Austri


Austri - 25.09.1986, Side 4

Austri - 25.09.1986, Side 4
4 AUSTRI Egilsstöðum, 25. september 1986. Kynning á frambjóðendurr Framsóknarflokksins í Austurlandskjc til prófkjörs, sem fram fer í Valaskjálf 4. októfc Birnir Bjarnason Ég er fæddur 3. júli 1940 í Reykja- vík þar sem ég ólst upp, ég er því borgarbarn frá blautu barnsbeini. Foreldrar mínir eru Bjarni Bjarna- son, brunavörður og Ósk Svein- björnsdóttir. Ég lauk stúdendsprófi frá Land- búnaðarskólanum í Kaupmanna- höfn 1967. Á skólaárunum vann ég eins og skólastrákar gera, ýmist við sjó eða í sveit en ég hef verið dýra- læknir frá 1967. Hvað félagsstörfin varða, þá eru þau nokkur, helst er að nefna að ég hef setið í hrepps- nefn tvö kjörtímabil hér á Höfn og var oddviti Hafnarhrepps annað þeirra, formaður Kaupfélags Aust- ur-Skaftfellinga frá 1979 og núver- andi formaður Dýralæknafélags íslands. Kona mín er Edda Flygenring, við eigum þrjú börn, Sigrúnu Birnu, Garðar Ágúst og Hildi Björgu. Við búum að Hlíðartúni 41, Höfn. Einar Baldursson Nafn mitt er Einar Baldursson og ég er fæddur 25. ágúst 1949 í Loðmundarfirði en var alinn upp á Sléttu í Reyðarfirði. Faðir minn var Baldur Einarsson og móðir mín, Guðbjörg Sigurjónsdóttir. Ég lauk prófi frá Eiðum og fór svo í kennaraskólann og hef mikið stundað kennslu síðan. Nú í dag rek ég fyrirtækið, Austursíld hf. á Reyðarfirði. Eins og aðrir þar stundaði ég ýmis störf á skólaár- unum bæði til lands og sjávar. Ég sat í sveitarstjórn frá 1978-8ó hér á Reyðarfirði og á vegum Eramsóknarflokksins hef ég sinnt ýmsum störfum var t.d. í stjórn S.Ú.F. í fjögur ár og í stjórn K.S.F.A. og þar af formaður í eitt ár. Núna síðustu árin í miðstjórn. Svo eru auðvitað önnur félagsmál, s.s. Lions og fleira. Eiginkona mín er Anna Ingvars- dóttir og eigum við 3 börn, Aðal- björgu, Baldur Martein og Láru Björk. Við búum að Heiðarvegi 25b á Reyðarfirði. Guðrún Margrét Tryggvadóttir Ég er fædd 7. júní 1946. For- eldrar mínir eru Jóhann Tryggvi Jónsson og Ólafía Andrésdóttir. Ég er fædd og uppalinn í Hafnar- firði. Hvað nám varðar þá fór ég að afloknum grunnskóla í Kvenna- skólann og tók landspróf þaðan, síðan tók ég stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík. Síðan fór ég í meinatækninám í Tækniskólanum og lauk prófi þaðan 1969. Starfsferill minn hófst í fiskvinnu fram til 15 ára aldurs á sumrin og svo vann ég í Kaupfélagi Hafnfirð- inga. Um 1970 var ég ráðin sem meinatæknir við Heilsugæslustöð- ina hérna á Egilsstöðum og hef verið þar síðan. Pað hefur verið upp úr 1980 sem ég fór að starfa eitthvað í pólitík og hef verið talsvert í því síðan. Ég fór í framboð til sveitarstjórnarkosn- inga á Egilsstöðum 1982 og síðan í framboð til alþingiskosninga 1983 og lenti þar í fjórða sæti. Síðan þá hef ég setið tvisvar á þingi sem varamaður, fyrst í maí-júní 1985 og svo aftur í mars-apríl 1986. Ég er formaður Framsóknarfélags Egils- staða og er núna varaþingmaður og ég hef einnig gegnt starfi formanns fræðsluráðs Austurlands þar til núna. 4>4aki minn er Haraldur Hrafn- kelsson og við eigum 3 börn, en þau eru, Dagrún Björk, ÓlafurTryggvi og Eyrún Harpa. Við búum að Tjarnarbraut 17, Egilsstöðum. Halldór Ásgrímsson Nafn mitt er Halldór Ásgríms- son og er fæddur 8. september 1947 á Vopnafirði og uppalinn þar og á Höfn í Hornafirði. Foreldrar mínir eru Ásgrímur Halldórsson fram- kvæmdastjóri og Guðrún Ingólfs- dóttir. Ég útskrifaðist úr Samvinnu- skólanum 1965 og lauk námi sem löggiltur endurskoðandi 1970 og svo framhaldsnám við Verslunar- háskólann í Bergen og í Kaup- mannahöfn á árunum 1971-73. Á skólaárunum vann ég við ýmis störf til sjávar og sveita. Að skólaárum loknum var ég lektor við Háskóla íslands frá 1973-75, þingmaður Austfirðinga frá 1974 og sjávarút- vegsráðherra frá 1983. Éélagsstörf mín hafa fallið mest saman við mitt aðalstarf en ég var ungur að árum þegar ég varð þingmaður. Kona mín er Sigurjóna Sigurðar- dóttir og við eigum þrjár dætur sem heita, Helga, Guðrún Lind og íris Huld. Lögheimili mitt er að Skólabrú 1, Höfn Hornafirði. Jón Halldór Kristjánsson Ég er fæddur 11. júní 1942 að Stóragerði í Skagafirði. Foreldrar mínir eru Kristján Jónsson, bóndi og Ingibjörg Jónsdóttir. Ég stundaði nám við Héraðsskól- ann í Reykhölti og tók landsprófið þaðan á sínum tíma. Þar næst fór ég í Samvinnuskólann í Bifröst og útskrifaðist þaðan 1963. Ég vann verslunarstörf hjá Kaupfélagi Skag- firðinga á skólaárunum. Einnig vann ég eins og títt var þá, í vega- vinnu, sláturhúsi, landbúnaðar- störf og í síld og síðan réðist ég til Kaupfélags Héraðsbúa sem versl- unarstjóri árið 1963 og vann þar samfleytt við það til 1978, en þá var ég ráðinn sem félagsmálafulltrúi á sama stað, var í því starfi í 5 ár eða þangað til ég tók sæti á Alþingi þegar Tómas Árnason gerðist seðl- abankastjóri, var varamaður og tók fyrst sæti á Alþingi 1978 og tók síðan sæti árið 1984 sem aðalmað- ur. Ég hef verið í ýmsum félögum sem hafa verið á vegum Framsókn- arfélagsins í mínu byggðarlagi, fyrir Kjördæmasambandið hef ég einnig unnið, hef verið ritstjóri Austra frá 1974. Ég er í ýmsum öðrum félagsstörfum, var sýslu- nefnarmaður fyrir Suður-Múla- sýslu um nokkurra ára skeið. Hef verið í starfsmannafélögum sam- vinnuhreyfingarinnar og verið stjórnarmaður í Landssambandi samvinnustarfsmanna. Nú síðast er ég stjórnarformaður K.H.B. Ég hef verið endurskoðandi Byggðar- sjóðs um nokkurra ára skeið og er núna endurskoðandi Fram- kvæmdasjóðs íslands. Einnig hef ég tekið þátt í margs- konar annarri félagsstarfsemi. Maki minn er Margrét Einarsdóttir frá Egilsstöðum, börn eru Viðar, Ásgerður Edda og Einar Kristján . Ég hef lögheimili á Bláskógum 14 á Egilsstöðum, en núverandi dval- arstaður minn er Asparfell 12 í Reykjavík, bý þar yfir veturinn á meðan þingstörf standa yfir. Jónas Hallgrímsson Ég er fæddur 19. apríl 1945 og ég er fæddur og uppalinn á Siglufirði og flutti 11 ára til Reykjavíkur. Foreldrar mínir heita Hermína Guðrún Sigbjörnsdóttir og Hall- grímur Elías Márusson. Hvað menntun varðar þá var ég mjög latur að læra framan af og því til sönnunar þá náði ég ekki lands- prófi nema með skömm, síðan er ég gagnfræðingur frá Gagnfræði- skólanum á Siglufirði. Par næst tók ég verslunarpróf frá Verslunar- skóla íslands og þaðan tók ég upp á því að fara í Búnaðarháskólann í Hólum f Hjaltadal og er það ein besta menntunin sem ég hef fengið um dagana og svo er það að sjálf- sögðu þessi sígilda og langbesta menntun, lífsmenntun. Ég var bóndi í 4-5 ár norður í Arnarnesi við Eyjafjörð og sam- hliða því var ég við verkstjórn hjá verktökum á Reykjavíkursvæðinu. Svo um 1969 þá fór ég til starfa hjá Álafossi fyrst sem innkaupastjóri og tveim árum seinna tók ég við stöðu deildarstjóra útflutnings- verslunar Álafoss til ársins 1973, en þá um haustið fór ég sem bæjar- stjóri til Seyðisfjarðar og var í því skemmtilega starfi til 1984 og þá um sumarið stofnuðum við fyrir- tæki sem heitir Austfar hf. og síðan hef ég verið framkvæmdastjóri þess. í félagsmálum hef ég lítið verið í pólitík, var að vísu í framboði til sveitarstjórnarkosninga í vor og það er það eina sem ég hef verið í pólitík. Ég sat í stjórn Sambands sveitarfélaga og var formaður þar um skeið. Síðan hef ég setið frá upphafi í svokallaðri Vest-Nordan nefnd sem annar fulltrúi íslend- inga, en Vest-Norden er samstarf Grænlendinga, íslendinga og Fær- eyinga um ferðamál. Svo hef ég haft þá ánægju að stjórna ferða- málanefnd Vest-Norden og hún er að uppskera ríkulega þessa dag- ana, en ég var einmitt að opna 200 manna sýningu í morgun (19.9) og svo hefur maður tekið þátt í alls- kyns annarri félagstarfsemi. Kona mín heitir Svava Friðrika Guðmundsdóttir frá Arnarnesi við Eyjafjörð. Við eigum saman 4 börn, Heiðrúnu Sólveigu, Hall- grím Má, Gunnhildi Helgu og Sig- urbjörgu Jóhönnu. Við búum á Öldugötu 14 á Seyðisfirði. Sigurður Jónsson Ég er fæddur 31. maí 1958 og er fæddur og uppalinn á Hánefs- stöðum, Seyðisfirði. Foreldrar mínir eru Jón Sigurðsson og Svan- björg Sigurðardóttir. Ég tók landspróf frá Reykholti 1974 og því næst tók ég stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1978 og síðan er ég byggingaverkfræð- ingur frá Háskóla íslands 1982. Ég hef unnið við landbúnað og svo hef ég unnið við ýmsa bygginga- vinnu og hef unnið sem verkfræð- ingur hjá Verkfræðistofu Austur- lands. Ég hef stundað ýmis félagsstörf í skóla, m.a. einn stofnenda og fyrsti formaður, Félags Umbótasinnaðra Stúdenta í Háskóla íslands 1981- 1982. Hef verið í stjórn Sambands ungra framsóknarmanna frá 1982. Ég var fyrsti varamaður í hrepps- nefnd Seyðisfjarðarhrepps, aðal- fulltrúi á þing SSA, aðalfund Iðn- þróunarfélags- og Iðnþróunarsjóðs Austurlands. Ég er ógiftur og bý á Hánefs- stöðum, Seyðisfirði. Vigdís Magnea Sveinbjörnsdóttir Ég heiti Vigdís Magnea Svein- björnsdóttir og er fædd ll.janúar 1955 í Reykjavík. Par ólst ég upp til 12 ára aldurs, en þá flutti fjöl- skyldan í Garðabæ. Foreldrar mínir eru Pálína Hermannsdóttir húsmóðir og Sveinbjörn Dagfinnsson ráðuneyt- isstjóri í landbúnaðarráðuneytinu. Ég tók landspróf við Gagnfræða- skóla Garðabæjar og settist að því loknu í Menntaskólann við Hamra- hlíð og lauk þar stúdentsprófi 1974.

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.