Vísbending


Vísbending - 07.07.2016, Qupperneq 1

Vísbending - 07.07.2016, Qupperneq 1
ÍSBENDING yikurit um viðskipti og efnahagsmál 7 . júlí 2016 24 . tölublað 34. árgangur ISSN 1021-8483 Hvers vegna vilja Bretar ganga úr Evrópusambandinu? £ Gylfi Zoega hagfræðingur Þann 23. júní ákvað meirihluti breskra kjósenda í þjóðar- atkvæðagreiðslu að Bretland skuli segja sig úr Evrópusambandinu. I kjölfar atkvæðagreiðslunnar hefur gengi pundsins fallið og það ekki verið verðminna síðan um miðjan níunda áratuginn, verð hlutabréfa í bönkum og fasteignafélögum hefur lækkað mikið, pólitísk sundrung orðið og mikil óvissa virðist vera um framtíðarstefnu stjórnvalda. Bretland gekk upphaflega í Evrópu- bandalagið, eins og það hét þá, árið 1973 eftir að hafa verið neitað um inngöngu árum saman af de Gaulle, forseta Frakk- lands.1 í Evrópusambandinu hefur Bret- land á margan hátt haft aðrar áherslur en meginlandslöndin; viljað frjáls viðskipti en verið á móti pólitískum samruna, ekki tekið þátt í Schengen-samstarfinu, ekki viljað taka upp evru sem gjaldmiðil og ekki skrifað undir mannréttindasáttmál- ann sem var hluti af Lissabon-samkomu- laginu, svo nokkur dæmi séu nefnd. En Bretland hefur haft áhrif á stefnu sam- bandsins, einkum stofnun innri mark- aðarins sem hefur aukið samkeppni á vöru- og þjónustumarkaði. Andstaða við aðild hefur hins vegar aukist síðustu tvo áratugi í Bretlandi, einkum innan Ihaldsflokksins, sem hafði lengst af ver- ið samhuga um gagnsemi aðildar. í þeim tilgangi að leysa hnút í flokkstarfinu og sigra í kosningum árið 2015 ákvað Cameron forsætisráðherra að efna til þjóðaratkvæðis, að því er virðist í þeirri von að meirihluti kjósenda vildi vera áfram í Evrópusambandinu og málið væri þá úr sögunni. En útkoman varð önnur og Cameron sagði af sér embætti í kjöl- farið. En af hverju greiddu Bretar atkvæði Mynd 1. Hagrænar stærðir og hlutfall kjósenda sem vill yfirgefa Evrópusambandið á þennan hátt? Kosninganiðurstöður Lítum fyrst á niðurstöður eftir landshlutum í töflu 1. Meirihluti íbúa Lundúna vildi vera áfram í sambandinu (72%) og einnig góður meirihluti í Skotlandi og á Norður-írlandi. I Wales var mjótt á mununum en meirihluti var þar fyrir úrsögn. En það var í Englandi, fyrir utan London og nágrenni, sem úrslitin réðust. Meirihlutinn vildi ganga úr sambandinu í flestum héruðum Englands með fáum undantekningum, einkum í nágrenni höfuðborgarinnar.2 Það er athyglisvert að þau héruð þar sem stærstur meirihluti var fyrir því að fara úr Evrópusambandinu voru þau héruð sem blómstruðu í iðnbyltingu 19. aldar. Þannig vildu 65% íbúa Lincolnshire yfirgefa sambandið en þar var mikill iðnaður á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar. Hið sama á við Yorkshire en þar er iðnaðarborgin Sheffield; í Shropshire er gljúfur sem er tákn iðnbyltingarinnar (Ironbridge Gorge) og borgin Stoke sem var miðstöð kolanáms og stáliðnaðar. En í Suður-Englandi og London þar sem þjónustuhagkerfið hefur eflst síðustu áratugi var annað uppi á teningnum, 72% kjósenda í London vildu vera áfram í sambandinu, 56% í úthverfum London og einnig var meirihluti fyrir því að vera áfram í sambandinu í héruðunum Surrey og Sussex fyrir sunnan borgina. Hvað útskýrir dreifingu atkvæða? Að minnsta kosti tvenns konar ástæður gætu legið að baki ákvörðun um að segja skilið við Evrópusambandið og útskýrt af hverju andstaða við aðild var meiri í Englandi utan London en annars staðar. I fyrsta lagi gætu efnahagsaðstæður á hverju svæði kallað á slíka ákvörðun — atvinnuleysi og mikill fjöldi innflytjenda — og í öðru lagi gæti afstaða fólks til framh á bls. 2 1 Gylfi Zoega hefur ^ I ljós kemur að \ ^ Þrátt fyrir að margt gangi vel ■ A Sagan sýnir að íslendingum J. greint hvernig Brexit :, j fjölmargir lýðfræðilegir : y J í efnahagslífinu um þessar j' Ý fleytir ekki mjög hratt í atkvæðagreiðslan fór ■ þættir skýra úrslitin í : mundir kraumar óánægja frjálsræðisátt og vandamálin sem fór. kosningabaráttunni. I undir. : leysast hægt. VÍSBENDING • 14. TBl. 2016 1

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.