Þjóðhátíðarblaðið - 01.08.1933, Blaðsíða 3

Þjóðhátíðarblaðið - 01.08.1933, Blaðsíða 3
ÞjÓðhátíðarblaðið Herjó2|sdalur. (Sungið á ÞjóðhátiÖ Vestmannaeyja 1933.) 0, hvar um alla veröld víða bvo vegleg sönghöll finst, sem hér í skjóli hárra hlíða í Herjólfsdalnum innst? Þar kátir fuglar kvaka frá klöpp og sjó, og breiðum vængjum blaka í bjarga tó. Hve mjúkt og hlýtt er gólfið græna, þar glitra blómin smá, mót blárri hvelfing björgin mæna svo brött og tignarhá. Sér dreifa hvítar kindur um klett og grund. Hér syngur sær og vindur og sveinn og sprund. Hér syngur hver með sinum rómi, og sóíin roðar tjöld, og dalur fyllist fögrum hljómi um fagurt sumarkvöld, og börn með ljúfu lyndi þar leika sér. Hvar er að finna yndi, ef ekki hér? Sigurljörn Sveinsson. Ben. G. Waage, forstti I. S. I. mun dvelja hér um Þjóðhátíðina sem gestur knattspyrnufél. „Týr“. — Mun hann vígja hina nýju hlaupabraut. í Herjólfsdal. — íþróttastefnan. Em Bennó. Höfuðmarkmið íþróttanna, er ekki það að bera sigur úr bítum í kappraunum eða að vinna verðlaun, silfur- bikara og verðlaunapeninga. Og eigi heldur það, að verða methafi í einhveni íþrótta- grein. Nei, höfuðmarkmið í- þróttahreifingarinnar er ann- að og meira en þetta. Það er fyrst. og fremst það, að líkamsíþróttirnar verði al- menningseign, að allir eigi á uppvaxtarárunum kost á því, að læra einhverja góða og nytsama íþrótt, að allir Islendingar verði góðum iþróttum búnir, iþröttum, sem geta orðið þeim veganest.i í lífinu og lífsbaráttunni. — Það eru hin uppeldislegu áhrif líkamsiþrótt- anna, sem mestu máli skifta fyrir þjóð vora, og þess vegna á að leggja langtum meiri áherzlu á líkamsiþróttir og útivist i skólum vorum, en gert hefir verið hingað til. Og að því marki verður að stefna, að allir borgarar landsins fái þá líkams- menntun, sem þeim hentar bezt, og nauðsynlegt verður að teljast fyrir allan æskulýð landsins og framtíðarheill þjóðarinnar. Og þess vegna verður að vinna að því á allan hátt, og gera mönnum sem skiljanlegast, að oss ríður eigi hvað minnst á því, að gera líkama vorn, sem hæfastan bústað fyrir hina ódauðlegu sál vora. — En þetta er eitt af mikilverðustu markmiðum íþróttahreifingar- innar. — Verðlaunin, sem veitt eru á íþróttamótunum, eru aðeins örlítill þátf.ur í þessu menningarstaifi, og til þess gjör, að benda unglingunum á leiðina til hreinlætis og hreysti, hvetja þá til þess að temja sér hollar og nytsamar líkamsíþróttir á uppvaxtarárunum. Að vísu er þetta erfið leið, og vandfarin, þvi margur unglingurinn hugsar meira um verðlaunin, en þroskagildi íþiótt.anna fyrir ein- staklinginn og þjóðarheildina. Og komið hefir það fyrir, því miður, að menn hafa of tamið sig og ofreynt. vegna væntanlegra verðlauna. — En kapp er bezt með forsjá í þessum efnum sem öðrum. Þessa skyldu hinir ungu íþróttamenn oftlega minn- ast., þvl til lítils eru sigurvinningarnir og verðlaun- Allir kaupa Þjóðhátíðarblaðið.

x

Þjóðhátíðarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðhátíðarblaðið
https://timarit.is/publication/1476

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.