Austri


Austri - 06.01.1994, Blaðsíða 12

Austri - 06.01.1994, Blaðsíða 12
Umf erðd.r-réð Ótrúlegt tilboð! Hótel Saga, gisting í eina nótt kr. 9.900." miöað við tvo í herbergi. Innifalið er flug fram og til baka, gisting í eina nótt, morgunverður og farþegaskattur. Odýrir helgarpakkar! jr Islandsflug Egilsstaðir, sími 12333 Skrifstofuhjálp Sími 97-41441 Eldhús- og baðinnréttingar Trésmiðja * Fataskápar Guðna J. Þórarinssonar * Útihurðir of Másseli sími 11093 Jón Kristjánsson: / ÞINGFRETTIR Fundum Alþingis fyrir jól lauk þann 20. desember, og var síðasta málið á dagskrá lokaatkvæðagreiðsla um fjár- lög 1993. Það var endapunkturinn við þær umræður og afgreiðslur ríkisfjár- mála sem setja svip sinn á þinghaldið fram að áramótum. Átök um skattamál Fjárlög ríkisins eru áætlun um tekjur og gjöld ríkissjóðs á árinu 1994 og heimild Alþingis fyrir framkvæmda- valdið til útgjalda í hinum mörgu mála- fiokkum sem varða ríkisvaldið. Reglan á að vera sú að engin greiðsla sé innt af hendi úr ríkissjóði án heimildar. Undanfarin ár hafa mikil átök verið um tekjuöflun ríkissjóðs. Þar inn í blandast skattastefnan. Fjölmargar Ýmis áform ríkisstjórnarinnar náðu ekki fram að ganga vegna harðrar and- stöðu stjórnarandstöðunnar. Hætt var við útgáfu heilsukorta og áform um fækkun sýslumanna voru dregin til baka svo að eitthvað sé nefnt. Opinberar framkvæmdir. Að venju ákvað fjárlaganefnd skipt- ingu fjár til opinberra framkvæmda á árinu 1994. Þeir málaflokkar sem heyra undir ríkissjóð að þessu leyti eru sjúkrahús og heilsugæslustöðvar, fram- haldsskólar og hafnamál, þar rneð taldir sjóvarnargarðar. Auk þessa er skipt rekstrar og stofn- styrkjum til vetrarsamgangna, en það er samgöngunefnd sem gerir tillögur til fjárlaganefndar um skiptinguna. Þá siuiéaáiiK] - ill II ’ í* Frá Djúpavogi. breytingar á skattheimtunni hafa verið gerðar bæði nú og á fyrra ári. Breyt- ingarnar nú voru óvenju stórfelldar vegna þess að tekinn var upp tveggja þrepa virðisaukaskattur, og fjár til að standa straum af því aflað með öðrum sköttum, t.d. hækkun á tekjuskatti og bifreiðagjöldum og þeim virðisauka- skattshækkunum sem koma áttu í gildi nú um áramótin t.d. á ferðaþjónustu. Það er skemmst frá því að segja að mikil átök voru um skattamálin, og lögðum við framsóknarmenn fram til- lögu um aðra skipan þeirra. Sú tillögu- gerð vakti mikla athygli og mun verða gerð grein fyrir henni sérstaklega. Enginn flugmiðaskattur. Það var sérstakt baráttumál okkar að fá felldar niður álögur af ferðaþjónust- unni sem ætlunin er að taka upp um áramót. Sá árangur náðist að ekki verður lagður virðisaukaskattur á flug- fargjöld og hluti virðisaukaskatts af gistingu verður endurgreiddur. berast inn á borð fjárlaganefndar áætl- anir Rarik og Póst og símamálastofnun- ar um framkvæmdir ársins 1994. Skal nú að venju gerð grein fyrir helstu framkvæmdum á Austurlandi á þeim sviðum sem nefnd hafa verið. Sjúkrahús og heilsugæslustöðvar Framkvæmdir standa yfir á tveimur stöðum á Austurlandi á þessu sviði, og er á báðum stöðum unnið samkvæmt samningi þar um. A Eskifirði er heilsu- gæslustöð í byggingu og er fjárveiting til hennar 13.3 milljónir króna. Á Höfn er veitt 14 milljónum króna til bygg- ingar hjúkrunarheimilis aldraðra. Þá er veitt 4.5 milljónum króna til Sundabúð- ar á Vopnafirði vegna uppgjörs fyrri framkvæmda. Framhaldsskólar. Stærsta framkvæmdin við framhalds- skóla á Austurlandi er bygging heima- vistar við Verkmenntaskólann í Nes- kaupstað, en 25.2 milljónum króna var ils’vk Pottaplöntur. Afskorin blóm. 'W# Gæludýr og gæludýravörur. Mlðvanf,31 °ð“m Opið: mánud. - laugard. 10-12 og 13-20. Sunnud. 13-20. veitt til þess verkefnis og 1 milljón til viðhalds. Til Menntaskólans á Egils- stöðum var veitt 3 milljónum króna til viðhalds og 3.5 til framkvæmda, auk 6 milljón króna aukafjárveitingar í árslok 1993. Til Framhaldsskólans í Austur Skaftafellssýslu var veitt 2 milljónum króna til viðhalds og 3.5 milljónum í byggingaframkvæmdir. Til viðhalds í Alþýðuskólanum á Eiðum var veitt 4 milljónum króna og 1 milljón til Hús- stjórnarskólans á Hallormsstað. Hafnamál. Fjárveitingar til hafnamála á Austur- landi voru sem hér segir: Upphæðir eru í þúsundum króna. Bakkafjörður 12.000 Vopnafjörður 1.000 Borgarfj. eystri 5.100 Seyðisfjörður 3.500 Neskaupstaður 16.000 Eskifjörður 16.300 Reyðarfjörður 5,100 Fáskrúðsfj örður 1.200 Stöðvarfjörður • 400 Breiðdalsvík 16.800 Djúpivogur 27.600 Höfn í Hornafirði 13.900 Sjóvamargarðar. Höfn í Hornafirði 20.000 Borgarfjörður eystri 3.200 Þessar fjárveitingar eru til skulda- greiðslu, eða framkvæmda sem þegar eru í gangi nema á Djúpavogi þar sem ný framkvæmd hefst á árinu 1994, en nýlokið er líkantilraunum um höfnina þar sem gáfu rnjög góða raun. Vetrarsamgöngur og vöruflutningar Eins og áður segir skipti samgöngu- nefnd fjárveitingum undir þessum lið. Fjárveitingar til þessara mála á Austur- landi voru sem hér segir: Upphæðir eru í þúsundum króna. Bakkafjörður 50 Vopnafjörður 50 Borgarfj. eysri 200 Hjaltastaðahreppur 100 Jökuldalur vetrarflutningar 250 Möðrudalur 100 Snjóbíll, Egilsst. 100 Fjarðarheiði 800 Oddskarð 800 Breiðdalsvík 200 Djúpivogur,Homafjörður 280 S vínafell í Nesj um 60 Þá fékk Slysavarnardeildin Gró á Egilsstöðum stofnstyrk vegna snjóbfls 430 þúsund krónur og Flugfélag Aust- urlands hlaut 5.5 milljónir króna af liðnum styrkur til flugfélaga. Bókanir og fleira. Eins og konr fram í fréttum urðu nokkur átök um fjárveitingu til hjúkr- unarheimilis á Fáskrúðsfirði. Það mál leystist á þann veg að heilbrigðisráð- herra og fjárlaganefnd samþykktu yfir- lýsingu þess efnis að heimilt væri að gera samning um verkið upp á væntan- lega fjárveitingu árið 1995, og væri það í valdi heimamanna hvenær fram- kvæmdir hæfust, eftir að samningur hefði verið gerður. Vegagerðin hefur nú með að gera fjárveitingar til ferjusiglinga og flóa- báta, en um hálfum milljarði króna er veitt til þessara samgangna úr ríkis- sjóði. Skipting á þessu fé hefur ekki verið lögð fyrir Alþingi enn, og er brýnt að móta reglur þar um. Skipting hefur ekki farið fram enn á fjármagni til fyrirhleðslna, en þar bíða brýn verk- efni úrlausnar á Austurlandi. Þetta eru helstu atriðin varandi skipt- ingu á fjármagni til Austurlands þetta árið, og læt ég hér staðar numið að sinni. Egilsstaðir: Skóli í mannrækt og heilun settur á stofn Skóli í mannrækt og alhliða heilun tekur til starfa á Egils- stöðum um miðjan janúar. Að sögn Guðrúnar Tryggvadóttur, forstöðumanns hins nýstofnaða skóla, er kennsla í alhliða heilun fyrirhuguð í þrem fimm vikna lotum þar sem kennt er eitt kvöld í viku. Fræðsla í mann- rækt fer hins vegar fram á stutt- um kvöld-og helgarnámskeið- um eða fyrirlestrum. Til mann- ræktar flokkast m.a. sjálfstyrk- ing, siðfræði, heimspeki, list- þjálfun, (art therapy) draumar, hugleiðsla og innri leiðsögn. Öllum er heimil þátttaka bæði í námskeiðum og heilunarskólan- um. AÞ KURL Blaðinu hafa borist nokkrar vísur eftir Ragnar Inga Aðal- steinsson frá Vaðbrekku, sem búsettur er í Illinois í Banda- ríkunum. Vísunum lét Ragnar fylgja eftirfarandi formála: “Svo sem alþjóð er kunnugt þá hefur um allnokkurt skeið vaf- ist mjög fyrir fólki hvaða fall skuli nota með sögninni að langa. Hefur þar sýnst sitt hverjum eins og títt er flestum málum meðal íslenskra. Nú hef ég brugðið á það ráð að setja saman leiðbeiningar í bundnu máli handa þeim sem velkjast f vafa uin þetta atriði. Vísurnar gætu menn haft með sér og gripið til þeirra við hin ýmsu tækifæri, t.d. þegar á móti blæs á lífsgöngunni: Upp á skerin oft mig ber óljóst hver mun valda, lífs um frerann leið mín er.- það langar mér að halda. Eða þegar guðdómlegur inn- blástur yfirtekur sálina: Hátt nú ber mitt hugarker, “himneskt er að lifa”. Lít ég hér í ljóðakver,- þá langar mér að skrifa. Eða þegar komin er föstu- dagur og efnt er til garðveislu: Gleðjumst vér í garði hér, glösum ber að klingja. Sénever oss létti lér,- því langar mér að syngja. Eða þegar kvöldar og kraft- urinn dvín: Tæmast ker þá kneyfum vér, kætin fer að dofna. Leiður gerist lýður hér,- nú langar mér að sofna. GLERAUGU ÚR & KLUKKUR SKART & GJAFAVARA SÍMI 97-J2020 / 1J.606 FAX 97-12021 LAGARAS 8 - POSTHOLF 96 - 700 EGILSSTAÐIR BIRTA Birta Einarsdóttir úrsmiður - Sævar Benediktsson sjóntækjafræðingur Ósímm ötfum Austfírðirujiim árs ogjnðar og þökkum viðskiptiu á tfðnu ári.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.