Austri - 26.08.1993, Blaðsíða 5
Egilsstöðum, 26. ágúst 1993.
AUSTRI
5
Fuglaþáttur
sr. Sigurðar Ægissonar
KRIA
(Sterna paradisaea)
Krían er af ættbálki fjörunga
(strandfugla), en tilheyrir svo
þemuættinni, ásamt 42 öðrum teg-
undurn. Þemur eru náskyldar máv-
um, en em þó venjulegast töluvert
minni og spengilegri, með langa
og mjóslegna vængi, klofið stél,
veikbyggða fætur og mjótt nef. Þá
er fæðuval þernanna einnig sér-
hæfðara.
Áður fyrr var þernurn reyndar
skipað í mávaætt, samkvæmt þró-
unarrökum, enda sumir litlu máva-
nna augljóslega líkir þessum
frænkum sínum, eins og t.d. hettu-
mávur, dvergmávur og þernumáv-
ur, sem allir em með dökka hettu.
En nú á tímurn eru menn yfirleitt
sammála um, að draga þemur út úr
í sjálfstæða ætt, enda skilur þama
ýmislegt á milli.
Til forna (m.a. í lögbókum þjóð-
veldisaldar) nefndist þessi litli og
knái fugl reyndar þerna, eins og
líka mörg ömefni hér á landi gefa
til kynna (sbr. Þernuvík við ísa-
fjarðardjúp), en sú nafngift
gleymdist einhvem tíma á 18. öld,
eða þar um bil, og upp var tekið
núverandi heiti. Trúlega er þar á
ferðinni hljóðlíking eftir gargi
fuglsins, “krí-krí.”
Þernuheitið varðveittist áfram í hin-
um Norðurlandamálunum, þ.e.a.s.
færeysku, dönsku, sænsku, og
norsku, auk ensku.
Krían er 33-35 sm á lengd, 80-
145 g á þyngd, og með 75-85 sm
vænghaf. Hún er dæmigerð þerna
að líkamslagi og útliti. í sumar-
búningi er hún mestan partinn
ljóssteingrá (dekkst þó á baki,
herðum og vængjum), en svört á
kolli og aftur á hnakka.
Vangar eru hvítir, og stélið
einnig. Nef og fætur rauð.
Vetrarbúningurinn er að mestu
eins, nema það, að rauður litur
nefs og fóta verður svartur og
fremri hluti kollhettunnar víkur
fyrir hvítum lit.
Krían er hánorræn, verpir um
nyrstu strandir jarðarinnar, eins og
t.d. í Alaska, Kanada, Grænlandi,
á Svalbarða, Frans Jósefslandi og
meðfram allri Síberíu. Og hún er
líka sunnar, eða við Eystrasalt,
Norðursjó, Ermasund og á Ný-
fundnalandi og Nýja Englandi.
Auk þess hefur krían orpið í Pól-
landi, Tékkóslóvakíu, Austurríki,
Sviss, Italíu, Tyrklandi, Kýpur og
Alsír. Útbreiðslusvæðið hefur þó
dregist eitthvað saman, norður á
bóginn, á síðari ámm.
Á Grænlandi er vitað til, að krían
hafi orpið aðeins 720 km frá Norð-
urpólnum (á Morris Jessuphöfða, á
83°40’N). Mun enginn fugl annar,
að tildrunni undanskilinni, verpa
svo norðarlega.
Krían á líka annað met, því hún er
talin mesti ferðalangur dýraríkis-
ins. Að meðaltali flýgur hún næst-
um 40.000 km á ári, á milli bú-
setusvæðanna nyrst og syðst, en
hún dvelur nefnilega á veturna á
hafsvæðinu umhverfis Suðurheim-
skautslandið, og þá ýmist Atlants-
hafs- eða Kyrrahafsmegin. Er hún
þannig á beinu flugi í 8 af 12 mán-
uðum ársins. Og ef við gefum okk-
ur að meðalævi kríunnar sé 25 ár,
sem mun ekki vera fjarri lagi, jafn-
gildir það flugi að tunglinu og
heim aftur!
Með þessari árlegu ferð sinni
heimskauta á milli, nýtur krían
meiri sólarbirtu en nokkur önnur
Egilsstaðir:
Fjölmenni á Hrafnkötluþingi
Um 60 manns hafa látið skrá sig á
Hrafnkötluþing sem haldið verður í
Menntaskólanum á Egilsstöðum
um næstu helgi. Þingið er á vegum
Stofnunar Sigurðar Nordal og
áhugamanna um rannsóknir á
Hrafnkelssögu. Hvatamaður að
þinginu er dr. Hermann Pálsson fv.
prófessor í Edenborg og flytur
hann fyrirlestur sem nefnist “Málið
á Hrafnkelssögu.” Auk Hermanns
halda Guðrún Norðdal, Helga
Kress, Jón Hnefill Aðalsteinsson,
Páll Pálsson, Sveinbjöm Rafnsson
Sverrir Tómasson og Stefán Karls-
son erindi á þinginu. Fjalla erindi
þeirra um uppruna sögunnar, sögu-
efni, buggingu og inntak og sam-
band hennar við aðrar fomsögur.
Ráðstefnustjóri verður Úlfar Braga-
son, forstöðumaður Stofnunar Sig-
urðar Norðdal. I tengslum við ráð-
stefnuna verður farið á Hrafnkötlu-
slóðir undir leiðsögn heimamanna.
Öllum er frjáls aðgangur að fyrir-
lestrunum. aðgangseyrir er eitt þús-
und krónur.
Þeir eru
komnir
MUNAÐARHÓLL aftur
stákhús - pub w w
Lagarfelli 2, sími 97-12270
*
Oskar Finnsson og grillarinn Danfel Sigurgeirsson frá Argentínu
steikhús og nú meö hinn rómaða þjón Alfredó Cassis.
Þeir elda bœði kvöld helgarinnar 3. - 4. september og allt kolagrillað
eins og það gerist best.
í boði verður
argentínst rauðvín.
Árni ísleifsson sér um
dinnertónlist.
Borðapantanir í síma
12270 og 11591.
Menu:
‘Jorréttur: Júimarspjót á Vcrmotpasta
í millirétt: Jöíqiísorúet
Aðaíréttur: 9\[auta[und og tambafille 220gr.
(Desert: ‘Rjómatagaður tPina Cotada ís
Verð 2.900 kr.
V_______________________________________J
S T E I K H Ú S
lífvera jarðarinnar, eilíf sól er á
varpstöðvum hennar á norður-
hveli, sem og í heimkynnunum á
suðurhvelí á vetuma. Það mun
samt ekki vera birtan ein, sem lað-
ar kríuna í þessar ferðir, heldur
auðugt smádýralíf eða áta heim-
skautshafanna beggja megin.
Annars er aðalfæða kríunnar smá-
fiskar (homsíli, sandsíli, loðna, og
smásíld), fiskaseiði (ufsa-, laxa-,
og silungs), ýmis svifdýra (m.a.
ljósáta), auk skordýra og orma.
Krían birtist hér á landi venjulega
um mánaðamót apríl og maí, yfir-
leitt í smáhópum, og fer undir eins
að huga að varpi og maka. Hún er
mjög algengur varpfugl um land
allt. Aðalvarptíminn er fyrri helm-
ingur júnímánaðar, en tíðarfar get-
ur þó ráðið miklu í því efni.
Stærstu vörp hennar eru í grennd
við sjó, eins og t.d. í Vík í Mýrdal,
á Hellissandi, við Máná á Tjömesi
og í Hrisey á Eyjafirði. Kríur
verpa þó mun dreifðar en aðrir
sjófuglar, og oft langt frá hafi,
eins og t.d. við Mývatn og jafnvel
í Þjórsárverum við Hofsjökul.
Kjörlendið er einkum sjávar-
strendur, en þó kann hún einnig
við sig nærri ám og vötnum fjarri
sjó (allt að 100 km inni í landi í
Noregi). Hún verpir upp af lágum
og sendnum fjörurn, í hólmum,
eða eyjum og þá ýmist í snöggu
graslendi eða mýri. Bæði kynin
eru hávær, einkum um varptím-
ann.
Varpsetrið er hringlaga skiki um-
hverfis hreiðurstæðið, og ver hún
það af einurð og hörku. Sjaldgæft
þykir, að minna en 2 m séu á milli
kríuhreiðra. í stærstu vörpum hafa
talist yfir 10.000 hreiður.
Eggjunum, sem eru venjulegast
2-3, mosagræn eða ljósbrún, með
svörðum eða brúnum dílum, er yf-
irleitt orpið beint á jörðina og
sinna bæði foreldri hreiðurstörfun-
um. Útungun tekur um 3 vikur og
eru ungamir hreiðurfælnir. Þeir
verða fleygir á u.þ.b. mánuði.
Krían verpir oft í sambúð með
öðrum fuglum, eins og t.d. önd-
um, gæsum, hettumávum, lund-
um, teistum og vaðfuglum, sem þá
njóta góðs af því, hversu árásar-
gjöm hún er gagnvart óboðnum
gestum í varpi.
Kríuegg hafa löngum verið talin
góð til átu og hafa kríubyggðir af
þeim sökum oft farið illa og jafn-
vel eyðilagst gjörsamlega vegna
stöðugrar tínslu, einkum í grennd
við þéttbýlisstaði. í lögum eru þó
ákvæði , sem heimila aðeins töku
eggja úr fyrsta varpi.
Endurheimtur á kríum, sem
merktar hafa verið á Islandi í
gegnum árin. benda til. að þær
haldi sig mest við SV-Afríku á
vetuma.
Krían getur orðið býsna gömul.
Mörg dæmi eru um 20 ára fugla
og þar um kring; í þeim hópi er
t.d. kría, sem merkt var sem ungi
á Grímsstöðum við Mývatn, og
náðist 21 ári síðar í Nígeríu, á
vesturströnd Afríku. En elsti
merkti fugl, sem menn þekkja til,
náði því að verða 34 ára gamall.
BRIDDS
Eiðamót 1993
Laugardaginn 21. ágúst var haldið briddsmót í tvímenningi að Hótel Eddu
á Eiðum. Til leiks voru mætt 24 pör víðs vega af landinu. Úrslit urðu
þessi:
1. Arnar Geir Hinriksson-Kristján Kristjánsson 123 stig
2. Víglundur Gunnarsson-Heimir Ásgeirsson 106
3. Böðvar Þórisson - Þórarinn Sigurðsson 77
4. -5. Sigurður Stefánsson-Guðný Kjartansd. 45
4.-5. Skúli Sveinsson- Jón Olafsson 45
6. Guðmundur Pálsson - Þorvaldur P. Hjarðar 44
7. Árni Guðmundsson - Þorbergur Hauksson 33
Keppnisstjóri var Sigurþór Sigurðsson og reiknistjóri Lára Kristjánsdóttir.
Vatnskassa- og bensíntankaviögerðir
Gerum við og setjum nýja vatnskassa.
Gerum einnig við bensíntanka og
gúmmíhúðum að
innan.
Blikksmiðjan Grettir
Ármúla 19, s: 91-681949 og 91-681877 Fax<. 91-685861
VEIÐIMENN ATHUGIÐ!
Úrval nýrra og notaöra skotvopna
á ótrúlega góöu veröi
Einnig:
Skot frá Hlað, Remington,
Federal, Sako, Game-Bore
og Eley.
Einnig leirdúfur og flest
annað til veiða.
Purina hundamatur
á frábœru verði.
Sendum um allt Austurland.
Gerið verðsamanburð. —■ ~g~|
VEIÐIKOFINN
Selási 20 kjallara Egilsstöðum
OPIÐ frá kl. 20-22 mánudaga - miðvikudaga - föstudaga
og frá 10-14 laugardaga. © 11437 hs. 11457 Fax 11597