Austri


Austri - 26.08.1993, Side 4

Austri - 26.08.1993, Side 4
4 AUSTRI Egilsstöðum, 26. ágúst 1993. Austraspurning s Sigurður O. Pálsson Hlakkar þú til að byrja í skólan- um? Hvað finnst þér skemmtileg- asta námsgreininn? Kolbrún Arna Sigurðardóttir, Egilsstöðum. Já. Mér finnst stærð- fræðin lang skemmtilegust. Anna Hlín Sigurðardóttir, Egilsstöðum. Já, það er svo gaman að reikna. Jóna Kristín Eysteinsdóttir, Hjalta- staðaþinghá. Já, ég held að mér þyki skemmtilegast í leikfimi. Pétur Ingi Eiðsson, Seyðisfirði. Já það verður ágætt. Reikningur er skemmtilegastur. Ingibjörg Eiðsdóttir, Seyðisfirði. Já og mér finnst reikningur líka skemmtilegastur. Svava Kristinsdóttir, Reykjavík. Já ég hlakka mikið til. Líffræði er uppáhaldsnámsgreinin mín. Gasprað upp í gjóluna Sumarið okkar hefur verið haust- legt það sem af er. Þó ætla ég að halda í vonina enn um sinn, og það þrátt fyrir, að ég sæi í dag á jörðu það teikn, sem ég hef löngum haft fyrir haustboðann sanna. Ég var að rölta heim til mín neðan úr bæ og viti menn: A balanum sínum norð- an undir Egilsstaðaskóla er maríu- vöndurinn tekinn að blómstra. Löngum hefur þessi síðblómga jurt lengt mér sumarið. Nú fannst mér hún vera heldur fljót á sér. Ég snöri mér við og horfði á skól- ann. Veggir hans eru orðnir hvítir eftir margra ára breytilegt litskrúð og allt í lagi með það. Undur á þessi skóli góðan nágranna þar sem maríuvöndurinn er. Einu sinni var þessi stofnun nefnd barna- og unglingaskóli, en er nú í vitund manna orðin að grunnskóla eins og öll svona fræðslusetur um allt land. Grunnskóli. Alltaf hefur mér leiðst þetta orð, sem fundið var upp fyrir aldarfjórðungi, eða svo, og troðið inn í fræðslulögin frá 1974 meðan þau voru á fósturstigi, rétt eins og þegar sá snjalli maður Jón setti nef- ið á bam nágrannakonu sinnar á miðum meðgöngutíma, sem frægt er. Ekki hefur aukist vinsemd mín í garð þessa orðs við það, að hafa tvisvar heyrt hálærða skólamenn útskýra hvert sé hlutverk hins svo- nefnda grunnskóla. í fyrra sinnið var það mikill spakvitringur og doktor, sem þá þénaði í skólarann- sóknadeild menntamálaráðuneytis- ins, er fræðsluna veitti í útvarpsvið- tali. Þeirrar deildar var mikill mátt- ur og stór dýrð á sínum tíma. Ég veit ekki hvort hún er enn á dögum. Síðari útskýrandinn var, og er von- andi enn, virtur skólastjóri í Reykjavíkinni. Hann auglýsti þenn- an vísdóm á uppeldismálaþingi, svo nefndu, þar sem vesæll sveita- kennari skildi aðeins orðin í hinum lærdómsþmngnu ræðum, en ekki innihald þeirra. Niðurstaða beggja var nákvæmlega hin sama: “Hlutverk grunnskólans er að efla með nemendum grunnfærni”. Skilji hver sem megnar og lái um leið fávísum sveitamanni, sem um hartnær þriðjungs aldar skeið hafði af heilagri einfeldni baslað við að segja börnum ögn til, að honum runnu nokkrir dropar af köldu vatni milli skinns og hörunds, er hann hlýddi á kenningu þessa, sem jaðr- aði í rauninni við tilskipan. Hér eystra hafði ég aldrei heyrt talið fólki til gildisauka að vera grunn- fært, en svo lengist lærið sem lífið eins og kerlingin sagði forðum. Ekki veit ég enn hvernig á því stóð að orðið gmnnskóli var smíðað. Ef til vill þykir ekki fínt að kenna svona stofnanir við börn og ung- linga. Vera má og, að einhverjum hafi þótt samsetningin barna- og unglingaskóli stirð í munni. Hraði vorra tíma krefst þess að orð séu stutt og fljótlegt að segja þau og skrifa; best að geta afgreitt málin með upphrópunum einum. Hitt veit ég, að þessi lærðramanna- merking orðsins grunnskóli hefur ekki enn komist inn í íslenskar orðabækur og vonandi verður bið á því, þótt hinu sé ekki að leyna að barna- og unglingaskóli finnst ekki lengur annars staðar í mæltu máli en hjá stórskrýtnum sérvitringum, gömlum, sem óðum eru að týna töl- unni. Út úr þessum hugleiðingum féll ég í djúpa þanka, eins og heiðraður lesandi getur séð: í grunnskólum efla skal grunnfæmi bama því grunnfæmin andlegum slysum mun vama í heimi þar samkeppni er sífellt að harðna. Sonur minn stattu þig vel. Hinn grunnfæri langmestum gagnsmunum sinnir, hinn grunnfæri landið vort allra best kynnir. Ég vona að sjálfur þú sjáir og finnir þann sannleika. - Stattu þig vel. Lagboðinn er auðvitað: Hún amma mín var samkvæmt íslenskum vana ánauðugt húsdýr í nýlendu Dana ... eftir Böðvar Guðmundsson, enda er hugmyndin stolin frá honum og orðalagið að nokkm leyti sótt í sömu smiðju. Hripað 15. ágúst S.Ó.P. Hvíla urtubörn á útskerjum Hjá Emi í Húsey var um tíma í sumar dálítið óvenjulegur kost- gangari, selkópurinn “Villingur”. Kópinn fann Öm móðurlausann út á Héraðssöndum í vor. Þar sem Kobbi litli hafði fyrir æsku sakir enga möguleika á að bjarga sér sjálfur bar bóndi hann til bæjar, enda ekki óvanur að uppfóstra slíkt ungviði. I byrjun var kópnum gef- inn mjólkurblanda bætt með smjöri, en móðurmjólk urtunnar er mjög feit eða svipuð og rjómi. Fljótlega bættist við fæðið ýmis- konar fiskur svo sem loðna og síld sem hann kunni vel að meta. Vill- ingur hafði aðsetur sitt í tjörn skammt frá íbúðarhúsinu og komst fljótlega upp á lag með að ferðast á landi. Hann fann snemma út að heim- sóknir til tvífætlinganna í ná- grenninnu gáfu gjarnan af sér mat- arbita og kjass, en það virtist hann kunna vel að meta eins og títt er um ungviði. Þrátt fyrir gott atlæti og mikla athygli heimamanna og sumargesta var Kobbi litli uppruna sínum trúr. Einn morguninn hafði hann kvatt tjömina sína og mátti við nánari athugun sjá að hann hafði lagt leið sína til sjávar. AÞ Sólarhœðin tekin og síðan lagt afstað í hádegismatinn. Beðið eftir þjónustu á dyrapallinum. Ein affóstrum Kobba var Simonefrá Þýskalandi sem sést hér að ofan gœða honum á loðnu. Selurinn gekk svo hraustlega að mat sínum að hún varð að klœðast vatnsþéttum hlífðarfötum fyrir athöfnina. Austramyndir AÞ VINIR DORA A FERÐ UM LANDIÐ Hin ástsæla hljómsveit Vinir Dóra hefja tónleikaferð til kynningar á geisla- disknunr "Mér líður vel" fimmtudaginn 26.ágúst nk.í Sjallanum á Akureyri. Vinir Dóra hafa á undanfömum árum verið ein skemmtilegasta tónleikasveit landsins þótt víða væri leitað. Hápunkt- ur ferils þeirra til þessa var í sumar er þeir spiluðu á 500 þúsund manna tón- listarhátíð Chicago Blues Festival. Vinir Dóra fengu f fyrra Clio verðlaunin, fyrir tónlist sína í auglýsingu fyrir hið þekkta körfuknattleikslið Chicago Bulls. „Mér líður vel" er þriðji geisladiskur þeirra félaga og heyrist þar árangur af samstarfi þeirra við goðsagnir á við Jimmi Dawkins, Billy Boy Amold, Pinetop Perkins, Chicago Beau, Deitru Farr. Shirley King ofl. Vinir Dóra verða á eftirtöidum stöðum á Austurlandi á næstunni: 30.ágúst. Hótel Tanga, Vopnafirði. Ol.sept. Herðubreið, Seyðisfirði. Ol.sept. Valkyrjukránni, Reyðarfirði. 03.sept. Egilsbúð, Norðfirði. 04.sept. Munaðarhóli, Fellabæ. 05.sept. Hótel Höfn, Homafirði. Nú er um að gera að mæta og njóta ljúfra tóna þessarar vinsælu hljómsveitar.

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.