Austri


Austri - 24.11.1994, Blaðsíða 6

Austri - 24.11.1994, Blaðsíða 6
Jafnþrýstibúnaður. Oryggi Stundvísi Þjónusta Þægindi Ávallt þrír í áhöfn Morgunflug - síðdegisflug. Frídagar í Reykjavík Helgarhátíð í Reykjavík Söguferð til Reykjavíkur Skemmtun Hótel íslandi 14 ferðir í viku. FLUGLEIÐIR traustur íslenskur ferðafélagi Borgfírðingar fá nýjan prest Sunnudaginn 20. 11. var Þórey Guðmundsdóttir vígð sem prestur til Desjamýrarprestakalls. Hún verður sett inn í embætti af séra Einari Þór Þorsteinssyni, prófasti við fjölskylduguðsþjónustu í Borg- arfjarðarkirkju næstkomandi sunnudag. Þórey hóf nám í guð- fræði við Háskóla íslands 1989 og lauk því á síðastliðnu vori. Hún á einnig að baki nám í félagsráðgjöf sem hún stundaði í Noregi. I stuttu viðtali við Austra sagðist hún hlakka til að hefja störf á Borgar- firði. Vegna húsnæðismála mun hún þó ekki flytja þangað með fjöl- skyldu sína strax en hyggst dvelja þar nokkra daga í hverjum máuði, m.a. nú um jólin. Aðspurð um hvemig henni litist á Borgarfjörð sagðist Þórey lítið geta sagt um umhverfið þar sem þoka hefði byrgt sýn þegar hún kom þangað í kynnisferð, en það fólk sem hún hefði hitt hefði verið mjög elsku- legt. Þá sagðist hún ekki vera óvön fámenni og erfiðum samgöngum þar sem hún hefði búið fram á ung- lingsár á Kópaskeri, sem væri enn minna byggðarlag. Þórey sagðist vera mjög ánægð með hve öflugt bamastarf væri nú þegar á Borgar- firði, en hún hyggst byggja safnað- arstarfið sem mest á bamastarfi. Þórey sagðist til gamans vilja geta þess að nú þegar konu hefði verið veitt brauðið á Borgarfirði yrði þar sannkölluð kvennakirkja, þar sem að í sóknamefnd og varasóknar- nefnd sætu eintómar konur auk þess að meðhjálparinn væri kona. Þórey er gift Leif Myrdal sem er norskur að uppruna og eiga þau þrjúbörn. AÞ Tónleikar í upphafi Aðventu Þrír kórar, Kirkjukór Egilsstaða- kirkju, Barnakór Egilsstaðakirkju og nýstofnaður kór Menntaskólans koma fram á Aðventutónleikum í Egilstaðakirkju n.k. sunnudags- kvöld. Sjómendur og undirleikarar em Julian Hewlett organisti og kona hans Rosemary sem einnig syngur einsöng. Auk þeirra hjóna leika á hljóðfæri tónlistarkennar- amir Charles Ross, Suncana Slamning og Gillian Haworth, en einnig kemur fram einn af nemend- um hennar, Ellen Rós Baldvins- dóttir. A tónleikunum koma fram yfir 100 manns. Kórarnir koma fram einir sér einnig munu kirkjukórinn og barnakórinn syngja saman. Söngskráin er fjölbreytt, flutt verða lög tengd jólahátðinni en einnig mörg önnur bæði íslensk og erlend. Þá verður frumflutt lag við þekkt- an íslenskan sálm eftir Julian Haw- lett. AÞ Jólaostur kryddaður með austfirskum jurtum Keimur af austfirskum jurtum mun kitla bragðlauka ostaunnenda nú um jólin. Hjá ostahúsinu er að hefjast framleiðsla á svokölluðum jólaosti sem verður bragðbættur með kryddi úr birkilaufi og kræki- lyngi. Jurtimar fær Ostahúsið frá Stefaníu Gísladóttur, bónda og Birkisaltframleiðanda í Seldal í Norðfirði. Ostahúsið er sem kunn- ugt er í Hafnarfirði og reka það hjónin María Rebekka Olafsdóttir frá Egilsstöðum og Þórarinn Þór- hallsson, mjólkurfræðingur, sem einnig er Austfirðingur að ætt og uppruna. AÞ Skriðdælingar á útskurðarnámskeiði Kennt var á efri liæð samkomuhússins á Arnhólsstöðum en þar er góð aðstaða fyrir hvers konar námskeiðahald. Mörg samkomuhús hafa misst notagildi sitt og væri því kjöriðfyrir handverksfólk að nýta sér húsin í sameiningu eins og gert var á þessu nám- skeiði í Skriðdal. Austram. MM I síðustu viku var haldið tré- skurðamámskeið í samkomuhúsi Skriðdælinga að Arnhólsstöðum í Skriðdal. Það vom aðalega heima- menn sem sóttu námskeiðið milli þess sem þeir sinntu bústörfum en námskeiðið stóð yfir í nokkra daga. Leiðbeinandi var Olafur Eggerts- son frá Breiðdalsvík en hann hefur að undanfömu verið með námskeið fyrir handmenntakennara. Kennd var beiting útskurðarjáma og farið yfir verkfæri og efni. S.S. (Sojfía Sveinsdóttir sem vann þessafrétt er nemandi í Grunnskól- anum á Egilsstöðum, en hún er í statfskynningu hjá Austra þessa daganna). Jón Júlíusson frá Mýrum tók sig fagmann- lega út við tréskurðinn enda sagðist hann hafa sótt. svona námskeið áður. Grönlandsfly A.S. dró tilboðið til baka Ekkert verður úr að björgunarþyrla verði staðsett á Egilsstaðaflugvelli í vetur. Tilboð Grönlandsfly A.S. um að björgunarþyrla af gerðinni Bell 412 yrði staðsett á Egilsstaðaflugvelli frá 15. janúar - 15. apríl, rann út þann 12. nóvember síðastliðinn og var dregið til baka þann 17. Egils- staðabær setti í upphafi það skilyrði fyrir kornu þyrlunnar að Landhelgis- gæslan samþykkti hana sem björgunartæki og lá endanleg afstaða hennar ekki fyrir. Jafnframt var leitað til ýmissa aðila um fjárstuðning og fengust jákvæðar undirtektir. Ekki hafði þó formleg staðfesting um fjárframlög borist nema í fáum tilvikum. Bæjarráð hefur sent frá sér ályktun þar sem kemur fram, að vegna þeirra jákvæðu viðbragða sem málið hefur fengið muni Egilsstaðabær áfram vinna að því að björgunarþyrla verði staðsett á Eglsstaðaflugvelli tíma úr árinu. AÞ KURL Sigurður Óskar Pálsson, skjalavörður á Egilsstöðum er hagyrðingur góður. Hann er einnig einn af mörgurn aðdá- endum Díönnu prinsessu og segist láta sig hafa það að fletta bunkum af DV í þeirri von að mynd af hátigninni bregði fyrir. Um þessa iðju kveður Sigurður: Dí’na er ein sú bjarta Bil af blöðum sem ég kenni. Eg les DV aðeins til að eygja mynd af henni. Þess má geta til skýringar fyrir þá sem famir eru að ryðga í goðafræðinni að Bil er ásynja í norrænni goðatrú. Vísumar sem hér fara á eftir rifjuðust upp fyrir einum les- anda okkar eftir að hann hafði lesið kveðskap Jóns Helgasonar í síðasta blaði. Vísumar sem hér um ræðir urðu til fyrir margt löngu niður á Seyðisfirði. Ekki er heimildarmanni okkar kunn- ugt um nöfn þeirra sem í hlut áttu. I þá daga störfuðu á Seyð- isfirði tveir skósmiðir. Annar þeirra varð uppiskroppa með þráð til viðgerða og var sá bam- laus. Hann leitaði til starfs- bróður síns um lán á þræði og var það auðsótt mál. Þræðinum fylgdi vísa þar sem boðin var fram aðstoð á fleiri sviðum: Til að bæta bölið þitt sem bamað ekki getur. Ég lána þér annað eistað mitt til afnota í vetur. Þegar þræðinum var skilað fylgdi með eftirfarandi svar við ljóðakveðjunni: Ennþá hef ég eistað þitt og það brúka mikið. En ekkert batnar ástand mitt því efnið það er svikið. Nýtið ykkur umboðs- mennina. Tröllanaust Neskaupstað Shell-skálinn, Eskifirði, Kaupfélagið Djúpavogi, Lykill, Reyðarfirði, Kaupfélagið Breiðdalsvík, Söluskáli Stefáns Jónssonar, Fáskrúðsfirði, Kaupfélagið Stöðvarfirði, Hótel Tangi, Vopnafirði, Bókaverslun AB og ES, Seyðisfirði SmcUc þznáÁvud&f jMaÁont md eiyin wuptd! ‘Venð: Kort m/mynd + umslag HRA Ðtnynd Egilsstöðum, sími 11777 Opið á laugardögum til kl. 14:00 1 - 29 stk. kr. 75.- pr. stk. 30 - 49 stk. kr. 67.- pr. stk. 50-79 stk. kr. 64.- pr. stk. 80 stk. og yfir kr. 60.- pr. stk. Sýnishorn hjá umboðsmönnum.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.