Austri - 13.07.1995, Side 8
Sumaráætlun 29. maí
Morgunflug - Síðdegisflug - Kvöldflug
Ávallt þrfr í áhöfn
Sumaráætlun 29. maí
19 ferðir á viku
FLUGLEIÐIR
Þjóðbraut innanlands
Öryggi
Stundvísi
Þjónusta
Þægindi
Jafnþrýstibúnaður.
Fékk höfðinglegar
móttökur í Albaníu
Albaníufarinn Öm Ragnarsson
færði okkur þessa mynd hér fyrir
neðan af skólastjóranum í Vergo að
skoða AUSTRA. En þeir Öm og
Aðalsteinn Hjartarson eru nýkom-
inir frá Albaníu þar sem þeir af-
hentu bömum í Vergo ýmsar gjafir,
s.s. fatnað og skólavörur, sem nem-
endur Alþýðuskólans á Eiðaskóla,
Varmárskóla í Mosfellsbæ, Búðar-
dalsskóla og Þingborgarskóli í Ár-
nessýlu söfnuðu til að gefa þeim.
Örn sagði að svo mikið hefði safn-
ast að þeir þurftu að taka á leigu
kerru í Hollandi til að geta flutt allt
til Albaníu. Þar hefði þeim verið
tekið eins og þjóðhöfðingjum og
ferðin þangað gengið vel. Aðspurð-
ur um hvemig fjárhagurinn væri
eftir ferðina sagði Örn að enn vant-
aði upp á að ferðin stæði undir sér
en vonandi myndu framlög skila
sér inn.
Örn sagði að hann myndi seint
gleyma þeirri stund þegar börnin
tóku við gjöfunum og sjá þá ein-
lægu gleði sem skein úr hverju
andliti.
Valur og hreppurinn semja
Reyðarfjarðarhreppur hefur gert
samstarfssamning við Ungmenna-
félagið Val og KVA, sem er knatt-
spymudeild Vals og Austra á Eski-
firði. Samningurinn hreppsins og
KVA felur í sér að knattspymu-
deildin mun hafa umsjón og sjá um
rekstur grasvallar, Andapolls, tjald-
svæðis, og taka gólfið af í íþrótta-
húsinu og setja það á aftur og mun
hreppurinn greiða KVA tæplega
1.7 milljón króna. Samningurinn
við Umf. Val er í formi frítíma fé-
lagsins í íþróttahúsinu og sjá um
17. júní hátíðhöldin svo eitthvað sé
nefnt. MM
/
Mikil tilþrif í Eimskips
torfærunni í Mýnesgrús
Gísli G. Jónsson á Kókómjólk-
inni sigraði í Eimskips-torfæru
Akstursíþróttaklúbbsins START
sem fram fór í Mýnesgrús við Eg-
ilsstaði um sl. helgi. Til keppni
mættu 18 keppendur, þar af 11 í
flokki sérútbúinna bíla.
Að þessu sinni var keppendum í
götubílaflokknum leyft að velja sér
hvort þeir hefðu bflana á venjuleg-
um dekkjum eða skófludekkjum.
Urslit í Götubflaflokki urðu þannig:
1. Gunnar Guðmundsson á Rapp-
anum, 2. Ámi Pálsson á Gömlu
götukerlingunni, 3.Gunnar P. Pét-
ursson. Sérútbúnir bflar: 1. Gísli G.
Jónsson á Kókómjólkinni. 2. Helgi
Schiöth á Frissa fríska. 3. Einar
Gunnlaugsson á Norðdekkdrekan-
um. Gísli hlaut tilþrifaverðlaunin.
Keppnin var önnur af tveimur í 3-T
bikarmótinu en síðari umferð verð-
ur í Grindavík í ágúst. Það er óhætt
að segja að áhorfendur hafi fengið
heilmikið út úr deginum því leið-
irnar sem farnar voru þóttu mjög
erfiðar og spennan í fyrirrúmi allan
tímann. Svo erfiðar voru sumar
brekkurnar að margir keppendurnir
veltu nokki'um sinnum og oft mátti
sjá glæsileg stökk bæði upp á bakk-
ana og eins aftur fyrir sig. I einni
umferðinni, í götubílaflokknum,
þar sem ekið var m.a. yfir stóran
poll náðu aðeins tveir bílar af sjö
að klára dæmið. Heyrst hefur að
Þórir Schiöth væri hættur allri
keppni en hann varð í fimmta sæti í
keppninni. Þórir sagði í samtali við
Austra að hann væri alls ekki hætt-
ur þó hann ætlaði að hvfla sig eitt-
hvað í sumar, hann sagðist geta
staðfest að hann ætlaði ekki að
mæta á mót sem verður á Akranesi
en hættur væri hann alls ekki.
SKÓGRÆKT RÍKISINS
HALLORMSSTAÐ
Munið Skógardaginn
í Haliormsstaða-
skógi 15. júlí
Ferða-
menn fyrr
á ferð-
inni í ár
Mikið hefur verið að gera á Hót-
el Bláfelli á Breiðdalsvík í vor. Þar
hefur verið straumur gesta alveg frá
því í byrjun júní og hefur nýting
verið mjög góð bæði í veitingasölu
og gistingu. Að sögn Skafta
Ottesen, hótelstjóra, virðast ferða-
menn vera fyrr á ferðinni í ár en
venjulega. Einnig telur hann að
fleiri komi við á hótelinu síðan að
ný brú var byggð á Breiðdalsá, en
vegurinn liggur nú í gegnum þorpið
á Breiðdalsvík. AÞ
MM
Þórir Schiöth áfullu gasi upp stálið.
Austram. Solla.
Trygging sér um sína.
A skútu frá Afríku til Eskifjarðar
í síðustu viku var blaðamaður
Austra staddur á Eskifirði þegar
hann rak augun í stórglæsilega
skútu í smábátahöfninni. Fyrir
svörum varð Julian Gimburg annar
eigandi skútunnar. Hún sagði að
um borð væri fjölskylda hennar,
eiginmaður og tvö böm. Þau væru
búin að vera á siglingu í þrjú og
hálft ár en þau væm frá frá Cape
Town í Suður-Afríku. Fyrst hefðu
þau siglt á minni skútu sem þau
áttu upp með strönd Afríku til
Hollands þar sem þau hefðu keypt
þessa skútu, en hún er 47 fet. Síðan
væru þau búin að þvælast víða um
Evrópu. Á leiðinni til íslands
höfðu þau viðkomu á Shetlandseyj-
um og Færeyjum. Frá Eskifirði
væri ferðinni heitið til Homafjarð-
ar, en hafnarvörðurinn á Eskifirði
væri búinn að sýna þeim myndir af
jöklinum og sagt þeim að þau yrðu
að skoða sig um á jöklinum áður en
þau yfirgæfu landið. Héðan væri
síðan ferðinni heitið til Grænlands
og Kanada og síðan niður með
strönd Norður-Amerflcu. Því næst
er ætlunin að sigla áfram um Kar-
abískueyjamar og í Mexicoflóa.
Julían sagði það ekki afráðið hvort
þau fæm síðan niður með strönd
Suður-Ameríku og heim eða í
gengum Panamaskurð og út á
Kyrrahafið á vit nýrra ævintýra.
MM
Umboð: FERÐAMIÐSTÖÐ
AUSTURLANDS
Sími 471-2000
Söðlasmíðaverkstæði Sigrúnar
Brekkugerði, 701 Egilsstaðir
Sími 471-1851
íAi
-*■ Eldhús- og baðinnréttingar Trésmiðja
* Fataskápar Guðna J. Þórarinssonar
A Útihurðir o.fl. Másseli sími 471-1093
SÓIJV/JVG hf.
Þverklettum 1, Egilsstöðum,
sími 471-2002
Egilsstöðum, sími 471-1777
Framköllun á 24 myndui
^ klst. Strax 1.254 kr. (24 myndir) á Royal pappír
Q dagar Hagkvæmt 990 kr. (24 myndir) á Royal pappír
0 dagaródýrast 690 kr. (24 myndir)
ó, 6*lc!
m frá
690 kr.
Kodak
GÆÐAFRAMKOLLUN