Austri - 03.05.1990, Síða 6
Egilsstöðum, 3. maí 1990.
17. tölublað.
Fimmtugur unglingur:
Hraðfrystihús
Fáskrúðsfjarðar bauð
til hátíðardansleikjar
Þann 25. apríl síðastliðinn héit
Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar hf.
upp á 50 ára afmæli sitt með há-
tíðardansleik í Skrúð.
Að sögn Gísla Jónatanssonar,
kaupfélagsstjóra, var þangað
boðið öllu starfsfólki frystihússins
og félagsmönnum kaupfélagsins
með mökum, auk annarra vel-
unnara fyrirtækisins. Var öllum
boðið upp á veitingar og síðan var
haldinn dansleikur, þar sem Tríó
Eyþórs lék fyrir dansi. Var þessi
hátíðardansleikur vel sóttur og
þótti takast hið besta.
Bæði Hoffellið og Ljósafellið
voru í landi á laugardaginn, og
tóku skipshafnir þeirra þátt í
skemmtuninni. Hoffellið kom inn
á laugardaginn og landaði þá 80
tonnum af fiski og Ljósafellið
landaði 120 tonnum af fiski á mið-
vikudaginn í síðustu viku. Var
uppistaðan í afla beggja skipanna
þorskur. G.I.
Lóðsbátnum á Höfn
hvolfdi í ósnum
- mildi að ekki urðu mannskaðar
Lóðsbátnum á Höfn hvolfdi í
Hornafjarðarós á miðvikudag í sl.
viku og var Torfi Finnsson, skip-
stjóri, hætt kominn, en hann var
staddur í brúnni þegar báturinn
snérist skyndilega um 180 gráður.
Með Torfa um borð voru tveir
skipverjar af togaranum Þórhalli
Daníelssyni, en hann hafði tekið
niðri í ósnum daginn áður og var
lóðsinn að toga í hann þegar
óhappið varð. Mennirnir komust
allir á kjöl og var þeim bjargað af
áhöfn trillunnar Drífu sem kom á
slysstað u.þ.b. 15 mínútum eftir að
slysið átti sér stað. Ágætt veður
var þegar þetta gerðist og sakaði
mennina ekki. Orsök þess að
bátnum hvolfdi er talin vera sú að
bátinn rak fyrir straumi þegar
hann var að toga í togarann og því
kom átakið skakkt á lóðsinn.
Þegar til átti að taka virkaði sleppi-
krókur ekki og því hvolfdi
bátnum.
Hér marar lóðsinn í hálfu kafi en hann
fór alveg á hvolf þegar óhappið varð.
Á föstudaginn drógu tvær jarð-
ýtur bátinn upp í fjöru á Suður-
fjörutanga og var dælt úr honum
sjó og síðan var hann dreginn til
hafnar. Talið er mjög kostnaðar-
samt að gera við hann og eru m.a.
öll tæki og vélar mikið skemmd
eða jafnvel ónýt.
Þessum sama lóðsbát hvolfdi í
Hafnarfjarðarhöfn í fyrra og fórst
þá einn maður. Báturinn var ekki
stöðugleikaprófaður eftir þann
atburð. B.
Lóðsbáturinn Björninn kominn að bryggju eftir óhappið. Austram.lSverrir.
lomiuiiliB
munstruð steinsteypa
í stéttar og plön.
Hitaveita Egilsstaða og Fella:
Tæring í
miðlunargeymi
Miðlunargeymir Hitaveitu
Egilsstaða og Fella var tæmdur í
síðastliðinni viku til þess að hægt
væri að skoða hann innan,en slíkt
hefur aðeins einu sinni verið gert
áður frá því geymirinn var
byggður fyrir rúmum átta árum.
Við skoðunina kom í ljós að tölu-
verð úrfelling hefur sest innan á
veggi geymisins og tæringarpollar
komu í ljós. Eru þeir a.m.k. 2
milimetrar á dýpt, en geymirinn
er smíðaður úr 6 millimetra
plötustáli.
Björn Sveinsson, hitaveitu-
stjóri, segir að ekki hafi verið
ákveðið hvernig brugðist verði
við þessari tæringu en bjóst hann
þó við að geymirinn verði tæmdur
aftur í sumar og í framhaldi af því
yrði hann sennilega sandblásinn
og sementkústaður.
Mikið er í húfi fyrir hitaveituna
að lausn finnist sem kemur í veg
fyrir frekari tæringarskemmdir,
því samkvæmt heimildum Austra
kostar nýr geymir nærri 70 millj-
ónir kr.
B.
Björn Sveinsson, hitaveitustjóri, sést hér
festa á filmu tœringarskemmdir inni í
miðlunargeymi HEF í sl. viku. Innfellda
myndin sýnir tank veitunnar, en hann
rúmar um 600m3 af vatni. Ausmm.lB
Reyðarfjörður:
Snæfuglinn fekk
á sig brotsjó
Togarinn Snæfugl frá Reyðar-
firði fékk á sig brotsjó síðastliðinn
fimmtudagsmorgun, er skipið var
á veiðum í Reyðarfjarðardýpi um
50 til 60 sjómílur frá landi. Tölu-
verðar skemmdir urðu á skipinu.
Að sögn Hallgríms Jónassonar,
forstjóra Fiskverkunar Gunnars
og Snæfugls, sem gerir togarann
út, var veður ekki slæmt, er þetta
óhapp varð. Ekki urðu nein slys á
mönnum um borð eða á tækj-
abúnaði skipsins, en sjór komst í
tvo klefa í skipinu og einnig í
matsal á neðri þiljum, svo að
timburklæðning í klefunum og í
matsal eyðilagðist.
Hér mun vera um að ræða
margra milljóna króna tjón.
Skipið mun hins vegar halda
áfram veiðum eins og ekkert hafi
í skorist og er það ekki væntan-
Milljóna tjón varð á Snæfuglinum
nýverið er skipið fékk á sig brotsjó.
legt inn til löndunar fyrr en 12.
maí.
Að undanförnu hefur Snæfugl-
inn aðallega verið að veiða grá-
lúðu, karfa, ufsa og ýsu, en
þorskur vill einnig slæðast með,
þó ekki hafi verið ætlunin að
veiða hann vegna kvótans. Veið-
arnar hafa annars gengið vel, að
sögn Hallgríms. g.I.
KURL
43 tonn á beltum
Nýlega keypti Myllan sf. á
Egilsstöðum jarðýtu af stærri
gerðinni, og er hún reyndar sú
stærsta á Austurlandi. Ýtan er
43 tonn á þyngd, af gerðinni
Komatsu DÍ55 og knýr hana
nærri 400 ha. rokkur. Vélin
var keypt, lítið notuð, frá
Bretlandi og verður hún
notuð fyrst um sinn í Odds-
skarðsvegi, en Myllan sf. er
með verk fyrir Vegagerðina
þar. Eigendur Myllunnar eru
þeir Unnar Elisson og Agnar
Eiríksson. Á myndinni hér að
ofan má sjá annan af eig-
endum fyrirtækisins, Unnar
Elisson, við hlið nýju ýtunnar.
Ný hársnyrtistofa
Ný hársnyrtistofa var opnuð í
Fellabæ, fyrir fáum dögum,
undir nafninu Hárhúsið. Eig-
endur stofunnar eru Áslaug
Ragnarsdóttir og Margrét
Lilja Eðvaldsdóttir hárskerar.
Bjóða þær viðskiptavinum
sínum upp á alla almenna
hársnyrtingu s.s. klippingu,
permanent, litanir, strýpur,
djúpnæringu, skeggsnyrtingu
og rakstur. Stofan er til húsa
þar sem bókabúð Sigbjöms
Brynjólfssonar var áður, en
hún hefur flutt sig um set í
nýtt húsnæði. Á myndinni er
Margrét Lilja að snyrta hár
viðskiptavinar og sagði hún
aðspurð mikið vera að gera
hjá þeim stöllum.
Skop
Sonur minn kemur aldrei
þegar ég kalla á hann.
Hann verður áreiðanlega
þjónn þegar hann verður orð-
inn stór.
★ ★ ★
Kjötkaupmaðurinn hafði
eignast son um nóttina og var
auðvitað í sjöunda himni,
þegar hann var að segja kunn-
ingjunum frá erfingjanum:
„Hugsið ykkur“, sagði
hann, „Strákurinn er þrjú og
hálft kíló með beinum og öllu
saman.“
Speki
Vinnan hefur ekki alltaf ham-
ingju í för með sér. Hins vegar
er engin hamingja án vinnu.