Vísbending


Vísbending - 12.12.2016, Page 3

Vísbending - 12.12.2016, Page 3
V ÍSBENDING V Uppgangur popúlisma Flokkar sem kenna má við popúl- isma njóta vaxandi fylgis í mörg- um vestrænum ríkjum. Sem dæmi má nefna kosningu Donalds Trump sem Bandaríkjaforseta og tebramboð Repúblikana, aukið fylgi Marine Le Pen í Frakklandi sem vill m.a. tak- marka aðflutning fólks til Frakklands og taka upp eigin mynt, Alternalive fnr Deutschland í Þýskalandi sem einnig vill takmarka aðflutning fólks til Þýska- lands, UK Independence Party í Bret- landi sem barðist fyrir því að Bretland segði sig úr Evrópusambandinu, Frels- isflokkur Geert Wilders í Hollandi sem vill m.a. takmarka búseturétt Múslima í Hollandi, Lega Nord á Italíu sem vill að Norður Italía skilji sig frá Suður Ítalíu og Gullin dögun á Grikklandi, sem vill meðal annars berjast gegn því að fleiri múslimir flytji til landsins. En hvað eiga þessir flokkar sameig- inlegt? Stjómmálafræðingurinn Cas Mudde hefur skilgreint popúlistaflokka á eftirfarandi hátt: 1. Þeir setja sig upp á móti ríkjandi valdastétt, sem geta verið stjórnmála- öfl, Ijölmiðlar, bankar, alþjóðasamtök o.s.frv. 2. Þeir leggja áherslu á vald foringja hreyfingarinnar sem túlkar, skilur og setur fram vilja þjóðarinnar. Þarna eru á ferð einræðistilburðir. Oft hafa hinar popúlísku hreyfmgar töfrandi stjórn- málaforingja. 3. Þeir líta á þjóð sem eina samleitna einingu með sameiginlega hagsmuni og vilja. Til samans er þessi blanda kunnug- leg: Stjórnmálamaður telur sig talsmann „þjóðarinnar' á móti öðrum ríkjum, inn- flytjendum og öllum sem þykjast hafa vit á einstökum málum. Hann setur sig upp á móti alþjóðasamtökum og lítur á þau sem óvin ríkisins. Flokkar popúlisma vilja fremur einsleitt samfélag en samfélag fjöl- menningar; að halda fram eiginhags- munum þjóðar fremur en alþjóðasam- vinnu og þróunarhjálp, þeir vilja loka landamærum og halda upp á hefðbundin og rótgróin gildi. Popúlismi og hið pólitíska litróf Popúlistaflokkar geta verið bæði til vinstri og hægri í stjórnmálarófinu. Sem dæmi um vinstri-popúlistaflokk má nefna Gullnu dögun á Grikklandi og sem dæmi um hægri-popúlistaflokk má nefna flokk Le Pen í Frakklandi. Stundum hafa flokk- arnir öll þrjú einkennin en ekki alltaf. Þannig hafa talsmenn brotthvarfs Bret- lands úr Evrópusambandinu einkenni eitt og þrjú hér að ofan; þeir hafa ekki haft uppi einræðistilburði hingað til utan þá að vilja útiloka þingið frá ákvörðuninni, sem þó er ansi langt gengið.1 Ef við látum vinstri flokka vera til vinstri á mynd og hægri flokka til hægri þá getum við sett popúlisma í aðra vídd, upp og niður, þar sem mestu popúlist- arnir eru efst á myndinni og neðst er andstaða popúlista sem eru þá flokkar sem meta fjölmenningarsamfélög, stofn- anir lýðræðis og leggja mikið upp úr því að hver einstaklingur lifi í alþjóðasam- félaginu. Fjölbreytni skoðana og lífsstíls er ekki bara umborin heldur höfð í há- vegum, réttindi minnihlutahópa varin og umburðarlyndi gagnvart mismun- andi skoðunum. Köllum þetta „flokka heimsborgara." Slíkt tvívítt pólitískt litróf gefur gleggri mynd af mismun á einstök- um flokkum en einföld aðgreining á milli hægri og vinstri. Auknar vinsældir popúlisma Tvær skýringar hafa einkum verið gefnar fyrir auknum vinsældum popúlista.2 Fyrst skulum við lýsa dæmigerðum hópum fýlgismanna popúlistaflokka þótt einhver munur geti verið á milli landa. Stuðningur er meiri meðal eldri kynslóðarinnar, karl- manna, þeirra sem minnsta menntun hafa, þeirra sem eru trúaðir og meðal þeirra sem tilheyra meirihlutahópi sam- félagsins (t.d. kynþætti). En hverjar geta orsakir þess verið að þetta fólk kýs flokka popúlista? Fyrsta skýringin felst í efnahagslegri óvissu um framtíðina. Þeir sem finnst sér ógnað af auknum milliríkjaviðskipt- um eða aðflutningi erlends vinnuafls geta talið sig geta fundið öryggi í stjórn popúlista sem vilja þá minnka aðflutn- ing erlends vinnuafls, draga úr viðskipt- um við aðrar þjóðir og vernda hagsmuni meirihlutahópa. Flokkarnir sækja þá fýlgi til þeirra sem standa veikir fýrir á vinnu- markaði, hafa litla menntun og búa við lítið starfsöryggi. Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa sýnt að starfsfólk í greinum sem keppa við inn- flutning frá Kína hefur minni tekjur og minna atvinnuöryggi en aðrir.3 Svipaðar niðurstöður fást þegar áhrif samkeppni frá Kína á laun og atvinnuhorfur í Bretlandi eru könnuð.4 Rannsóknir hafa sömuleiðis sýnt að bandarískir þingmenn sem koma frá kjördæmum þar sem atvinnugreinar eiga undir högg að sækja eru líklegri en aðrir til þess að greiða atkvæði með ýmis konar höftum á milliríkjaviðskipti.5 I Evrópu hefur verið sýnt fram á að kjós- endur í kjördæmum þar sem atvinnuveg- ir keppa við innflutning frá Kína kjósa flokka sem eru fýlgjandi verndarstefnu.6 I Þýskalandi eru t.d. kjósendur í slíkum kjördæmum líklegri til þess að greiða öfga flokkum til hægri atkvæði sitt7 Ný tækni getur einnig aukið óvissu um framtíðina. Tækni getur gert störf úrelt og horfur á slíku getur vakið ótta meðal fólks. Hagfræðingurinn Eric Brynjolfs- son hefur sýnt fram á að þau kjördæmi sem völdu Trump í nýliðnum kosningum höfðu ástæðu til þess að óttast um fram- tíðarstörf vegna tækniframfara. I þessum kjördæmum fela hlutfallslega mörg störf í sér rútínu sem auðvelt er að láta tölvur vinna. Við þetta má bæta ótta við samkeppni við innflytjendur, einkum frá Suður Am- eríku í Bandaríkjunum og Austur Evrópu í Bretlandi. Þótt erfitt hafi reynst að sýna fram á neikvæð áhrif innflytjenda á laun og störf innfæddra geta þeir engu að síður óttast slík neikvæð áhrif í framtíðinni. Síðari skýringin lýtur að hlutverki og stöðu fjölmiðla. Kapalsjónvarp og internetið hafa gert einstaklingum það mögulegt að stofna og reka sjónvarps- stöðvar fýrir mun minni kostnað en áður. Áður einokuðu þrjár stórar sjónvarps- stöðvar í Bandaríkjunum fréttaflutning og gættu þess að jafnvægi væri á milli and- stæðra sjónarmiða. En nú hafa orðið til pólitískar sjónvarpsstöðvar sem gefa ein- hliða mynd og staðfesta fýrirframmynd- aðar skoðanir í huga áhorfenda. Þegar sami einhliða málflutningurinn er endur- tekinn aftur og aftur er við því að búast að heift og sundrung magnist. Fólk getur framh. á bls. 4 VÍSBENDING 40. TBl. 2016 3

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.