Austri - 25.02.1983, Blaðsíða 1
Vopnafiörðiir
Veöráttan hefur veriö mjög
góð til landsins á Vopnafiröi í
vetur, en þó hefur verið storma-
samt. Mjög snjólétt hefur verið
og hefur nær aldrei þurft að
moka. Rúningur stendur nú yfir
hjá þændum en annars gengur
lífið sinn vana gang i sveitinni.
Afli hefur verið tregur undan-
farið og lélegar gæftir vegna
þess hve stormasamt hefur ver-
ið. Afli togarans Brettings var
3073 tonn árið 1982, en afli
Fiskaness sem er 51 tonna
bátur var 730 tonn. Auk þess
voru gerðir út héðan allmargir
minni bátar.
Bygging dvalarheimilis
aldraðra
Unnið er við byggingu ibúða
fyrir aldraða og legudeild. Miðað
er að því að taka íbúðirnar í
notkun um mitt sumar og eru í
byggingu 6 einstaklingsíbúðir
og tvær hjónaíbúðir. Þegar
þessu er lokið verða samtals 14
íbúðir fyrir aldraða og öryrkja á
Vopnafirði. Óvissa er um hven-
ær legudeildin kemst í gagnið
því ekki er séð hversu mikið
fjármagn fæst í byggingarnar
frá Framkvæmdasjóði aldraðra
en sjóðnum ber samkvæmt lög-
um að leggja fram 85% af
byggingarkostnaði. Legudeildin
er nú tilbúin undir tréverk og
málningu.
Aðrar framkvæmdir
Um þessar mundir standa yfir
framkvæmdir við skrifstofuhús-
næði fyrir hreppinn og Kaupfé-
lag Vopnfirðinga vinnur að
standsetningu trésmíðaverk-
stæðis í nýbyggingu sinni á
Búðaröxl.
KM/JK
Bráðskemmtilegt leikrit
Frá æfingu á Saumastofunni. Kjartans Ragnarssonar, Sauma
Leikfélag Reyðarfjarðar æfir stofuna og er leikstjóri Guðjón
nú um þessar mundir leikrit Ingi Sigurðsson. Það verður
Egilsstaftir
Bygging safna-
húss hefst í vor
Nú er í undirbúningi bygging
safnahúss sem rísa skal á Egils-
stöðum á lóð við Laufskóga,
gegnt Valaskjálf. Það er minja-
safn Austurlands sem stendur
að þessari byggingu og nú hafa
Héraðsbókasafnið á Egilsstöð-
um og Héraðsskjalasafnið geng-
ið til samstarfs við minjasafnið
um byggingu hússins og hyggj-
ast flytja þangað starfsemi sína.
Unnið hefur verið að teikning-
um hússins að undanförnu og er
þar um að ræða þrjú hús með
risi, hvert tæplega 800 ferm.
Húsin eru tengd saman með
tengibyggingu. Hvert hús er á
þremur hæðum.
Hægt er að skipta þessari
byggingu í áfanga og hefur
byggingarnefnd nú ákveðið að
bjóða út í vor undirstöður að
tveimur húsum, þ.e. sökkla og
jarðvinnu. Stefnt verður að því
að klára fyrsta húsið og tengi-
byggingu þess og kjallara þess
næsta í fyrsta áfanga.
Byggingarnefnd skipa fimm
menn og er formaður hennar
Halldór Sigurðsson. Auk hans
sitja fyrir hönd minjasafns þeir
Sveinn Jónsson og Vilhjálmur
Hjálmarsson. Fyrir hönd Héraðs-
bókasafns Guðmundur Magnús-
son og Jón Kristjánsson fyrir
hönd Héraðsskjalasafns. Vara-
maður ( nefndinni er Bogi Nils-
son. J.K.
S
Ovenjulegt bíl-
færi á Öræfum
Tíðarfar hefur verið gott und-
anfarið og hlýindi ekki einungis
í byggð heldur hefur verið hlýtt
til fjalla.
Um síðustu helgi fóru þeir
Völundur Jóhannesson, Hrafn
reglulegt tilhlökkunarefni að sjá
þessa uppfærslu. Eins og þeir
vita sem eitthvað hafa séð af
verkum Kjartans, þá eru þau
ósvikið skemmtiefni þar sem fer
saman gaman og alvara á hinn
skemmtilegasta hátt. Svo séu
höfð fáein orð um áhugaleikhús
úti á landsbyggðinni þá vitum við
sem eitthvað höfum kynnst þeim
málum að það er mikil vinna sem
liggur að baki einu leikverki.
Fólkið sem tekur þátt í þessu
leggur'hart að sér, þvi allt er það
vinnandi önnur störf á daginn,
en mætir að sjálfsögðu á hverju
kvöldi vikum saman á meðan
æfingar standa. Það er vonandi
að Austfirðingar taki vel á móti
þessu framlagi til leiklistar og
mennigarmála þegar sýningar
hefjast í byggðarlögunum hér í
Sveinbjarnarson og Dagur Krist-
mundsson á rússajeppa Hrafns
í Kverkfjöll og óku sem leið
liggur í Möðrudal og þaðan í
Hvannalindir og Kverkfjöll, síð-
an óku þeir i Grágæsadal og
gistu þar í Einarsskála. Daginn
eftir óku þeir austur yfir Kringils-
árrana og yfir Jökulsá á Dal á ís
inn við jökul, út Vesturöræfi,
austur um Þrælaháls að Grenis-
öldu og þaðan niður í Fljótsdal.
Ekið var á harðfenni mest af
leiðinni, enda hafði hiti í Grá-
gæsadal komist hæst í sex stig
samkvæmt hitamæli þar og frost
í 26 stig. 10 stiga frost var þegar
þeir félagar voru á ferðinni.
Það er mjög óvenjulegt að
þessi leið sé farin á bíl á þessum
tíma og aldrei hefur verið farið
frá Grágæsadal og austur um
áður.
Það eina kvikt sem þeir félag-
ar sáu voru nokkur hreindýr í
Jökuldalsheiði. Ár voru allar á
góðum ís nema Sauðá.
Ef þú líður skort
þá leigjum við þér
„Lada sport“
Bifreiðaleigan hf.
Reyðarfirði
Síldarbúskapur í fullu fjöri enn
Undirritaður leit við einn dag-
inn hjá Hilmari og Jóa í Trésíld.
Mig langaði til að forvitnast
hvernig síldarbúskapurinn
gengi. Til skýringar á þessari
nafngift þá heitir fyrirtækið það
ekki. Það er í raun um tvö
aðskild fyrirtæki að ræða Tré-
verk og Verktakar hf. En ástæð-
an fyrir því að þetta nafn mynd-
ast er auðvitað sú að smiðirnir
skelltu sér í síldarsöltun.
Jón og Hilmar voru inni á
kaffistofu ásamt starfsfólki því
kaffitfminn var ekki alveg útrunn-
inn og Gunnlaugur matsmaður
sagði að enginn stæði upp fyrr
en hann og var hann hálf glettn-
islegur. Þeir félagar Jói og Hilm-
ar sögðu að það gengi vel að
koma tunnunum til kaupenda og
yrði það í kringum mánaðarmót-
in mars-apríl sem allt yrði farið.
Og þá hefst að nýju byggingar-
vinna, en hún hefur að mestu
legið niðri síðan um mánaðar-
mótin september - október eða
þegar söltun hófst. Að vísu hafa
tveir menn verið að vinna við
trésmíðar og hafa gert allan
tímann.
Það eru 10 manns sem vinna
hér nú. Friðjón Vigfússon leit við,
en hann er með í útgerðinni og
fræddi mig um það að 8100
tunnur hefðu verið saltaðar á
þessari vertíð en árið áður 3500
svo það er um mikla aukningu
að ræða á milli ára, sem auðvit-
að hefur í för með sér meiri
vinnu.
Þegar ég yfirgaf síldarstöðina
hjá þeim félögum voru allir upp-
teknir að rýnaofan í tunnur og
voru tveir matsmenn þarna til
halds og trausts. En maður getur
hugleitt það hvernig atvinnuá-
standið væri hér ef síldin hefði
ekki komið til og allt sem henni
fyigir- þs
Reyðarfj örður
Krakkarnir í götunni
Frá brúðusýningunni.
Á vegum menntamálaráðu-
neytisins er verið að sýna brúðu-
leikritið „Krakkarnir í götunni" og
var það sýnt hér á öskudaginn.
Þetta leikrit er bæði fræðandi og
skemmtilegt, fjallar um fjölfötluð
börn og er þar tekin fyrir blinda,
heyrnarleysi, vangefni og heila-
lömun. Lýst er samskiptum heil-
brigðra og fatlaðra barna, þar
sem komið er inn á það efni að
tala um hlutina eins og þeir eru
og losna um leið við þá fordóma
sem skapast oft af þekkingar-
leysi. Það eina sem mér finnst
vanta í sambandi við þessar
sýningar að foreldrarnir skyldu
ekki mæta með börnunum.
Þetta verk átti erindi til ungra
jafnt sem fullorðinna. Þetta var í
alla staði virðingarvert framtak
þegar litið er á þá hlið málsins
að þarna er á ferðinni efni sem
vekur fólk til umhugsunar um
það að við getum lifað í betri sátt
hvort við annað ef við værum
skilningsríkari. En sem sagt mér
hefði fundist að þessi sýning
hefði mátt ná til fleiri aldurshópa.
Hafi þær þökk fyrir frábæra
íúlkun, Helga Stephensen og
Hallveig Thorlacius.
Skemmtilegur öskudagur
Sú skemmtilega hefð hefur
komist á með öskudaginn að
haldið er nokkurs konar grímu-
ball fyrir börn á skólaaldri. Það
er kvenfélagið sem staðiðhefur
fyrir þessu. Börnin mættu í alls
konar skemmtilegum búningum
sem mömmurnar höfðu saum-
að. Var þarna hægt að sjá
nokkrar Línur, prinsa, prinsess-
ur og trúða svo eitthvað sé nefnt.
Veitingar voru auðvitað á boð-
stólum, ís og annað góðgæti.
Þetta varð hinn skemmtilegasti
öskudagur.