Austri - 25.09.1986, Qupperneq 3
Egilsstöðum, 25. september 1986.
AUSTRI
3
Sittúrhverri áttinni
Landafræði Karls Finnboga-
sonar er vafalaust besta kennslu-
bók í landafræði sem skrifuð hefur
verið á íslensku, hún var kennd í
öllum barnaskólum landsins lengi.
Höfundurinn, Karl Finnbogason,
var skólastjóri á Seyðisfirði marga
áratugi. Þessi alkunna vísa Jónasar
Hallgrímssonar stóð á fyrstu blað-
síðu bókarinnar:
Ég er kominn upp á það
allra þakka verðast
að sitja kyr á sama stað
og samt að vera að ferðast.
Fyrir 65 árum, eða svo, þegar ég
byrjaði að læra landafræði skildi ég
þessa vísu svo að Jónas hefði meint,
að þegar sest væri við að lesa og
læra landafræði, væri lagt upp í eins
konar ferðalag um heiminn, hef
raunar þennan skilning enn. Skáld-
ið í Gljúfrasteini taldi aftur á móti
að Jónas hefði átt við snúning
jarðar og það þrotlausa ferðalag.
En sleppum því.
Landafræði er skemmtileg náms-
grein og óneitanlega telst það til al-
mennrar menntunar að vita nokkur
skil á löndum og þjóðum heimsins
og það er hægt að verða fróður og
vel að sér í landafræði algerlega á
eigin spýtur, með nokkrum landa-
kortum og lestri bóka og er því
kjörið fag til sjálfsmenntunar ef svo
mætti að orði komast. Menningar-
sjóður gaf út um árabil bókaflokk
„Lönd og Lýðir“ og urðu ein 20
bindi, stórfróðlegar bækur og til í
öllum bókasöfnum og á fjölda
heimila. Átjánda bindið í þessu
safni er um Vesur-Asíu og Norður-
Afríku. Ólafur Ólafsson, kristni-
boði, skrifaði þessa bók, gáfaður
maður, víðförull og ágætlega rit-
fær. Þarna er sagt frá þeim löndum
sem oftast og daglega eru í fréttum,
Afganistan, íran, frak, Líbanon,
ísrael og smáríkjunum á Arabíu-
skaganum og Egyptalandi, Líbíu og
öðrum ríkjum Norður-Afríku. 1 og
með lýsingu á þessum þjóðum og
löndum eru líka nokkurt ágrip af
sögu þeirra, enda sögufræg, meðal
annars lönd Biblíunnar. Pað var í
írak sem Abraham bjó, sem í Bi-
blíunni heitir ýmist Babilon eða
Mesópótamía eða Kaldea. Fróðir
menn segja að um þessar mundir
séu um það bil 4.000 ár síðan Abra-
ham tók sig upp með fólk sitt og
fénað og flutti búferlum alla leið til
Egyptalands, 1.100 km leið. En það
er önnur saga. Ég var að enda við
að lesa þessa bók að nýju, mér til
fróðleiks og skemmtunar og vildi
vekja á hcnni athygli, sér í lagi
þeirra sem ckki vita að hún er til.
I’að er hægt að gera margt verra við
tómstundir en lesa um fjarlæg lönd
og fólkið sem þar býr.
**********************
Úr minnisblöðum tunglfara
Við siglum frá söndum tunglsins.
Svört er festingin þar.
Ogstefndum heim aftur hingað.
Hve hægt okkur áfram bar!
Fögur fannst mér þá Jörðin.
Hún framundan bláleit skein
rétt eins og daggardropi
dottinn af fjarlægri grein.
Hannes Pétursson
SJAUMST
I TÆKA TÍÐ
N0TUM UÚS
A DAGINN
BORN I
BILUM
ÞURFA VÖRN
Með „bílpúða"
geta börn allt frá 4 ára aldri
notað venjuleg bilbelti
iaflursætl.
fyrir landbúnað
Ábyrgðartryggingar bænda
Slysatryggingar bænda
Heimilis- og húseigendatryggingar
Heytryggingar
Gripatryggingar
Útihúsatryggingar
Vélatryggingar
Dráttarvélatryggingar
Bifreiðatryggingar
Brunabótafélag íslands
Umboósmenn um land allt.
Fiskikerin:
• östærðir: 310 I, 5801,
6601, 760 log 10001.
• 2 verðflokkar
Notkunarsvið:
Smábátar, landróðrar-
bátar, humarbátar,
gámaflutningar,
saltfiskvinnsla og ýmiss
konar önnur vinnsla.
Vörupallarnir:
• 3 stærðir:
80 sm x 120 sm,
100 sm x 120 sm,
og „togarapallur“,
89smx 108,5 sm,
sérhannaður fyrir 70 I
og 90 I fiskikassa.
Aðrar framleiðsluvörur
okkar:
Flotbryggjur, tunnur,
tankar, brúsar fyrir
matvælaiðnað og
einangrunarplast.
•Viðgerðarþjónusta.
BORGARPLASTIHF
Vesturvör 27, Kópavogl
Slml: 91-46966
- FRÁBÆR PAKKI —
Flug og bíll til Reykjavíkur
ódýrara en þig grunar.
Notfærið ykkur þægindin.
Upplýsingar á
Ferðamiðstöð Austurlands
0 97-1510 - Egilsstöðum
FLUGBÍLL!
,,x&
eíu •
a^1
fyrirliggjandi
Kaupfélag Héraðsbúa
2001. 23.700.-
2751. 26.500.-
3801. 29.700-
Dönsk gæðavara
Góðir
greiðsluskilmálar