Vísbending - 19.10.2016, Qupperneq 3
vinnuveitandi landsins á síðasta ári. Sam-
kvæmt ársskýrslu fyrirtækisins mark-
aði árið 2015 lokin á endurskipulagn-
ingarferli (e. refocusing program) sem
miðaði að því að auka framleiðni innan
fyrirtækisins. Félagið er með starfsemi í 30
löndum og er með yfir 100 umboðs- og
dreifingaraðila víða um heim.
Landspítalinn var næst fjölmennasti
vinnustaður landsins, en þar störfuðu að
meðaltali um 3.800 starfsmenn á síðasta
ári. Starfsmannafjöldi hjá Landspítalanum
stóð því sem næst í stað á milli ára. Næst í
röðinni á lista yfir stærstu vinnuveitendur
landsins koma svo Icelandair Group með
um 3.400 starfsmenn og Össur með um
2.400 starfsmenn. Um 9% aukning varð
í starfsmannafjölda hjá báðum fyrirtækj-
unum á milli ára enda hefur atvinnuleysi
farið stöðugt lækkandi frá árinu 2010
og mældist 2,9% að jafnaði á mánuði á
síðasta ári samkvæmt tölum Vinnumála-
stofnunar. A árunum 2009 - 2010 var
atvinnuleysi um og yfir 8% hvort árið að
jafnaði á mánuði.
Sj ávarútvegur og
fjármálafyrirtæki greiða
hæstu launin
Fróðlegt er að skoða launagreiðslur eftir
fyrirtækjum og ekki síst atvinnugreinum.
Vel hefur gengið í sjávarútvegi á síðustu
árum og endurspeglast það ekki síst í
háum launagreiðslum hjá mörgum sjáv-
arútvegsfyrirtækjum. Brim greiddi um
3,5 milljarða í heildarlaun á síðasta ári, en
hjá félaginu störfuðu um 142 starfsmenn
að meðaltali. Meðallaun á starfsmann
námu því rétt liðlega 2 milljónum króna
á mánuði. Þetta eru hæstu meðallaun sem
greidd voru hjá íslensku fyrirtæki á árinu
2015.
Eins og sjá má í töflu 5 eru sjávarút-
vegsfyrirtækin áberandi á listanum yfir
20 hæstu launagreiðendur eða rétt tæpur
helmingur fyrirtækjanna. Þá eru fjármála-
fyrirtæki einnig áberandi eins og sjá má í
töflunni.
Gert ráð fyrir kröftugum
hagvexti á þessu ári
Ljóst er að kröftugur hagvöxtur er enn í
spilunum á yfirstandandi ári, en sam-
kvæmt nýbirtum tölum Hagstofunn-
ar er gert ráð fyrir 4,8% hagvexti í ár.
Hagvöxtur er knúinn af einkaneyslu og
fjárfestingu, en samneysla er talin aukast
mjög lítillega. Þrátt fyrir mikinn uppgang
í ferðaþjónustu og aukningu útflutnings
er gert ráð fyrir að framlag utanríkisvið-
skipta til hagvaxtar verði neikvætt þar sem
innflutningur hefur aukist mikið sam-
ÍSBENDING
Tafla 3. Arósömustu fyrirtækin
árið 2015
Arðsemi eigin fjár* Hagnaður 2015 Eigið fé m.kr. Eiginfjá hlutfall
LOGOS slf. 258% 1.302 504 40%
Frumherji hf. 218% 423 194 13%
Jakob Valgeir ehf. 150% 1.009 674 8%
Landslög slf. 136% 327 240 42%
BBA/Legal 124% 327 264 62%
Mörkin Lögmannsstofa hf. 122% 253 208 37%
Keahótel ehf. 118% 321 273 39%
Mata hf. 118% 158 134 42%
Islenskar getraunir 113% 105 94 39%
TM Software Origo ehf. 112% 836 749 58%
DK Hugbúnaður ehf. 112% 253 227 56%
Toyota á íslandi hf. 103% 589 573 15%
LEX 102% 182 177 22%
Bananar ehf. 101% 1.150 1.144 60%
Toyota 98% 198 202 12%
Kynnisferðir ehf. 91% 626 688 13%
Iceland Travel ehf. 86% 356 413 32%
Agustson ehf. 85% 1.022 1.203 26%
Rolf Johansen & Company ehf. 84% 98 116 11%
Sómi ehf. 83% 164 197 25%
* Fyrir skatta
Tafla 4. Stærstu vinnuveitendurnir
(fjárhæóir í m.kr.)
Ársverk 2015 Ársverk 2014 Breyting frá f. ári Launagreiðslui
Marel hf. 3.886 4.115 -6% 33.825
Landspítali 3.739 3.752 0% 31.403
Icelandair Group 3.384 3.109 9% 24.160
Össur hf. 2.420 2.214 9% 18.924
Icelandair ehf. 1.678 1.529 10% 13.348
Icelandic Group hf. 1.604 1.736 -8% 4.521
Eimskipafélag Islands hf. 1.512 1.397 8% 11.553
Samherji hf. 1.433 1.207 19% 11.607
Samskip hf. 1.405 1.295 8% 8.916
Háskóli íslands 1.390 1.344 3% 10.203
íslandsbanki hf. 1.222 1.253 -2% 10.869
Hagar hf. 1.195 1.160 3% 6.018
Arion banki hf. 1.139 1.128 1% 11.522
Landsbankinn hf. 1.095 1.155 -5% 10.504
Norvik hf. (Byko o.fl.) 1.062 1.034 3% 3.891
Isavia ohf. 1.017 914 11% 8.505
HB Grandi hf. 880 920 -4% 8.467
Kaupfélag Skagfirðinga 873 683 28% 5.536
Síminn hf. 843 593 42% 6.911
Islandspóstur hf. 816 790 3% 3.533
Actavis á Islandi 686 713 -4% 4.561
VÍSBENDING 35. TBL. 2016 3