Vísbending


Vísbending - 19.10.2016, Síða 2

Vísbending - 19.10.2016, Síða 2
SjlíSBENDING 17 milljörðum króna og jókst um liðlega 4 milljarða króna. Landsbankinn kom fast á hæla Arion banka með tæplega 49 milljarða króna hagnað, en þar af nemur tekjufærsla vegna virðisbreytingar útlána um 13,5 milljörðum króna samkvæmt afkomut- ilkynningu. Oreglulegir liðir virðast þannig hafa haft veruleg áhrif á afkomu Arion banka og Landsbankans á síðasta ári og slá bankastjórar beggja bankanna varnagla við því að afkoman muni batna áfram vegna óreglulegra liða. Islandsbanki var nokkur eftirbátur keppinauta sinna á viðskiptabankamarkaðnum með um 25 milljarða króna hagnað. Hagnaður Icelandair Group nam um 18, 5 milljörðum króna og næstum tvö- faldaðist á milli ára. Lækkandi eldsneytis- verð, aukin eftirpurn á Norður-Atlants- hafsmarkaðnum ásamt góðri afkomu í leigu- og fraktflugi skýrir einkum bætta afkomu samkvæmt afkomutilkynningu. Mikil arðsemi hjá lögfræði- stofum Hagnaður í krónum talið segir sem kunn- ugt er ekki alla söguna því hluthafar mæla ávinning sinn í hlutfalli við það eigið fé sem bundið er í fyrirtækjunum þ.e. í arð- semi eigin fjár. Ef þannig er litið á árang- ur síðasta árs hjá einstökum fyrirtækjum kemur í ljós að lögfræðistofan LOGOS skilaði bestum rekstrarárangri, en arðsemi eiginfjár nam 258%. Hagnaður ársins var um 1,3 milljarðar króna, en bókfært eigin fé stofunnar var hins vegar liðlega 500 milljónir króna. Fast á hæla LOGOS kemur Frumherji með 218% arðsemi og útgerðafélagið Jakob og Valgeir ehf. skilaði 150% arðsemi enda gekk vel hjá mörgum sjávarútvegsfyrirtækjum á síðasta ári. Ljóst er að lögfræðistofur skiluðu mjög góðri afkomu á síðasta ári. Þannig eru 5 lögfræðistofur á meðal 20 arðsömustu fyr- irtækjanna í íslensku atvinnulífi á síðasta ári þ.e. LOGOS, Landslög, BBA/Legal, Mörkin lögmenn og LEX. Hjá sérfræði- fyrirtækjum eins og lögfræðistofum þar sem starfandi lögfræðingar eru oft og tíðum einnig eigendur er tilhneiging til að greiða fremur út arð en að ávaxta fjár- munina í rekstrinum. Hagnaður er því oft mikill í hlutfalli við bókfært eigin fé þegar vel gengur. Marel stærsti vinnu- veitandinn Meðalstarfsmannafjöldi var um 3.900 hjá Marel á síðasta ári og fækkaði starfsmönn- um um 6% á árinu. Marel var því stærsti Tafla 1. Stærstu fyrirtæki landsins árið 2015 (m.kr.) Velta 2015 Velta 2014 Breyting milli ára Röð 2014 Icelandair Group 150.269 130.289 15% 1 Marel hf. 119.761 110.660 8% . 2 Arion banki hf. 117.954 87.915 34% 5 Landsbankinn hf. 101.457 90.610 12% 3 Samskip hf. 91.411 86.370 6% 7 Alcoa Fjarðaál sf. 90.164 87.146 3% 6 Islandsbanki hf. 87.269 80.689 8% 8 Actavis á Islandi 83.970 64.760 30% 13 Samherji hf. 83.784 78.390 7% 9 Icelandic Group hf. 78.475 89.858 -13% 4 Hagar hf. 78.366 77.143 2% 10 Norðurál Grundartangi ehf. 76.606 66.133 16% 12 Eimskipafélag fslands hf. 73.289 70.122 5% 11 Össur hf. 63.686 59.366 7% 14 Rio Tinto Alcan á íslandi hf. 60.107 57.864 4% 15 Landsvirkjun 55.568 51.294 8% 18 N1 hí 49.410 57.458 -14% 16 Primera Travel Group hf. 48.043 57.091 -16% 17 Dalsnes (Innnes o.fl.) 42.098 41.039 3% 20 Orkuveita Reykjavíkur 40.312 38.526 5% 21 Tafla 2. Mestur hagnaður árið 2015 (m.kr.) Hagnaður 2014 Breyting Hagnaður Arðsemi 2015 % af veltu eiginfjár Arion banki hf. 52.814 35.916 47% 45% 26% Landsbankinn hf. 48.879 39.526 24% 48% 18% íslandsbanki hf. 25.103 28.988 -13% 29% 12% Icelandair Group 18.488 9.352 98% 12% 31% Samherji hf. 17.350 13.674 27% 21% 21% Landsvirkjun 16.326 12.897 27% 29% 7% Eyrir Invest ehf. 14.798 -5.219 - 76% 42% Marel hf. 10.197 2.609 291% 9% 16% Reitir fasteignafélag hf. 9.434 2.458 284% 61% 20% Össur hf. 9.034 9.071 0% 14% 15% HB Grandi hf. 7.745 6.764 15% 24% 22% Síldarvinnslan hf. 7.616 7.230 5% 28% 23% Norðurál Grundartangi ehf. 7.365 11.762 -37% 10% 14% Reginn hf. 7.280 2.780 162% 79% 33% Eik fasteignafélag hf. 5.780 1.522 280% 57% 25% Landsnet hf. 5.009 4.693 7% 31% 12% Hagar hf. 4.498 4.795 -6% 6% 27% Félagsbústaðir hf. 4.051 4.713 -14% 128% 19% Isavia ohf. 3.818 2.724 40% 15% 19% Orkuveita Reykjavíkur 3.588 10.875 -67% 9% 3% 2 VÍSBENDING • 3S.TBL. 2016

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.