Vísbending


Vísbending - 12.10.2016, Blaðsíða 3

Vísbending - 12.10.2016, Blaðsíða 3
Utflutningur og ÍSBENDING auðlindir Helga Kristjánsdóttir hagfrœðingur Arið 2011 var Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn (IMF) þátttakandi í ráð- stefnu hér á landi, þar sem verið var að ræða um leið Islands út úr kreppunni. A ráðstefnunni var Paul Krugman, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði meðal ræðu- manna. Fram kom m.a. í ræðu Krugman að takmörk væru fyrir því hve hratt og mikið væri hægt að auka framleiðslu í sjávarútvegi og stóriðju, en þessar greinar standa sem kunnugt er að baki mikils hluta útflutnings. Astæðan fyrir takmörkum á hraðri fram- leiðsluaukningu er sú að vöxtur sjávarútvegs og stóriðju er háður annmörkum (e. physical œnstraints) í þeim skilningi að takmörk eru fyrir því hversu hratt er hægt að auka sókn í auðlindir sjávar og einnig eru takmörk á því hve hratt og mikið er hægt að auka afköst stóriðju, við framleiðslu áls og kísilmálma, þar sem virkjanakostum fækkar. Þannig get- ur framleiðsluaukning verið takmörkum háð vegna takmarkana á sókn í náttúruauðlindir. Aukning framleiðni fremur en aukning framleiðslu- magns Framleiðsluaukning er hins vegar ekki það sama og framleiðniaukning, því ber að halda til haga. Með öðrum orðum, þá var ljóst eftir efnahagshrunið að í sjávarútvegi var erfttt að auka veiddan afla mikið. Því er mikilvægt að huga frekar að aukningu aflaverðmæta, þar sem takmörk eru á magni landaðans afla með stýringu aflamagns. Krugman Krugman fékk Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 2008. KenningarKrugmansnúaað mynstri (e. trade patterns) viðskipta milli landa. Þá hefur framlag hans til haglandafræði (e. geographic econony) verið mikilvægt sem og framlag til gildi stærðarhagkvæmni (e. economics ofscale). Stærri hagkerfi treysta minna á milliríkjaviðskipti Stærðarhagkvæmni má skýra með því að þegar framleiðslueiningum íjölgar, þá kostar hver eining minna í framleiðslu. Þetta má tengja löndum þannig að stærri lönd kalla á meira framleiðslumagn, sem gefur færi á stærðarhagkvæmni í framleiðslu. Stærri hagkerfi hafa gjarnan fjölþættari framleiðslu Straumsvík innanlands og eru sjálfum sér nóg um flest. Smærri hagkerfi hafa frekar einhæfari fram- leiðslu og þurfa því að treysta meira á inn- flutning, þar sem þau ná ekki að vera sjálfum sér nóg (e. self-sufficient) í sama mæli. Smá hagkerfi treysta því almennt meira á alþjóða- viðskipti í formi innflutnings og útflutnings. Sem dæmi má nefna Bandaríkin og Island. Vegna þess hve stórt hagkerfi Bandaríkjanna er, þá em þau sjálfum sér nóg um flest, í þeim skilningi að þau framleiða megnið af þeim vörum og þjónustu sem þau þurfa á að halda. Þar má nefna allt frá framleiðslu á korni í Iowa, eða olíuvinnslu í Texas, til þró- unar hugbúnaðar í Silicon Valley í Kaliforníu fylki og framleiðslu flugvéla hjá Boeing í Seatde. Til samanburðar, þá treysti ísland í fyrstu mest á landbúnað og síðan sjávarútveg sem grunnstoð, síðan hafa aðrar greinar bæst við. Vegna þessa er eðlilegt að útflutningshlut- fall Islands sé hátt og það gildir jafnframt um önnur Norðurlönd sem einnig teljast smá í alþjóðlegum samanburði. Utflutningshlutfall þeirra er því að jafnaði hærra en hjá stærri ríkjum. Þá er ýmist átt við hlutfall útflutnings af vergri landsframleiðslu, eða samtölu inn- flutnings og útflutnings sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Því er fsland sem smátt hagkerfi gott dæmi um ríki sem treystir á utanríkisviðskipti í meira mæli en stærri ríki. Einstakar greinar útflutnings frá íslandi Sé litið á einstakar greinar útflutnings frá Islandi, þá skipta þrjár þeirra mestu máli. I fyrsta lagi ber að nefna sjávarútveg sem hefur verið mikilvægur Islandi frá fyrstu tíð byggð- ar, með fisk í ám og vötnum og á grunnslóð. I öðru lagi ber að nefna að ál og kísilmálmar sem framleiddir eru af stóriðju hér á landi, og skapa þjóðarbúinu mikil verðmæti í formi útflutnings. I þriðja lagi hefúr ferðaþjónusta náð mikilli fótfestu á undanförnum árum. Nú er svo komið að ferðaþjónustan hefúr náð því marki að hún skapar þjóðarbúinu verulegar gjaldeyristekjur - og ferðaþjónusta telst til útflutnings í þjóðhagsreikningum, vegna tekna sem koma inn í þjóðarbúið er- lendis frá með komu ferðamanna. Auðlindir bak við einstakar greinar útflutnings Flvaða auðlindir eru það sem standa að baki þessum þremur einstöku greinum útlflutnings sem áður voru nefndar þ.e. sjávarútvegi, raforku og ferðaþjónustu? Sú gjöfúla náttúmauðlind sem stendur á bak við útflutning í sjávarútvegi er að sjálfsögðu sjávarfangið. I öðru lagi er það raforkan sem byggir á virkjun vatnsfalla á leið frá hálendi til sjávar, sem og jarðvarmaorku sem nýtist til orkuframleiðslu og húshitunar. I þriðja lagi er það ferðaþjónustan sem byggir á þeim náttúruauðlindum sem erlendir ferðamenn sækja í, þar má nefna jökla landsins, fjöll og firnindi. Yfirburðir þjóða Yfirburðir þjóða í framleiðslu vöru geta ver- ið algerir (e. absolute advantage), eða hlut- fallslegir (e. comparative advantage) þar sem um náttúrulega yfirburði (e. natural advantage) getur verið að ræða vegna auð- linda. Þessa sér merki á Islandi ef litið er á útflutning sem byggir á auðlindum landsins í formi sjávarútvegs, stóriðju (með óbeinum útflutningi raforku), sem og óbeinum út- flutningi gegnum ferðaþjónustu. Rannsóknir hafa leitt í ljós að umfang og mynstur útflutnings frá íslandi ræðst af stærð þeirra landa sem Island á í viðskiptum við. Þannig er eftirspurn meiri frá stærri við- skiptalöndum okkar. Q VÍSBENDING 34.TBL. 2016 3

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.