Austri - 25.09.1986, Page 5
Egilsstöðum, 25. september 1986.
AUSTRI
5
I
jrdæmi
>er 1986
Um haustið sama ár hóf ég nám í
íslensku og málvísindum við Há-
skóla íslands, en hvarf frá því námi
og settist í Kennaraháskólann vet-
urinn eftir. Þaðan Iauk ég kennara-
prófi 1978.
Meðan ég var í skóla stundaði ég
ýmsa vinnu á sumrin, Iengst þó sem
gjaldkeri við Búnaðarbanka
íslands. Fyrst eftir að námi lauk
starfaði ég áfram við Búnaðar-
bankann á Egilsstöðum. Haustið
1980 fór ég að kenna við Mennta-
skólann á Egilsstöðum og kenndi
þar í 3 vetur. S.l. vetur hóf ég síðan
störf hjá vikublaðinu Austra. Auk
þessara starfa hef ég frá því ég
stofnaði mitt heimili verið í því
margrómaða en misjafnlega metna
húsmóðurstarfi.
Ég hef starfað í ýmsum félögum
sem tengjast áhugamálum mínum.
Ég fór að starfa með Framsóknar-
mönnum á Egilsstöðum 1982 og sat
í sveitarstjórn Egilsstaðahrepps
fyrir Framsóknarflokkinn 1982-
1986. Ég er nú formaður Fram-
sóknarfélags Fljótsdalshéraðs og
sit í miðstjórn Framsóknarflokks-
ins.
Ég er gift Gunnari Jónssyni
bónda á Egilsstöðum og eigum við
tvo syni, Kára Sveinbjörn f. 23.
okt. 1978 og Baldur Gauta f. 1.
apríl 1983. Við búum á Egils-
stöðum í Egilsstaðahreppi
Þórdís Bergsdóttir
Nafn mitt er Þórdís Bergsdóttir
og er fædd á Ketilsstöðum á
Völlum 7. júlí 1929. Foreldrar
mínir voru, Sigríður Hallgríms-
dóttir frá Ketilsstöðum og Bergur
Jónsson bóndi þarfrá Egilsstöðum.
Nám stundaði ég í Menntaskól-
anum á Akureyri í tvo vetur auk
þess eitt og hálft ár utanskóla. Á
skólaárunum vann ég við landbún-
aðarstörf og önnur þau störf sem til
falla í sVeitum ásamt störfum við
veitingarekstur, en foreldrar mínir
ráku sumargistihús á þeim árum,
síðar skrifstofustörf hjá Pósti og
síma, póstmaður ásamt eftirlits-
störfum við fiskvinnslu. Núverandi
störf, póstmaður og heilbrigðisfull-
trúi (með starfsréttindum) hjá
Sey ðisfj arðarkaupstað.
Að ógieymdu hef ég rekið fyrir-
tæki, síðan ég gifti mig, sem kallast
heimili og var um tíma heimavinn-
andi húsmóðir.
Félagsmál: Fyrir utan störf í
áhugamannafélögum, hef ég séð
um framkvæmdastjórn fyrir Orlof
húsmæðra á Austurlandi síðan
1973, bæjarfulltrúi fyrir Framsókn-
arflokkinn á Seyðisfirði frá 1974
þar til s.l. vori en starfa þar enn í
nokkrum nefndum.
Innan SSA hef ég starfað í fræð-
sluráði nokkur ár þar af formaður
í tvö ár, á nú sæti í samgöngunefnd.
Á s.l. vori var ég kjörin í stjórn
Kaupfélags Héraðsbúa og uni mér
vel í því karlasamfélagi.
í miðstjórn Framsóknarflokksins
um árabil og ein af stofnendum
Landssambands framsóknarkvenna
og í landsstjórn þeirra samtaka
fyrir Austurland frá upphafi.
Eiginmaður minn er Tómas
Emilsson frá Stuðlum í Reyðar-
firði, við eigum 6 börn. Þau heita,
Bergur, Sigurður, Hildur Þuríður,
Þórdís, Emil og Tómas.
Núverandi heimili er Öldugata
11, Seyðisfirði.
A.
Þórhalla Snæþórsdóttir
Nafn mitt er Þórhalla Snæþórs-
dóttir. Ég er fædd 24. nóvember
1946. Faðir minn var Snæþór Sigur-
björnsson, bóndi og móðir mín Sig-
urbjörg Sigbjörnsdóttir, ég er fædd
og uppalin í Gilsárteigi í Eiðaþing-
há. Ég tók landspróf frá Eiðum,fór
síðan í húsmæðraskóla og svo í
Hótel og veitingaskóla íslands,
lauk þaðan prófi á matreiðslumanns-
sviði. Seinna fór ég í Eiða og þá á
viðskiptabraut.
Mikið til þann tíma sem ég hef
ekki setið á skólabekk hef ég
starfað við skólana á veturna sem
skólabriti, á sumarhótelunum á
sumrið bæði sem kokkur og sem
hótelstjóri. Ég tók við framkvæmda-
stjórn og umsjón vikublaðsins
Austra þegar Jón Kristjánsson fór
á þing.
í félagsstörfum var ég ekki mikið
framan af, en eftir að ég kom í Eg-
ilsstaði hef ég unnið með JC-Hérað
sem ég lít á sem góðan félagsmála-
skóla. Ég fór fyrst á kjördæmaþing
1982 á Hallormsstað og er það með
því fyrsta sem ég starfa í pólitík og
1984 var ég kosin í stj órn Kj ördæma-
sambandsins þá sem gjaldkeri og
1985 tók ég við starfi formanns þess
og síðustu tvö árin þá hefur fléttast
saman vinnutími minn og sá tími
sem ég hef unnið að félagsmálum,
ýmist fyrir Austra eða fyrir sam-
bandið sem slíkt.
Ég er fráskilin og á tvö börn,
Guðbjörgu Fjólu og Snæþór Sigur-
björn. Við búum að Miðgarði 6,
Egilsstöðum.
VINNINGUR: OPEL KADETT-BIFREIÐ AÐ VERÐMÆTI KR. 425.000.-
Þau annast sölu á eftirtöldum stööum.
Vopnafirði: Kristján Magnússon
Borgarfirði: Björn Aðalsteinsson
Seyðisfirði: Þórdís Bergsdóttir
Mjóafirði: Sigfús Vilhjálmsson
Norðfirði: Guðmundur Ármannsson
Eskifirði: Emil Thorarensen
Reyðarfirði: Einar Baldursson
Fáskrúðsfirði: Þórunn Stefánsdóttir
Stöðvarfirði: Ólafur Guttormsson.
Breiðdalsvík: Jóhanna Guðmundsdóttir.
Djúpivogur: Þórarinn Pálmason.
Höfn: Páll Helgason, Stóra-Bóli.
Egilsstaðir: Guðrún Tryggvadóttir.
Fljótsdalshérað: Vigdís Sveinbjörnsdóttir.
Útgefnir miðar 1000.
Verð miða kr. 1000.
Upplýsingar í
S 2291/3834/1584
Dregið 1. nóvember 1986
(Einungis úr seldum miðum)
SKYNDIHAPPDRÆTTI K.S.F.A.
Ályktanir og tillögur aðalfundar SSA á
Egilsstöðum 28. - 29. ágúst 1986
(Hluti)
Tillaga um dreifbýlisnefnd á vegum
Sambands íslenskra sveitarfélaga
20. aðalfundur SSA haldinn á
Egilsstöðum 28. og 29. ágúst 1986,
beinir þeim tilmælum til Sambands
íslenskra sveitarfélaga að á vegum
þess starfi „dreifbýlisnefnd" á sama
hátt og undanfarin ár, og stjórnum
landshlutasamtaka sveitarfélaga
verði falið að tilnefna í nefndina
einn mann úr hverju kjördæmi
(utan Reykjavíkur), eins og gert
var fyrir tveimur árum.
Tillaga um skólaakstur og fleira
Aðalfundur SSA, haldinn á Eg-
ilsstöðum 28. og 29. ágúst 1986,
varar eindregið við hugmyndum
menntamálaráðherra um stórkost-
legan niðurskurð á framlögum ríkis
til skólaaksturs, heimavistargæslu
ogrekstursskólamötuneyta. Fund-
urmn telur ekki óeðlilegt að þessi
’ iál séu tekin til endurskoðunar
með hagkvæmnissjónarmið í huga,
en minnir á að mörg sveitarfélög
eru ekki í stakk búin til að mæta
auknum útgjöldum vegna reksturs
grunnskóla nema til komi nýir
tekjustofnar til að mæta þeim
kostnaði.
Tillaga um jöfnunarsjóð sveitarfé-
laga
Aðalfundur SSA, haldinn á Eg-
ilsstöðum 28. og 29. ágúst 1986,
telur nauðsynlegt að við endur-
skoðun laga um tekjustofna sveit-
arfélaga verði ákvæðin um Jöfn-
unarsjóð tekin til sérstakrar endur-
skoðunar með eftirfarandi í huga:
a. Tekjum sjóðsins verði breytt
þannig að þær verði ákveðinn
hundraðshluti af heildartekjum
ríkissjóðs, þannig að þær breyt-
ist ekki við innbyrðis breytingar
á tekjustofnum ríkisins.
b. Jöfnunarsjóðsframlag til þeirra
sveitarfélaga sem veita afslátt
frá hámarksnýtingu tekjustofna
verði skert sem því nemur á
svipaðan hátt og nú er gert varð-
andi aukaframlög Jöfnunar-
sjóðs.
c. Aukaframlög verði í auknum
mæli notuð til að jafna tekjur
sveitarfélaga.
Tillaga um framhaldsnám í sér-
kennslu
Aðalfundur SSA, haldinn á Eg-
ilsstöðum 28. og 29. ágúst 1986, í-
trekar stuðningsyfirlýsingu sína
frá síðasta aðalfundi, um nauðsyn
og mikilvægi þess, að komið verði
á fót framhaldsnámi í sérkennslu
fyrir kennara á Austurlandi.
Fundurinn skorar á menntamála-
ráðherra að veita heimild til þess að
námið geti hafist vorið 1987 í sam-
ræmi við áætlun Fræðsluskrifstofu
Austurlandsumdæmis.
TiIIaga um flugmál
Aðalfundur SSA, haldinn á Eg-
ilsstöðum 28. og 29. ágúst 1986, í-
trekar tillögu frá síðasta aðalfundi
um flugmál og uppbyggingu Egils-
staðaflugvallar, þar sem skorað er
á samgönguráðherra og ríkisstjórn
að tryggja fjármögnun svo hraða
megi framkvæmdum og auka þann-
ig öryggi flugsamgangna í fjórð-
ungnum.
Tillaga um heilbrigðiseftirlit
Aðalfundur SSA, haldinn á Eg-
ilsstöðum 28. og 29. ágúst 1986,
samþykkir að beina því til sveitar-
félaga á Austurlandi að gera átak í
því að bæta heilbrigðiseftirlit.
Þá samþykkir aðalfundurinn að
stefna að því að ráðinn verði full-
menntaður heilbrigðisfulltrúi til
starfa í fjórðungnum árið 1988.
Jafnframt er skorað á heilbrigðis-
ráðherra að beita sér fyrir því að
heilbrigðiseftirlit á landsbyggðinni
verði styrkt á fjárlögum, þar sem
m.a. mikill ferðakostnaður tor-
veldar eftirlitið.
Greinkrgerð:
Hreint og heilnæmt umhverfi eru
mannréttindi sem þarf að standa
vörð um. Virkt heilbrigðiseftirlit er
nauðsynlegt til þess að svo megi
verða. Þá á matvælaiðnaður fjórð-
ungsins allt sitt undir því að hrein-
lætismál séu í góðu lagi.
Þessu eftirliti verður ekki sinnt
sem skyldi án þess að fenginn verði
til starf menntaður heilbrigðisfull-
trúi í fjórðungnum.
Ef gjaldskrá fyrir heilbrigðiseft-
irlitið er nýtt, eiga sveitarfélögin að
hafa tekjur sem koma á móti því
gjaldi sem þau þyrftu að leggja til
SSA, sem yrði vinnuveitandi slíks
starfsmanns í nafni sveitarfélag-
anna í fjórðungnum.