Austri - 13.07.1995, Qupperneq 7
Egilsstöðum, 13. júlí 1995.
AUSTRI
7
:il I! SS
sa SB IS
II II sS
*l il II
Það helsta úr fundargerð bæj-
arráðs Egilsstaða 4. júlí sl.
Fundargerðir
Skipulags- og byggingaráð
Rætt um 3. mál erindi Guðrúnar
Sigurðardóttur. Eftirfarandi sam-
þykkt samhljóða: Bæjarráð telur
“skreytingu” við verslun að Selási
1 vera mannvirki að þeirri stærð að
hún falli undir byggingarreglugerð.
Mannvirki þetta er sett upp án til-
skilinna leyfa og ber að fjarlægja.
Bæjarráð óskar eftir því að S.B.R.
og byggingafulltrúi bæjarins standi
við bókun S.B.R. frá 29. júní 1995.
Með hliðsjón af fundargerð S.B.R.
frá 4. júlí fellst bæjarráð þó á að
frestur til að fjarlægja mannvirki
þetta og allt sem því tilheyrir, verði
í allra síðasta lagi til 15. september
1995. Allar frekari byggingafram-
kvæmdir eru óheimilar nema með
tilskildum leyfum.
Varðandi bréf Guðlaugar Gutt-
ormsdóttur, er bæjarstjóra falið að
svara bréfi hennar og senda afrit af
gögnum í málinu, þar sem fram
komi að bærinn afþakkar boð um
að kaupa efri hæð að Selási 1.
Vegna 5. liðar 1, í fg. S.B.R. frá
29. 06. tekur bæjarráð undir bókun
S.B.R. um að hafnað verði beiðni
um uppsetningu söluskúrs á lóð eða
við nýju sundlaugina.
Leikskólanefnd
Broddi Bjamason ræddi valkosti
í húsnæðismálum leikskólans og
sagði að sér þætti vænlegasti kost-
urinn að kaupa hús Safnastofnunar
við Skógarlönd eins og leikskóla-
nefnd lagði til í vor. Slík lausn
myndi leysa biðlistamálið, væri
ódýr og gæfi svigrúm til að leita
endanlegra lausna. Vegna 2. liðar
samþykkti bæjarráð gr. tillögu að
10. gr. reglna leikskólans vegna
forgangs einstæðra foreldra í heils-
dagsvistun. Vegna 5. liðar, lítur
bæjarráð svo á að allir starfsmenn
leikskólans séu kjörgengir í stjóm
leikskólanefndar sem fulltrúar
starfsmanna.
Erindi og bréf
Atvinnuleysistryggingasjóður.
Þar kemur fram að bærinn fær sam-
þykki fyrir 15 manns í 10 vikur
vegna stígagerðar og Dyngja fær 6
störf í 6 mánuði.
Umsókn um stækkun lóðarinnar
Tjamarás 11. Samþykkt að sækja
um stækkun lóðarinnar fyrir á-
haldahúsið.
Samband íslenskra sveitarfélaga
v/ starfsmat. Samþykkt að mæla
með Astu Sigfúsdóttur f.h. bæjarins
sem fulltrúa norðursvæðis í starfs-
matsnefnd.
Erindi Miðvangs hf. - frestun frá
fyrri fundi. Bæjarráð þakkar fmm-
kvæði Miðvangs hf. varðandi or-
lofshúsabyggð í Miðhúsaskógi.
Miðhúsaskógur er ekki inn á gild-
andi aðalskipulagi. Verði gert ráð
fyrir orlofshúsabyggð inn á aðal-
skipulagi svæðisins mun erindi
Miðvangs hf. tekið aftur til skoðun-
ar.
Önnur mál
Aðalskipulag skógarsvæða. Bæj-
arráð samþykkti að nú þegar verði
hafist handa við gerð aðalskipulags
Að austanu
nýr bókaflokkur
Miðhúsa og Selskógarsvæða og
óskar eftir að S.B.R. komi með til-
lögu að skipulagshönnuði.
Bréf bæjartæknifræðings vegna
aðkomu að leikskóla. Tillögur að
breytingum að gatnamótum Tjarn-
arlanda, Tjamarbrautar og Seláss
og tillaga að viðbótaraðkomu að
leikskóla frá Laufskógum. Tillög-
unum vísað til S.B.R. til skoðunar
og umsagnar.
Bréf bæjartæknifræðings vegna
erindis T.F. I framhaldi af bréfi
Guðmundar Pálssonar og fram-
lögðum gögnum var samþykkt að
hafna erindi Trésmiðju Fljótsdals-
héraðs vegna endurgr. kostnaðar
við erfiðan grunn.
Bréf Eiríks Björgvinssonar vegna
tóbaksvamaskilta við íþróttamann-
virki bæjarins. Samþykkt 24.000
kr. fjárveiting og óskað eftir að
bæjarstarfsmenn sjái urn uppsetn-
ingu skiltanna.
Háspennulína á Seyðisfjörð.
Broddi kynnti málið og eftirfarandi
bókun samþykkt samhljóða: Vegna
fyrirhugaðrar lagnar háspennulínu
frá aðveitustöð við Eyvindará um
Fjarðarheiði á Seyðisfjörð vill bæj-
arráð Egilsstaða taka undir þær
hugmyndir að leggja hluta orkulín-
unnar í jarðstreng næst spennistöð
upp í Lönguhlíð.
Dagvistun aldraðra. Broddi
Bjamason ræddi þetta mál og eftir-
farandi bókun samþykkt sam-
hljóða: Bæjarráð stefnir að því að
komið verði á dagvist fyrir aldraða
hér á Egilsstöðum svo fljótt sem
verða má (sjá skýrslu félagsmála-
stjóra um dagvistun aldraðra frá 31.
maí sl.). Bæjarstjóra/Félagsmála-
stjóra er falið að fylgja málinu eftir
s.s. með ath. á nægu húsrými að
Miðvangi 22 svo og tilkynningu til
Félagsmálaráðuneytisins um að
vænta megi formlegrar umsóknar
að hálfu bæjarins seinna í haust.
Námshringjaskólinn hefur hafið
bókaútgáfu og hyggst gefa út bóka-
flokk undir nafninu “Að austan”.
Fyrsta bókin í flokknum ber nafnið
“Magisterinn” og fjallar um líf og
list Steinþórs Eiríkssonar. Bókin er
skráð af Vilhjálmi Einarssyni og í
henni eru litprentanir 30 málverka
Steinþórs auk fjölda ljósmynda.
Önnur bók í ritröðinni, “Silfurmað-
urinn”, fjallar um íþróttaferil Vil-
hjálms Einarssonar. Þar fjallar hann
m.a. um uppeldisáhrif og umhverfi
og leitast við að svara spurning-
unni: Hvernig gat austfirskur al-
þýðudrengur unnið til silfurverð-
Til sölu
Ranavað 10
Egilsstöðum
123 rrV timburhús, einangrað með
steyptri plötu. Rafmagn og hiti
komin og lóð frágengin. Blskúrs-
réttur. Ahvílandi húsbréf 5.5 millj.
sem má greiða niður að vild.
Brunab. mat 8.5 millj. Verðtilboð.
Ymis skipti athugandi.
Uppl. ís. 568 3634, 552 3506
og símb. 846 1817.
Vinnslu á nytjaskógum á Héraði.
Vegna frétta í fjölmiðlum um að
iðn- og sölufyrirtæki á Stór-
Reykjavíkursvæðinu hyggist leita
samninga við Skógrækt ríkisins um
kaup á nánast öllum smíðavið sem
til fellur úr skógum skógræktarinn-
ar hér á Fljótsdalshéraði, óskar
bæjarráð að atvinnumálaráð Egils-
staðabæjar biðji um fund með
skógræktarmönnum. I umræðunni
þar verði það haft að leiðarljósi að
afrakstur skóganna á Héraði verði
unnin sem mest hér heima. Haft
verði samráð við aðrar starfandi at-
vinnumálanefndir á Héraði.
Leiðrétting úr 26. tölublaði:
Seimur frá Víðivöllum fremri kjörinn
glæsilegasti gæðingur fjórðungsmóts
hestamanna að Fornustekkum
launa á Ólympíuleikum árið 1956.
Áætluð útkoma nóv. - des. 1995.
Þriðja bókin, “Síldarkóngurinn”
verður örlagasaga Bergs Hallgríms-
sonar frá Fáskrúðsfirði sem um
árabil átti og rak stærstu síldarsölt-
unarstöð landsins en varð, þrátt fyr-
ir einstaka atorkusemi, gjaldþrota.
Hann lét þó ekki bugast og bókin er
engin barlómssaga. Utkoma: vor
1996. Fjórða bókin mun fjalla um
lífshlaup Hákonar Aðalsteinssonar
og hefur hún hlotið vinnuheitið
"Hagyrðingurinn”, meðan leitað er
að “hákonsku” nafni. Hákon er
landsþekktur hagyrðingur og háð-
fugl með margbreytta lífsreynslu
að baki, sem hann segir tæpitungu-
laust frá. Utgáfan hefur ráðið í
þjónustu sína einhvem þekktasta
bókahönnuð landsins, Búa Krist-
jánsson, sem hefur hlotið margar
viðurkenningar og verðlaun fyrir
verk sín. Hann hannaði útlit
“Magistersins” og kastaði þannig
teningnum um framhaldið hvað
bókaflokkinn varðar.
F réttatilkynning.
GISTING I
REYKJAVÍK
íbúð með húsgögnum,
uppbúin rúm.
Bílaleigubíll á hagstœðu
verði ef pantað er
tímanlega.
Uppl. ísímum 581-3121
og 553-4879
Legsteinar
Ódýrii* og vandaðir
legsteinar í úrvali.
Sendum
myndabækling.
720 Borgarfirði eystra
Sími 472-9977 Fax 472-9877
Tvær ferðir íviku!
Brottför úr Reykjavík:
þriðjudaga og föstudaga.
Afgreiðsla á Landflutningum.
Sími 568-5400.
Bílasímar:
KT-232 sími 852-7231
U-236 sími 852-7236
U-2236 sími 852-1193
SVAVAR & K0LBRÚN
sími471-1953/sími 471-1193
700 Egilsstöðum
BÆNDUR
Smáauglýsingar
Til sölu
Til sölu 21 gíra Muddy Fox fjallahjól.
Með 400 LX Shimano smellugírum. í
góðu ástandi. Verðhugm. kr. 15.000.
Upplýsingar í síma 471-1361 á kvöldin.
Albaníufarinn minn er til sölu. Þessi á-
gæti bíll er af gerðinni Masda E2200
diesel, árgerð 1985. Bíllinn er þraut-
reyndur og í mjög góðu standi. Verð 400
þús. Skilmálar eftir samkomulagi. Upp-
lýsingar veitir Örn Ragnarsson í síma
471-3809.
Til sölu lítið notuð lítil eldavél (kubbur) í
skáp. Tvær hellur og ofn. Upplýsingar í
síma 471-1196.
Til sölu New Holland heybindivél. Árgerð
1979. Upplýsingar í síma 471-2467.
Til sölu 386 tölva og karlmannsreiðhjól.
Upplýsingar í síma 471-1960 e.kl. 18.
Til sölu 3-4 herb. íbúð í blokk í
vesturbænum (nálægt Hásk. ísl.). Parket
og ný eldhúsinnrétting. Uppl. í síma 471-
2406.
Til sölu vel með farinn barnavagn.
Uppl. í síma 471 2406.
Óskast
Óskum eftir gömlu eldhúsdóti t.d. pott-
um, bökunarformum, sleifum o.s.frv., má
vera bilað en ekki brothætt. Ef einhver
þarf að losa sig við gamlan en heillegan
kofa þá þiggjum við hann líka. Uppl. í
síma 471-2191.
Til leigu
Sumarhús. Til leigu er á Kóreksstöðum í
Hjaltastaðaþinghá gamalt íbúðarhús á-
samt 3 ha lóð. Húsið þarfnast viðgerða
en hefur verið í sumarnotkun. Uppl. í
síma 471 -3044 eða 471 -3020.
3ja herbergja íbúð til leigu í Fellabæ frá
1. sept. Fullbúin húsgögnum ef óskað er.
Sér inngangur. Upplýsingar e. kl. 19 í
síma 471-1345.
Einbýlishús í nágrenni Egilsstaða til leigu
frá 1. sept. Húsgögn geta fylgt. Uppl. í
síma 471-1345.
Annað
Tvo íslenska hvolpa vantar heimili. Upp-
lýsingar í síma 478-8137 og 478-8971.
Þau mistök urðu í síðasta blaði
að í fyrirsögn var sagt að Kjarkur
frá Egilsstaðabæ hefði verið kjör-
inn glæsilegasti gæðingur fjórð-
ungsmóts hestamanna að Fornu-
stekkum, en í fréttinni sjálfri var
sagt að Seimur frá Víðivöllum
fremri hefði hlotið þennan heiður.
Hið rétta er að Seimur frá Víðivöll-
um fremri var kjörinn glæsilegasti
gæðingur mótsins og leiðréttist það
hér með. Einnig féll niður nafn
Eyrúnar B. Jóhannsdóttur í ung-
lingaflokki. Birtum við því úrslitin
aftur:
Úrslit í unglingaflokki
Lára Magnúsdóttir Hornfirðingur Garpur 9v. 8,54
Einar K. Eysteinsson Freyfaxi Kiljan 7v. 8,22
Jón M. Bergsson Freyfaxi Matthildur 14v 8,33
Sigurbjörg Sigurbjömsdóttir Freyfaxi Mörður 17v 8,42
Guðrún A. Kristjánsd. Hornfirðingur Loftsokkur 7v 8,27
Eyrún B. Jóhannsdóttir Freyfaxi Peningur 8v 8,17
Kristín Þ. Jónasdóttir Freyfaxi Skýfaxi lOv 8,24
Jenný Magnúsdóttir Hornfirðingur Tilviljun 17v 8,13
TRIO heyrúlluplastið fæst hjá okkur.
Sendum í póstkröfu.
Ræktunarbú
Átta ræktunarbú af Austurlandi voru sýnd á mótinu og varð Ræktunar-
bú Hans og Metúsalems Kjerúlf frá Reyðarfirði hlutskarpast. í öðru sæti
varð búið á Stóra-Sandfelli í Skriðdal. í þriðja sæti varð Ræktunarbúið á
Tjarnarlandi í Hjaltastaðaþinghá. MM
^jKökusala kvenfélagsins(/
y'—
eiðileyfi í Rangá
//reindýraleður, lopavörur,
trémunir, steinvörur, útsaumur og fleira
Frábærar handunnar gjafavörur ,,
&íkön»ni Kl—
Sölumarkaðurinn Við-Bót ®47i 1917
Opið alla daga frá kl. 13:00 (nema mánud. og þriðjud., þá er lokað)