Austri


Austri - 25.09.1986, Blaðsíða 2

Austri - 25.09.1986, Blaðsíða 2
2 AUSTRI Egilsstöðum, 25. september 1986. Útgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi Skrifstofa Austra Lyngási 1,700 Egilsstaðir, pósthólf 73 S 97-1984 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson Útgáfustjóri: Þórhalla Snæþórsdóttir Auglýsingastjóri: Bergþóra Sigurbjörnsdóttir Blaðamenn: Vigdís Sveinbjörnsdóttir, Örvar Þór Einarsson Auglýsinga- og áskriftasími: 97-1984 Áskrift kr. 105.00 á mánuði. Lausasöluverð kr. 30.00 Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum S 97-1449 Svartsýni er verst Það er ekki ósjaldan sem maður heyrir byggðastefnu skil- greinda á þann hátt að þar sé verið að hygla fallít fyrirtækjum út á landsbyggðinni á kostnað.skattborgaranna á höfuðborg- arsvæðinu. Linnulaus áróður hefur verið rekinn um margra ára skeið um þessi efni, og áhrifa hans verður mjög vart í umræðu manna á meðal. Skoðanakönnun, sem félagsvísindadeild Háskóla íslands vann fyrir SUF, sýndi hins vegar að meirihluti hins almenna borgara í Reykjavík vill kosta nokkru til þess að byggja landið allt og telur réttlætanlegt að reka byggðastefnu. Þetta sýnir að enn hafa áróðursmenn ekki haft erindi sem erfiði. Staðreyndin er sú að byggðastefna felur ekki í sér útgjöld fyrir skattborgara þessa lands þegar til lengri tíma er litið. Miklir flutningar á fólki innanlands eru mjög dýrir fyrir þjóð- félagið og auðlindir lands og sjávar verða aldrei nýttar með skynsamlegum og hagkvæmum hætti nema landið allt sé í byggð. Því er ekki að neita að ýmsar blikur eru á lofti í atvinnulífi landsbyggðarinnar. Fiskvinnslufyrirtæki hafa átt í erfið- leikum, en þau eru burðarásinn í atvinnulífi þéttbýlisstaða um landsbyggðina. Mörg þessara fyrirtækja hafa tekið mikið af skammtímalánum þannig að greiðslubyrðin er að sliga þau. Brýnt er að endurskipuleggja þau fyrirtæki sem þannig er á- statt um fjárhagslega og lengja lánin. Ríkisstjórnin hefur nú samþykkt fjárútvegun í þessu skyni. Samdráttur í hefðbundnum búgreinum var nauðsynlegur vegna markaðsmálanna og mikilvægt var að verj a útflutnings- uppbótafé í Framleiðnisjóð til þess að stuðla að breytingu á búháttum og nýjum búgreinum. Þótt erfiðleikar hafi gengið í loðdýraræktinni er engin ástæða til þess að láta hugfallast eða örvænta um að sú atvinnugrein geti orðið mikil lyftistöng fyrir sveitirnar þegar fyrstu skrefin hafa verið stigin og bændur hafa náð fullum tökum á þessari framleiðslu. Ferða- mannaþjónusta í sveitum er staðreynd, en ekki draumórar, og mun fara vaxandi á næstu árum. Auðvitað mun þessi breyting á atvinnuháttum í sveitum verða erfið, þó mun sá grunnur sem lagður hefur verið með harðari stjórnun og efl- ingu nýrra búgreina verða grundvöllurinn að öflugu atvinnu- lífi í sveitunum hér eftir sem hingað til. Landsbyggðin þarf á fjölbreyttara atvinnulífi að halda. Sjávarútvegur og landbúnaður mun enn um sinn verða kjöl- festan í atvinnulífi framtíðarinnar og þessar atvinnugreinar þurfa að vera traustar. Sem betur fer horfir nú vel um ýmsa þætti. Útgerð gengur nú betur en um árabil og má þakka það góðri fiskgengd, skynsamlegri stjórn fiskveiða og fjárhags- legri endurskipulagningu. Verð á sjávarafurðum er hátt nú um þessar mundir og viðskiptakjör fara batnandi. Það er nauðsynlegt fyrir landsbyggðarmenn að nýta batn- andi ytri skilyrði til þess að treysta grundvöll atvinnulífsins sem fyrir er, og til frekari átaka. Botnlaus svartsýni um framtíð landsbyggðarinnar er engum til góðs, því þegar grannt er skoðað hefur hún flest fram yfir höfuðborgina til búsetu. Landsbyggðarmenn þurfa heldur ekki að bera kinn- roða fyrir framlag sitt til þjóðarbúsins, með alla framleiðsluna og gjaldeyrisöflunina sem þar fer fram. J.K. (L--L r £ iþróttir Örvar Þ. Einarsson skrifar um íþróttir o.fl. 43 tóku þátt í Hattarhlaupinu 1986 Þá er Bikarkeppni U.Í.A. lokið og það var Einherji sem varð bikar- meistari í ár. Annars urðu einstök úrslit sem hér segir: A-RIÐILL: Höttur - Egill r. 1:0 Höttur - Leiknir 1:1 Egill r. - Leiknir 2:2 Egill r. - Höttur 1:2 Leiknir - Höttur 1:0 Leiknir - Egill r. 3;l B-RIÐILL: U.M.F.B. - S.E. 1:0 U.M.F.B. - Einherji 2:4 S.E. - Einherji 1:8 S.E. - U.M.F.B. 2:7 Einherji - U.M.F.B. 4:2 Einherji - S.E. 3:0 U.M.F.B. var með ólöglegt lið og tapaði þar með öllum leikjum sínum. Efstu liðin í riðlunum urðu því: í A-riðli Leiknir, í B-riðli Einherji. Leiknir gaf úrslitaleikinn og urðu Einherjar því bikarmeistarar U.Í.A. 1986. Hlaupið fór fram laugardaginn 13. sept. í besta veðri. Hlaupið var í kring um Löginn og nokkra hringi um kauptúnið á Egilsstöðum alls um 100 km. Þegar í mark var komið síðdegis biðu tertur og annað góðgæti hlauparanna, sem nokkrar Hattarkonur höfðu bakað. Tóku menn vel til matar síns sem von var. í áheitum söfnuðust um 38 þúsund krónur. Þegar áheitum var safnað var fólki gefinn kostur á að geta hve hlaupið tæki langan tíma. Niðurstaðan varð 8 klst. og 5 sek. og gátu átta upp á 8 klst. Dregin voru út tvö nöfn af þessum átta og komu upp nöfn þeirra Unnar Hall- dórsdóttur, Miðgarði 6 og Helgu Jóhannsdóttur, Hjarðarhlíð 6 og hlýtur hvor þeirra að launum hljómplötu fyrir þúsund krónur að eigin vali. Frjálsíþróttaráð Hattar vill koma á framfæri þökkum til allra sem eitthvað lögðu af mörkum svo hlaupið gæti farið fram og svo vel tókst til sem raun varð á. ME. ISLENSKAR GETRAUNIR Sala Austfjarðafélaganna í 4. leikviku var þessi: Raðir: Heildars.: Sölul. Þróttur, Neskaupstað 1.044 5.220 1.305.00 Huginn, Seyðisfirði 832 4.160 1.040.00 Súlan, Stöðvarfirði 740 3.700 925.00 Neisti, Djúpavogi 734 3.670 917.50 Valur, Reyðarfirði 660 3.300 825.00 UÍA 0.97% af sölunni 4.010 20.050 5.012.50 Salan alls 412.319 2.061.595 515.398.75 (L ELDVARNIR s/f Reykjavíkurvegi 16 - Pósthólf 159 220 Hafnarf jörður - Sími 651675 BRUNAVARNAKERFI • Sérhæfum okkur í hönnun og uppsetningu á brunavarna- kerfum. • Búnaðurinn er viðurkenndur af Lloyd’s Norsk Veritas og Siglingamálastofnun ríkisins. • Útvegum teikningar. • Afgreiðsla af lager. • Leitið tilboða yður að kostnaðarlausu. SLÖKKVIKERFI HALON 1301 Einnig til afgreiðslu. Umboösmaöur á Vesturlandi: Eldvarnir og rafmagn Silfurgötu 19,340 Stykkishólmi. | simi: 93-8299. » O z Z) z z ÚELDVARNIRs/f Reykjavíkurvegi 16 - Pósthólf 159

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.