Austri


Austri - 09.06.1988, Blaðsíða 3

Austri - 09.06.1988, Blaðsíða 3
Egilsstöðum, 9. júní 1988. AUSTRI 3 Pistillinn f | Sigurjón (V y Friðriksson lj Forsetakjör Það undur hefur nú gerst að mót- framboð hefur komið fram við kjör til forseta íslands, en eins og kunn- ugt er hefur frú Vigdís Finnboga- dóttir gefið kost á sér til endurkjörs þriðja kjörtímabilið. Ég held að engir hafi reiknað með mótfram- boði nú, sem heldur aldrei hefur gerst í sögu lýðveldisins þegar starfandi forseti hefur gefið kost á sér til endurkjörs. Þetta tiltæki er þeim mun ósmekklegra þar sem í hlut á kona sem á síðustu dögum framboðs- frests býður sig fram gegn Vigdísi, sem fyrst kvenna var kjörin forseti í lýðræðisríki og hefur að flestra dómi staðið sig frábærlega vel í forsetaembættinu. Hún er í senn svo alþýðleg og höfðingleg í allri framkomu og sínum embættisverk- um að vakið hefur athygli almenn- ings í landinu. Þá hefur hún borið hróður þjóðarinnar út um allan heim og alls staðar eftir henni tekið hvar sem hún fer sökum hæfileika hennar og glæsileika. Þar sem túlkun lýðræðisins er hér teygð til hins ýtrasta með þessu framboði, svo jaðrar við misnotk- un, er ekki annað að gera en bregð- ast við þessari óvæntu uppákomu með því að neyta atkvæðisréttarins í væntanlegum kosningum 25. júní, og sýna frú Vigdísi verðugt traust með því að tryggja henni glæsilega kosningu. Nú er kominn sá tími að fólk er mikið á faraldsfæti og er því áríð- andi að allir muni eftir utankjör- staðaatkvæðagreiðslu, sem ekki verða heima á kjördag. Því heiti ég á alla sem vilja halda forsetaem- bættinu utan pólitísks loddara- skapar og fáránleika, sem þetta mótframboð er, að vísa því eftir- minnilega á braut með því að tryggja forseta vorum 100% kosn- ingu. Ökuleikni Bindindisfélag ökumanna held- ur í sumar, eins og endranær, keppni í ökuleikni, og verður keppt á 40 stöðum á landinu. Ökuleiknin skiptist í tvo þætti, umferðaspurningar og þrautaakst- ur, og þar er það leiknin sem máli skiptir, ekki hraðinn. Ökuleikn- inni er skipt í kvenna- og karla- riðla en reiðhjólakeppni er skipt eftir aldri, 9-11 ára og 12 ára og eldri. Föstud. 10. júní hefst hringferð um landið. Fyrst verður keppt á Hellu og daginn eftir á Höfn. Sigurvegarar úr karla- og kvennariðlum munu fara í úrslita- keppnina þann 3. sept. n.k. og þar er utanlandsferð í verðlaun. Sá sem ekur villulaust um þrauta- planið í keppninni, hlýtur MAZDA bíl að launum. Kaupfélag Héraðsbúa auglýsir Nýbreytni í viðskiptaháttum Sama verð og í Reykjavík, enginn flutnings- eða vátryggingarkostn- aður. Héðan í frá færðu eftirtaldar vörur á Reykjavíkurverði hjá okkur: Candy: ísskápar, frystikistur, þvottavélar, uppbvottavélar^~ . Pfaff: Saumavélar, saumaborð. ^ Braun: Kaffikönnur, hrærivélar. ^ J J L} J J Starmix: Ryksugur. 0 p jj j"| Starmíx Ger'ðsvovel aðreynaviðskiptin. NESVlDEÓ S 71780 AUSTFIRÐINGAR Munið sundráðstefnuna í Valaskjálf n.k. laugardag kl. 14:00. Dagskrá: Formaður U.í.A setur ráðstefnuna Stuttar framsögur flytja: Ólafur Sigurðsson íþróttakennari Neskaupstað: Skóla og íþróttasund. Þorvaldur Jóhannsson bæjarstjóri Seyðisfirði: Rekstur sundlauga. Már Sveinsson formaður Sundráðs U.í.A.: Hollustuhættir sundlaugavatns. Guðfinnur Ólafsson formaður Sundsambands íslands: Uppbygging sunds sem keppnisíþróttar og tengsl Sundsambands íslands við Héraðssamböndin. Allir sem vilja aukinn veg sundíþróttarinnar og breytta þróun sund- mála á Austurlandi eru hvattir til að koma og taka þátt í ráðstefnunni. Ungmenna og íþróttasamband Austurlands og Sundsamband íslands. Vefnaðarvörudeild.: Joggingfatnaður á alla fjölskylduna. Sportskór og kínaskór í öllum stærðum. Gardínuefni í úrvali.fá Búsáhaldadeild: Sólstólar, sólbekkir og borð. Ferðaborð m/4 stólum. Gasgrill, kolagrill, grilláhöld. Veiðivörur í úrvali. KHB Egilsstöðum Vopnfirðingar - Nágrannar - Ferðafólk Hjá okkur fáið þið allt fyrir ferðalagið og útileguna. Alls konar viðlegubúnaður: S.s. tjöld, svefnpokar, ferðasett o.fl. Útigrill, kol og auðvitað kjötið á grillið. í söluskála er opið alla daga frá 8-23. Þar erum við með alls kyns smávörur fyrir bílinn, bensín, olíur. Auk þess alla algenga matvöru. Kaupfélag Vopnfirðinga Vopnafirði

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.