja innan sambandsins enn frekar. Q Reductio ad Hitlerum r forsíðu er vikið að Leo Strauss og orðum hans um að umræðan sé búin þegar einhver nefnir Hitler til sögunnar. Fleiri hafa tekið undir þessi orð og til er lögmál sem kennt er við lög- fræðinginn Mike Goodwin, sem segir það sama. Nú síðast var það Boris John- son sem beitti þessu útspili, en árið 1992 hafði Steingrímur Hermannsson, fyrrver- andi forsætisráðherra Islands, sagt, að nú væri þannig komið fyrir Evrópubanda- laginu, að Þýskaland hafi tekið þar öll völd og reyndar séu Þjóðverjar þar með að ná settu marki Hitlers. Hugmyndin með því að bera einhvern saman við Hitler er að þar með sé hægt að afgreiða andstæðinginn sem slíkt ill- menni að hans málstaður hljóti að vera slæmur. Einhvern tíma var það borið á Bjarna heitinn Benediktsson í Tímanum, málgagni Framsóknarflokksins, að hann hefði hrifist af Hitler meðan hann var við nám í Berlín. Pólitískur andstæðing- ur Bjarna sem hafði verið í Berlín á sama tíma og hann (upp úr 1930) sagði að þetta væri af og frá. Þvert á móti hefði Bjarni sagt að Hitler minnti sig á fram- sóknarmenn. Stundum hefur „rökfræðinni" verið beitt með undarlegri hætti, þannig að allt sem Hitler var sé vont. Til dæmis leiði setningin: Hitler var grænmetisœta til niðurstöðunnar: Grœnmetisœtur eru nasistar. Ö Langt út fyrir flokkslínur Nú er slagurinn um forsetaembættið hafinn: „Þegar er komið í ljós, að þessar forsetakosningar munu verða mjög persónulegar. Sá endalausi sögu- burður, gróusögur og rógburður um báða frambjóðendur, sem hófst þegar eftir framboðstilkynningu Y, sýnir glögg- lega, að forsetakosningar eru ásamt prestskosningum einhverjar ógeðfelld- ustu kosningar, sem háðar eru hér á landi. Islendingar virðast hafa sérstaka ánægju af ómerkilegum söguburði um þá, sem í sviðsljósinu eru hverju sinni, og forsetaefnin munu ekki fara varhluta af þeim sérstöku eiginleikum þjóðar sinn- ar. Fróðlegt verður að sjá, hvernig þeir standast þá eldraun. X er gamalreynd- ur stjórnmálamaður og kallar ekki allt ömmu sína í þessum efnum, en Y er hins vegar óvanur þessari tegund af umtali og þess vegna ekki ólíklegt, að honum þyki illt undir að sitja.“ „Meginspurningin er hins vegar sú, hvort X muni gera tilraun til þess að hefja þátttöku í stjórnmálum á ný, nái hann ekki kjöri forseta Islands. Staða X innan Sjálfstæðisflokksins hefur alltaf verið önnur en almennt hefur verið talið. ... Hugsanlegt er, að þessir stuðn- ingsmenn X mundu reiðubúnir til þess að fylgja honum út í nýja flokksstofnun og þar með kljúfa Sjálfstæðisflokkinn, ef hann tapaði forsetakosningunum. Það gæti gerzt, ef X teldi sig hafa aðstöðu til þess að varpa sökinni af ósigri sínum yfir á Sjálfstæðisflokkinn vegna þess, að hann hefði ekki hlotið nægan stuðning frá flokksbræðrum. A móti mælir svo það, að X er vafalaust orðinn þreyttur á stjórnmálavafstrinu og tregur til þess að leggja út í svo harða baráttu, sem ný flokksstofnun væri. En í þessum efnum getur raunverulega allt gerzt og varlegast að spá sem fæstu. Kjósendur eiga um að velja tvo hæfa menn til forsetastarfsins. Annar er óskaddaður af áratuga þátttöku í stjórnmálabaráttu, en skortir reynslu og þekkingu í þeim efnum. Hinn er hertur í eldi þriggja áratuga stjórnmálaferils og hefur víðtæka þekkingu og reynslu í þeim efnum, en hefur jafnframt eignazt marga óvini á þeirri braut. Hvor á frekar að verða forseti?“ Ur Frjálsri verslun 3. tbl. 1968. X = Gunnar, Y = Kristján. bj Ritstjóri og ábyrgðarmaðun Benedikt Jóhannesson Ctgcfandi: Heimurhf., Borgartúni 23,105 Rvík. Sími: 512 7575. Netfáng: benedikt@heimur.is. Prentun: Heimur. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefánda. 4 VÍSBENDING • 17.TBL. 2016

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.