Austri - 25.09.1986, Side 1
c • '**v •Jt :
þingum eru haldnir fræðslufundir
um ýmis efni sem varða nám og
kennslu og geta komið kennurum
að gagni í starfi þeirra. Reynt að
hafa framboð þessara fræðslu-
funda sem fjölbreytilegast þannig
að sem flestir finni þar eitthvað við
sitt hæfi. í tengslum við haust-
þingið er einnig haldinn aðal-
fundur KSA.
Haustþinginu lýkur síðari hluta
laugardags 4. október. R.S.
Uppeldismálaþing á Austurlandi
Að undanförnu hafa uppeldis-
málaráð og stjórn Kennarasam-
bands íslands gengist fyrir uppeld-
ismálaþingum víða um land. Þetta
er nýbreytni því að fram að þessu
hafa slík þing eingöngu verið
haldin í Reykjavík. Aðildarfélög
Kl á hverju svæði hafa haft veg og
vanda af framkvæmd þinganna.
Á 3. fulltrúaþingi Kennarasam-
bands íslands 1984 var samþykkt
að fela skólamálaráði KÍ að
„vinna að mótun heildarstefnu KÍ
í skólamálum í samráði við stjórn
KÍ og verði hún lögð fyrir 4. full-
trúaþing KÍ.“ Það verður haldið
næsta sumar.
Á. grundvelli þessarar sam-
þykktar hefur farið fram umfangs-
mikið starf á vegum skólamála-
ráðsins og eru uppeldismálaþingin
nú liður í því starfi. Með þeim er
ætlunin að gefa sem flestum fé-
lagsmönnum KÍ, færi á að hafa áhrif
á þessa stefnumörkun með því að
taka þátt í uppeldismálaþingum.
Einnig er ýmsum aðilum sem starfa
að skólamálum, s.s. skólanefnd-
um, stórnum foreldrafélaga og
fræðsluráðsmönnum, boðið að
sitja þingið.
Uppeldismálaþingið á Austur-
landi verður haldið í Alþýðuskól-
anum á Eiðum fimmtudaginn 2.
október og verður sett kl. 13:00.
Þar flytur Erla Kristjánsdóttir,
uppeldisfræðingur, framsöguer-
indi um skólastefnu, Svanhildur
Kaaber, formaður skólamálaráðs
KÍ, segir frá starfi skólamálaráðs
sem að framan er getið og Berit
Johnsen, sérkennslufulltrúi og
Einar Már Sigurðsson, kennari,
flytja erindi sem tengjast skóla-
málum á Austurlandi sérstaklega.
Eftir að framsöguerindum lýkur
munu umræðuhópar fjalla um
ýmis efni sem tengjast stefnumörk-
un í skólamálum. Þinginu lýkur
síðan með pallborðsumræðum.
Uppeldismálaþingið er haldið í
tengslum við árlegt haustþing
Kennarasambands Austurlands
sem haldið verður á Eiðum 3.-4.
október. Haustþingið er fastur
liður í starfi KSÁ sem og annarra
aðildarsambanda KÍ. Á haust-
„Allir í röð“. Sjón sem þessi er algeng við skóla víðsvegar um landið, en nú eruflestir
skólar byrjaðir. Því fer að vera mikið af smáfólki á göngu um og yfir götur með
töskur á bakinu. Er því ekki úr vegi að minna ökumenn vélknúinna ökutœkja á að
viðhafa fyllstu aðgæslu í umferðinni. (Mynd: ÖÞE.)
Samvinnuskólanum
gerbreytt
Samvinnuskólinn á Bifröst
var settur þriðjudaginn 9. sept-
ember og framhaldsdeild skól-
ans í Reykjavík mánudaginn 15.
september.
Inntökuskilyrðum Samvinnu-
skólans á Bifröst hefur nú verið
breytt. Umsækjandi skal áður
hafa lokið tveimur fyrstu árum
framhaldsskólastigsins á við-
skiptasviði eða a.m.k. með við-
skiptagreinum — með a.m.k. 6-
8 námseiningum í bókfærslu,
ensku og stærðfræði hverri
grein, 6 einingum í íslensku, 5
einingum í hagfræði og vélritun
hvorri grein og 4 einingum í
dönsku — auk annars náms á 1.
og 2. ári í framhaldsskóla.
Breyting hefur verið gerð á
starfsháttum Samvinnuskólans
enda mun skólinn hér eftir ekki
starfa á 1. eða 2. ári framhalds-
skólastigsins heldur einvörð-
ungu á lokaáföngum þess, 3. og
4. ári. Samvinnuskólaprófið
verður hliðstætt stúdentsprófi
og veitir rétt til inngöngu há-
skóla. Kennsluháttum hefur ver-
ið breytt til samræmis við það
sem tíðkast í háskólum og raun-
hæf verkefni aukin.
í vetur verða 111 nemendur í
Samvinnuskólanum, ogvæntan-
lega um 1.000 nemendur á starfs-
fræðslunámskeiðum skólans
sem haldin eru víðs vegar um
land í tengslum við vinnustaði.
(Fréttatilkynning)
Ný flugvél
Flugfélag Austurlands
Nýlega keypti Flugfélag Aust-
urlands flugvél af Piper Chieftain
gerð. Hún kemur til með að bera
einkennisstafina TF-EGU, en fyrst
í stað mun hún fljúga undir gamla
skráninganúmerinu sem er N27895,
eða þar til að endanlega hefur
verið gengið frá umskráningu.
Vélin er árgerð 1979 og tekur 9
farþega eða tveim farþegum fleira
en Navajo vél og kemur það sér
vel, sérlega á lengri leiðum s.s. um
Hornafjörð til Reykjavíkur. Hún
er einnig hentugri í sjúkra- og
leiguflug, því á henni er svokölluð
frakthurð, einnig er hurð að
framan fyrir flugmann. Vélin er
keypt frá Air Tulsa í Oklahoma,
og er vel tækjum búin m.a. með
Loran staðsetningartæki og radar
en hann gerir það m.a. að verkum
að auðveldara er að fljúga við
skástu veðurskilyrðin á flugleið sé
veður slæmt. Flugvél þessi er öll
hin snyrtilegasta, þó hún sé notuð,
ný áklæði, nýsprautuð og yfirfar-
in. Fyrirátti FA tvær PiperNavajo
vélar TF-EGS og TF-EGT og verð-
ur sú fyrrnefnda seld úr Iandi og
fer hún hvern næsta dag, eftir 5 ára
dygga þjónustu við Austfirðinga í
áætlunar-, sjúkra- og leiguflugi.
í vetur verður FA með áætlun á
Bakkafjörð, Vopnafjörð, Borgar-
fjörð, Norðfjörð, Fáskrúðsfjörð,
Breiðdalsvík, Höfn og Reykjavík.
Samdráttur varð á milli áranna
1984-85 en það sem af er árinu
Mánudaginn 22.9 mættu nem-
endur í Fellabæ úr forskóla, 1., 2.,
3., og 4. ári í fyrsta sinn í skólasel
Egilsstaðaskóla. í skólaselinu eru
skráðir 33 nemendur af áðurnefnd-
um árum og er þeim skipt í tvo
námshópa, þ.e.a.s. forskóli og 1.
bekkur eru saman í námshóp og
2., 3. og 4. eru saman í námshóp,
16 nemendur í þeim fyrri og 17 í
þeimseinni. Kennararviðskólann
verða aðallega tveir, þær Sigur-
laug Jónasdóttir, sem verður með
yngri námshópinn og hefur jafn-
framt umsjón með selinu og
Harpa Höskuldsdóttir, sem
1986 virðist stefna í 20% aukn-
ingu. Nú eru starfandi þrír flug-
menn hjá FA og einn flugvirki. Um
daglegan rekstur sér Rúnar Páls-
son og starfsmenn Flugleiða á Eg-
ilsstöðum sjá um afgreiðslu vél-
anna. BV
verður með eldri árgangana.
Það var haustið 1982 sem fram-
kvæmdir hófust við byggingu
hússins, en þá tók fyrrverandi
oddviti Fellabæjar, Helgi Gísla-
son, fyrstu skóflustunguna. Síðan
hefur verið unnið af fullum krafti
í fjögur ár og nú er byggingu húss-
ins nær alveg lokið. Húsið er 500
fermetrar að gólffleti, með þrem
kennslustofum og stórum fjölnýt-
ingasal sem hægt er að nota til ým-
issa nota, jafnvel koma þar fyrir
fleiri kennslustofum í framtíðinni
ef þörf krefur.
Að sögn Helga Halldórssonar,
Kennsla hafin í skólaseli
33 nemendur í selinu
Við nýju flugvélina standa; f.h. Rúnar Pálsson umdœmisstjóri, Jóhannes Fossdalþjálf-
unarjlugmaður, Steinar Steinarsson flugmaður, Gústaf Guðmundsson flugmaður,
Stefán Friðleifsson flugmaður og Porkell Þorkelsson flugvirki. (Mynd: ÖÞE.)
skólastjóra Egilsstaðaskóla, er
stefnt að því að mestöll kennsla
fyrir Fellabæ geti farið fram þar og
strax á næsta ári verður bekkjum
fjölgað og þá jafnframt námshóp-
um. Þó er víst að íþróttakennsla
fer fram um óákveðinn tíma á Eg-
ilsstöðum. ÖÞE
|jj 1)11» 1441; s ml
* ' • 4 ' ' 's' V'
Skólaselið
(Mynd: ÖÞE.)