Austri


Austri - 26.08.1993, Qupperneq 1

Austri - 26.08.1993, Qupperneq 1
Beinn innflutningur ■betra verð! Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum Eskifjörður - Reyðarfjörður: Læknarnir komnir til starfa á ný Ófremdarástand, sem verið hef- ur, á læknisþjónustu á Reyðarfirði og Eskifirði er nú á enda. þar sem deila lækna á svæðinu við heil- brigðisyfirvöld hefur verið til lykta leidd. Læknarnir Auðbergur Jóns- son og Björn Gunnlaugsson hafa dregið uppsagnir sínar til baka og hafið störf á ný bæði á heilsugæslu- stöðinni og dvalarheimilinu Huldu- hlíð. Frá því að læknamir hættu störfum um mánaðarmót júlí -ágúst var afleysingalæknir þar fram undir miðjan mánuð en eftir það þurftu íbúar á svæðinu að leita til vakthaf- andi lækna á Egilsstöðum og í Nes- kaupstað um læknishjálp. Deilan sem fyrr um getur er þannig til komin, að læknar við heilsugæslu- stöðina hafa haft lyfsöluleyfi á hendi sem þeir ekki fengu endur- nýjað um síðustu áramót. Við missi lyfsöluleyfisins rýrnuðu kjör þeirra sem leiddi af sér ósamkomulag við heilbrigðisyfirvöld með þeim lykt- um, að læknamir sögðu störfum sínum lausum. Samningar hafa nú náðst og sagði Jón Guðmundsson, stjómarformaður heilsugæslustöðv- arinnar þá m.a. felast í, að læknam- ir fái til afnota vaktbíl sem að öllu leiti verður rekinn af heilsugæslu- stöðinni. Sömuleiðis halda þeir ó- skertum launum í ágústmánuði. Hvað varðar samkomulag lækn- anna við stjóm dvalarheimilisins Hulduhlíðar er þar um nokkra breytingu á launakjörum að ræða en samkomulag náðist um að hækka starfshlutfall læknanna alls úr 50% í 80%. Samningurinn hefur ekki enn hlotið staðfestingu heil- brigðisráðherra. AÞ Reyðarfjörður: Unnið við hafnarframkvæmdir Undanfarið hefur verið unnið við að hreinsa farg ofan af nýja hafnar- kantinum en bryggjukanturinn hafði sigið meira en gert hafði verið ráð fyrir í upphafi. Fargið var sett ofan á kantinn í fyrra. I sumar voru svo boðnir út þrír áfangar við höfnina. Fjarðarverk, Djúpavogi, sér um A- hluta þ.a.e.s. kantbita og kantfrágang uppá 9,5 milljónir og B - hluta sem er steinalögn uppá 1.9 milljón. Snar- virki hf. Egilsstöðum sér um raf- magnslagnir og hljóðar verkið uppá tæpar 3.2 milljónir. Var byrjað á þessum verkum fyrr í þessum mán- uði. Steinalögn verður fyrstu 20 metrana frá kanti. Stefnt er að því að þessum verkum verði lokið í haust. MM Þessi mynd var tekin síðastliðið vor við nýja hafnarkantinn á Reyðarfirði. Neskaupstaður: Ekki búið að ráða í stöðu skurðiæknis við sjúkrahúsið Ekki hefur enn verið ráðið í stöðu skurðlæknis við Fjórðungs- sjúkrahúsið í Neskaupstað. Aug- lýst var eftir tveimur læknum við sjúkrahúsið sl. vor; skurðlækni í heila stöðu og kvensjúkdómalækni í 80 % stöðu. Að sögn Kristins ívarssonar framkvæmdastjóra, er verið að vinna í þessum málum um þessar mundir. Hann sagði að ráðningar sem þessar tækju sinn tíma, t.d. þyrfti að útvega mökum vinnu og oft væri um að ræða menntað fólk sem óskaði eftir vinnu við sitt fag og það gæfi augaleið að oft væri það erfiðleikum bundið úti á landi. Kristinn sagði að málið yrði leyst með afleysingalæknum til að byrja með. Þess má geta að sami skurð- læknirinn hefur verið starfandi við sjúkrahúsið síðastliðin 17 ár. MM Fáskrúðsfjörður: Félagsheimilið Skrúður 30 ára Mikil dagskrá um allan bæ Félagsheimili Fáskrúðsfirðinga, Skrúður, á 30 ára afmæli á þessu ári. Félagasamtök á staðnum sem eiga húsið, minntust tímamót- anna með skipulagðri dagskrá um síðustu helgi. Dagskráin byrjaði á föstudaginn með knattspymu, Fáskrúðsfirðingar gegn Stöðfirðingum og Breiðdæl- ingum (öldungar). Mátti sjá þar gamlar kempur sýna snilldartakta á vellinum þó svo að yfirferðin væri ekki sú sama og áður fyrr. I Ráð- húsi Búðahrepps (gamla læknishús- inu) var sýning á gömlum myndum alla helgina, aðallega frá franska tímabilinu þar í bæ. Ótrúlegt er hve mikið er til af myndum frá þessum tíma. Hestaleiga og báta- leiga voru starfræktar alla helgina. Um kvöldið var svo unglingadans- leikur í Skrúð og þar á eftir var kveiktur varðeldur og grillað við knattspyrnuvöllinn. Á laugardaginn var farið í siglingu, m.a. út að eyj- unni Skrúð með heimaskipum. Búið var að koma fyrir stóru tjaldi við félagsheimilið og var þar starf- ræktur útimarkaður. Um kvöldið var haldinn unglingadansleikur í tjaldinu. I félagsheimilinu Skrúð var haldin gleðidagskrá í tilefni 30 ára afmælis hússins. Komu flest allar hljómsveitir (heimasveitir) sem spilað hafa í húsinu saman af þessu tilefni og skemmtu gestum. Á sunnudag byrjaði dagskráin með helgistund í kirkjunni. Eftir hádegi var haldið Suðurfjarðamót í frjálsum íþróttum. Seinna um dag- inn var haldin söngskemmtun þar sem Elín Ósk Óskarsdóttir, Kjartan Ólafsson og Guðlaug Hestnes komu fram. Alla helgina var sýn- ing í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar þar sem sýnt var handmálað postu- lín, handavinna eldri borgara, mód- el, verkfæri o.fl. frá Módelklúbbn- um Mastrið og frá félögum í Flug- módelklúbbnum Þyt. MM Nú er þungu fargi létt af Reyð- firðingum. Austurland: Mun fleiri réttindakennar- ar verða við störf en áður Á komandi skólaári verða fleiri réttindakennarar starfandi við skóla á Austurlandi en nokkru sinni áður. Að sögn Guðmundar Magnússonar fræðslustjóra Aust- urlandsumdæmis voru stöðugildin á síðasta skólaári um 135 en verða nú 156. Hann sagði að rnargir minni skólanna væru skip- aðir réttindafólki. Á nokkrum stöðum þurfti að hafna nokkrum leiðbeinendum þrátt fyrir mikla reynslu í störfum. I fyrra var hlutfall leiðbeinenda á Austur- landi rúmlega 23% en verður á næsta skólaári 15%. Fram kom að aukinn niðurskurður í mennta- málum kæmi frekar niður á lands- byggðinni og myndi kennslu- stundum fækka á Austurlandi á- samt tveimur öðrum umdæmum vegna þess að ákvæði um sam- kennslu eru nýtt til fulls. Sam- kennsla er í öllum minni skólum t.d. á Héraði, að Egilsstöðum undanskildum. MM

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.