Austri


Austri - 26.06.1986, Page 8

Austri - 26.06.1986, Page 8
Vígsla sumarhúss Átthagasamtaka Héraðsmanna Mánudaginn 16. þessa mánaö- ar vígðu Átthagasamtök Héraðs- manna sumarhús sitt að Hjalta- stað. Til samkomunnar voru mættir um 25 félagar ásamt þremur oddvitum á Héraði og nokkrum gestum og velunnurum félagsins. Við þetta tækifæri af- henti Sævar Sigbjarnarson, odd- viti Hjalastaðahrepps, Hreini Kristinssyni, formanni, Átthaga- samtakanna 35.000.- króna ávís- un frá hreppum á Héraði. Hreinn Kristinsson, formaður var inntur eftir forsögu þessa og kom fram eftirfarandi: Átthagasamtök Héraðsmanna voru stofnuð árið 1972 af brott- fluttum Héraðsmönnum í Reykja- vík og nágrenni. Upphafsmenn að stofnun þeirra voru Stefán Pét- ursson frá Bót og Þórarinn Þórar- insson, fyrrverandi skólastjóri á Eiðum. Með stjórn samtakanna fer svokallað félagsráð sem er skipað einum fulltrúa frá hverju sveitarfélagi á Fljótsdalshéraði. I stjórn félagsins eru nú: Hreinn Kristinsson, formaður, Kristín Árna- dóttir, varaformaður, Sædís Karlsdóttir, ritari og Þórhallur Sig- urjónsson, gjaldkeri. Félagar eru um 200. Læknishúsið að Hjaltastað var byggt 1925-1926 af sveitarfó- lögum læknishéraðsins, er voru auk Hjaltastaðaþinghár, Jökul- dalur, Jökulsárhlíð, Hróarstunga, Eiðaþinghá og Borgarfjörður. Húsið er teiknað af Guðjóni Samú- elssyni, húsameistara ríkisins en yfirsmiður var Jónas Þórarinsson frá Hrafnabjörgum. Læknissetur og sjúkraskýli voru í húsinu frá hausti 1926-1941. Frá 1942-1961 var húsið leigt af bændum Hjalta- staða I, en þá var Hjaltastaðurtví- býlisjörð. Frá 1961 hefur ekki ver- ið búið í húsinu, þar til Átthaga- samtökin tóku húsið á leigu. Leigu- samningurinn var undirritaður 8. október af Pálma Jónssyni, land- búnaðarráðherra og Helgu Sig- björnsdóttur, þáverandi formanni Átthagasamtakanna. Húsinu fylgja samkv. þessum samningi 4,5 ha af landi. Húsið hefur verið endurreist að miklu leyti með sjálfboðavinnu og fjáröflun félagsmanna, auk þess sem ómetanleg hjálp hefur komið frá mörgum aðilum á Héraði. Átthagasamtökin hafa komið sér upp góðum áfangastað í fögru umhverfi um leið hafa þau bjargað einni merkustu byggingu á Héraði frá tortímingu. Blaðið óskar þeim til hamingju með þennan áfanga í starfi. A.S Mini-golf Hattar 17. júní var vígt mini-golf sem Höttur á og hefur verið komið fyrir við sundlaugina á Egilsstöðum. Vígsluleikurinn var milli Hatt- armanna og hreppsliðsins sem var sambland af starfsmönnum hreppsins og hreppsnefndarmönnum. Hreppsliðið vann fleiri pör, en Hattarliðið fór á færri höggum [ heildina svo dómsúrskurður reyndist vera jafntefli. VS Opinn kynningarfundur um málefni fatlaðra Síðastliðinn sunnudag efndu Landssamtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag vangefinna og Svæðisstjórn í málefnum fatlaðra á Austurlandi, til opins fundar að Vonarlandi þar sem rædd voru málefni fatlaðra. Á fundinum héldu erindi, Ásgeir Sigurgestsson, framkvæmda- stjóri Samtakanna Þroskahjálpar, Eggert Jóhannesson, formaður samtakanna, Stefán Hreiðars- son, forstöðumaður greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, Sig- ríður Þorvaldsdóttir, fram- kvæmdastjóri Svæðisstjórar fyrir fatlaða á Austurlandi og Kristján Gissurarson, formaður Styrktar- félags vangefinna á Austurlandi. Þessir framsögumenn gáfu yfir- lit yfir einstaka þætti þessa mála- flokks og var það mál manna að á fundinum hefði fengist mjög gott yfirlit yfir stöðu þessara mála hér á Austurlandi og á landsvísu. Fjármál og stefnumótun ( erindi þeirra Ásgeirs og Eggerts, kom fram að nokkuð vantar á að farið sé eftir lögum um málefni fatlaðra hvað varðar fjár- mögnun og markvissari stefnu- mótun hins opinbera væri nauð- synleg. í máli Eggerts kom fram sú skoðun að nauðsynlegt væri að skipuleggja húsnæðismál fatl- aðra að nýju og að húsnæðislána- kerfið tæki þátt í þessum mála- flokki. Æskilegt væri að byggja einstaklingsíbúðir með sameigin- legri þjónustu sem fatlaðir gætu átt sjálfir og væri það næsta stig við sambýlin, sem nú eru rekin með góðum árangri. Eggert ræddi einnig um skólakerfið og gagnrýndi of mikla samþjöppun skóla fyrir fatlaða á einum stað. Hann kvað heilsugæslu eiga að miða að auknu forvarnarstarfi og lét að lokum í Ijós þá skoðun að varasamt væri að draga ýmsa hópa þjóðfélagsins svo sem sjúka, fatl- aða og aldraða í dilka í löggjöf. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins í máli Stefáns Hreiðarssonar, kom fram að nú er langur biðlisti hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Um síðustu áramót fór yfirstjórn þessara mála undir fél- agsmálaráðuneytið og hefur nú fengist leyfi fyrir þremur stöðum til viðbótar. Með því er stefnt að því að enginn biðlisti verði að fimm árum liðnum. Greiningar- og ráð- gjafarstöðin er móðurskipið fyrir starf að málefnum fatlaðra sagði Stefán og mikil nauðsyn á að kippa þessari starfsemi í lag, en hún er fólgin í því að greina fötlun barna sem allra fyrst og gefa ráð um meðferð. Þetta starf krefst mikillar og flókinnar sérfræði- þekkingar. Málefni fatlaðra á Austurlandi Sigríður Þorvaldsdóttir, rakti starf svæðisstjórnar á Austur- landi og kom fram í hennar máli að miklir áfangar hafa náðst á undanförnum árum, í miðstöð starfsins, sem er á Egilsstöðum. Auk Vonarlands, þar sem eru nú 11 vistmenn, er starfandi á Eg- ilsstöðum, sambýli með 6 ein- staklingum og verndaður vinnu- staður verður tekinn í notkun í næsta mánuði og það hyllir undir að leikfangasafni verði komið á fót og fái starfsmann. Kristján Gissurarson, rakti mál- efni Styrktarfélags vangefinna á Austurlandi og afskipti félagsins af málefnum fatlaðra og þroska- heftra, sem hafa verið mjög mikil í gegnum tíðina. Framtíðarplön Á eftir erindum gesta voru frjálsar umræður og fyrirspurnir og þar tóku m.a. til máls alþingis- mennirnir, Helgi Seljan og Jón Kristjánsson og Stefán Þórarins- son, læknir, formaður svæðis- stjórnar. Næstu skref í málefnum fatlaðra á Austurlandi báru á góma í þessum umræðum og lét Stefán Þórarinsson í Ijós þá skoðun að þau skref ættu að vera í því fólgin að koma upp fleiri sambýlum, víðar á Austurlandi, en á Egilsstöðum. Einnig voru á fundinum fyrir- spurnir til framsögumanna en til- gangur fundarins var eins og áður segir að kynna málefni fatlaðra fyrir almenningi. Fundarstjóri var séra Davíð Baldursson. J.K.

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.