Vísbending


Vísbending - 19.12.2016, Blaðsíða 1

Vísbending - 19.12.2016, Blaðsíða 1
ÍSBENDING yikurit um viðskipti og efnahagsmdl 19. desember 2016 41. tölublað 34. árgangur ISSN 1021-8483 Það versta Fyrir réttu ári var birt svartsýnis- spá fyrir árið 2016. Byggt var á spá frá Bloomberg fréttaveitunni fýrir útlönd, en Vísbending spáði hvað gæti komið fyrir hér á landi. Skoð- um hvernig spáin gekk eftir. Sumt það versta gerðist. Brexit samþykkt, Trump kosinn forseti Bandaríkjanna, evran gæti endað í 118 krónum í árslok og landbúnaðarsamningar til áratugar. Olíuverð hækkaði en ... I upphafi árs var olíuverð um 37 dalir tunnan. Lægst fór verðið niður fyrir 30 dali tunnan, en OPEC-ríkin ákváðu að draga úr framleiðslu í árslok. Moody‘s hafði spáð 43 dala meðalverði fyrir árið 2016 sem var nærri lagi, en verðið er nú liðlega 50 dalir. Þetta er um þriðjungs hækkun frá upphafi árs og næstum tvö- földun frá lægsta verði, sem er vissulega mikil hækkun. Það versta í svartsýnisspánni var að olíuverð færi á augnabliki yfir 100 dali vegna skæruliðaárása á olíustöðvar víða um heim. Þetta rættist ekki og olíuleit á Drekasvæðinu hófst ekki af krafti. Bretar vilja ganga úr Evrópusambandinu í greininni stóð: „Cameron sem gaf lof- orð um kosningar sem hann ætlaði aldrei að halda fer á taugum. Hann hefur heyrt af ómöguleikakenningunni á ferð sinni um ísland, en ákveður að hún sé of vit- laus til að hún sé bjóðandi breskum kjós- endum. Hann boðar þess í stað til kosn- inga um málið í júní 2016. Boris Johnson, borgarstjóri Lund- úna ákveður að styðja úrsögn og vinnur kosningarnar. Cameron segir af sér og Johnson tekur við. Hann leiðir viðræð- ur um úrsögn, en bankar og önnur stór- fyrirtæki flytja höfuðstöðvar sínar yfir til Frankfurt. Alþjóða fjárfestar halda sig frá Bret- landi meðan óvissuástand ríkir. Pund- ið fellur og hlutabréfamarkaðurinn fer sömu leið. Breski seðlabankinn hækkar vexti. Skotar boða á ný til kosninga og segja sig úr sambandi við Breta. Þeir sækja í kjölfarið um aðild að Evrópusam- bandinu og mörg ensk stórfyrirtæki flytja höfuðstöðvar sínar þangað.“ Johnson varð ekki forsætisráðherra heldur utan- ríkisráðherra, en að öðru leyti gekk spáin eftir þó að ekki sé allt yfirstaðið enn. Sitt lítið af hverju Hér kemur listi um nokkur atriði sem spáð var: Gerðist ekki: • Hryðjuverkamenn ráðast samtím- is á skotmörk í höfuðborgum margra Evrópusambandsríkja. • Landamæraeftirlit er tekið upp á öll- um landamærum Evrópulanda. • Ríkin neita að styrkja Grikki enn meira eftir að grísk ríkisskuldabréf hrynja í verði. • Grikkland gengur úr evrusamstarf- inu, tekur upp drökmu og fátækt verður almenn í landinu sem fer á hausinn og neitar að borga skuldir sínar. • Flutningar á sjó og landi verða ótryggir. Hlutabréfaverð fellur í Asíu Sjanghæ-markaður féll að vísu um 10%. Gerðist að hluta: • Utlendingahatur vex og Merkel hrökklast frá. Merkel er enn í embætti. • Marine Le Pen verður sterkasti fram- bjóðandinn fyrir forsetakosningarnar í Frakklandi árið 2017. Le Pen er talin verða annar tveggja frambjóðenda í seinni umferð. • Orói skapast í Þýskalandi og evr- an fellur gagnvart Bandaríkjadal. Evran lækkaði úr 1,08 dölum í ársbyrjun í 1,04 dali nú. Komst hæst í nærri 1,15 en hef- ur ekki verið lægri á árinu. • Kínverska hagkerfið hrynur: Nýr Bandaríkjaforseti sendir flotann til þess að styðja stjórnina í Tævan, Kínverjar hóta að grípa til hernaðaraðgerða. Trump hefur strax valdið óróa í samskiptum við Kína. Og Trump var kosinn • Trump kosinn forseti Bandaríkjanna. Hann ætlar að loka landamærum, stöðva viðskipti við Kína og auka hernaðarupp- byggingu. Bandaríkjadalur fellur, gull hækkar f verði, hlutabréf lækka nema í hergagnafyrirtækjum. Ekki allt komið fram, en ... . Á meðan var góðæri á Islandi Spádómar um fsland rættust líka sumir, en sem betur fer ekki allir: Gerðist ekki: • Ríkisstjórnin ákveður að einkavæða bankana og telur að vænlegast sé að fá að þeim kjölfestufjárfesta. Eðlilegt sé að bjóða þröngum hópi að kaupa hluti í sérstöku forútboði þar sem veittur verð- ur magnafsláttur til vildarvina. I Reykja- víkurbréfi er lýst stuðningi við að gömlu gildin séu hafin til vegs og virðingar á ný. • Farið að ráðum Lars Christiansens, spámannsins danska, lánskjaravísitalan lögð niður og launavísitalan sett á öll lán þess í stað. Lítið notuð fálkaorða finnst og Lars sæmdur henni við embættistöku forsetans. Á sama tíma ákveður forsetinn að náða nokkra gamla vini sína. Blaða- fulltrúar forsætisráðherra lýsa því yfir að loforðið um að leggja niður verð- tryggingu sé að fullu efnt, launatrygging sé augljóslega allt annað. • Álverinu í Straumsvík er lokað og kerskálum breytt í flugstöð vegna nýs innanlandsflugvallar sunnan við Hafnar- fjörð. Forsætisráðherra heggur á hnútinn í deilunni um byggingu nýs Landspítala og ákveður að hann verði reistur á Kjal- arnesi. Það liggi vel við samgöngum alls staðar á landinu sem er mikilvægt „því bændur verða líka veikir“ eins og ráð- herrann bendir réttilega á. • Meirihluti þingmanna ríkisstjórnar- innar lýsir því yfir að eðlilegt sé að fsland gangi í nýtt bandalag óháðra ríkja und- ir forystu Pútins, sem gerir á sama tíma samning um að kaupa makríl gegn því að Rússar fái öll olíuviðskipti við íslendinga framh. d bls. 4 ISvartsýnisspá Vísbendingar fyrir réttu ári síðan leiðir ýmislegt fróðlegt í ljós bæði innanlands og utan I samanburði við Evrópusam- bandslöndin er stuðningur við landbúnað hér á landi að með- altali fimm sinnum hærri á býli 3Það er mál til komið að tollvernd verði aflétt af ís- lenskum landbúnaði til að auka samkeppni 4Það má spyrja sig að því hvort íslenskt efnahagslíf hafi tekið hina svokölluðu hollensku veiki VÍSBENDING • 41.TBL. 2016 1

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.