Austri


Austri - 19.09.1996, Blaðsíða 1

Austri - 19.09.1996, Blaðsíða 1
REYKJAVÍK Afkastaaukning í frystingu og bræðslu Fiskimjölsverksmiðja Búlandstinds á Djúpavogi hefur nú verið tekin til gagn- gerðra endurbóta. Bæta á móttöku fyrir síld og eins að auka afköst innan dyra. Síldinni verður dælt úr skipunum með vökvadælu upp á færiband og þaðan inn í hús. Afköst verksmiðjunnar verða aukin úr 120 tonnum í 350 tonn á næstu mánuðum. Fyrir var eldþurrkari sem gat afkastað 350 tonnum, en aðrir hlutar verksmiðjunnar voru afkastaminni, t.d. skilvindur, sjóðari og pressa. Nú verða allir þessir hlutir bætt- ir og munu þá geta afkastað meira en 350 tonnum. Jafnframt er búið að kaupa nýja gufukatla og fyrir liggur að koma þeim fyrir í ketilhúsum. Verið er að fara að tengja þá. Þá verða hráefnistankar stækk- aðir og hækkaðir og búnaður til að hlaða þá og dæla úr þeim inn í verksmiðjuna bættur. Einnig verða raflagnir endumýjað- ar. Jóhann Þór Halldórsson, framkvæmda- stjóri Búlandstinds, segir að tími hafi verið kominn á þessar endurbætur. Verksmiðjan hafi verið byggð 1965 og tæknilega sé hún á sama stigi og þá. Þá hafi afköstin verið það lítil að fyrirtækið hafi ekki verið sam- keppnisfært um kaup á hráefni. Auk áður- nefndra framkvæmda á að auka frystigetu frystihússins á síld og loðnu um 70 tonn. Eftir það verður frystigeta Búlandstinds alls 200 tonn á sólarhring. Þar er um að ræða bæði frystihús fyrirtækisins, en í fyrra keypti það hlut Gunnarstinds í frysti- húsinu á Breiðdalsvík. Miðað er við að framkvæmdum við bræðsluna verði lokið ekki síðar en um næstu áramót. Jóhann segir hins vegar að þar sem síldarvertíð hefjist væntanlega um næstu helgi sé lfklegt að einhverjar tafir verði á verkinu, einkum vegna þess að ekki er fyrirhugað að loka bræðslunni. Stærstur hluti þeirrar sfldar sem unninn er hjá Búlandstindi er frystur eða saltaður. Mest af sfldinni fer til Rússlands og Pól- lands. Réttað var í Fljótsdal á sl. þriðjudag. Hér sést einn gangnamanna, Jón Þór Þorvarðarson, við ferðarlok og lítur bara þokkalega út. Austramynd s.b.b. Sjálfvirk veðurstöð................................, c Búið að setja upp 7 sjálfvirkar veðurstöðvar við þjóðvegi austan lands Búið er að setja upp sjálfvikra veð- urathugunarstöð á Fagradal. Það er Vegagerð ríkisins sem setur upp stöðina. Að sögn Guðjóns Þórarins- sonar rekstrar- stjóra á Reyðar- firði er þetta sjö- unda stöðin sem sett er upp á Aust- urlandi, fyrir voru þær í Oddskarði, Fjarðarheiði, Vopnafjarðarheiði, Möðmdalsfjall- garðinu, Höfn og í Öræfum. Guðjón sagði að það væri komin góð reynsla af svona stöðvum og þær væru nán- ast viðhaldsfríar. Aðspurður sagðist Guðjón hafa á óskalistanum að setja niður veðurathugunarstöð á Breiðdalsheiði og á Vatnsskarði svo einhverjir staðir Hann sagðist að fenginni reynslu þá komi svona stöð til með að spara eftirlit í einhverju mæli. „Við tækin eru tengd umferðateljarar, nemar sem mæla hitastig í veginum, rakastig og vind osfr. Það hefur verið mjög gott að fylgjast með hvort ísing sé að myndast á veginum. Þannig að þetta nýtist vegfarendum mjög vel að þessu leitinu“. Ekki var búið að tengja stöðina á Fagradal inná textavarpið í sjón- varpinu þegar þetta var skrifað en það verður gert fljótlega. - milljónir á laugardögum! Flest dýrin náðust Hreindýraveiðitímabilinu er nú lokið. Veiðiheimildir voru 268, en 248 fullorðin dýr voru veidd. Auk þess voru skotnir 44 kálfar, en þar sem kálfar kúa sem verið hafa felldar eru oft ansi ósjálfbjarga er mælst lil þess að þeir séu einnig felldir, sé þess kostur. Dýrin sem ekki náðust voru á þremur svæðum, (sjá kort) 4,8,og 9. Astæður þess eru að sögn Aðal- steins Aðalsteinssonar, fram- kvæmdastjóra Hreindýraráðs, nokkuð mismunandi. Á svæði fjögur(Seyðisfjarðarhreppur, Mjóafjarðarhreppur, Egilsstaða- bær, Vallahreppur austan Grímsár, og Reyðarfjarðarhreppur) fundust einungis þrjú dýr. Á svæði 8 (Bæj- arhreppur, Hornafjörður austan Hornafjarðarfljóts) hamlaði þoka veiðum síðasta dag tímabilsins, en þá átti eftir að skjóta einn tarf og eina kú. Á svæði 9 ( Hornafjörður vestan Hornafjarðarfljóts) bönn- uðu landeigendur veiðar á helstu veiðisvæðum þannig að þar náðist einungis eitt dýr af þeim 8 sem var úthlutað. Talsverður hluti veiðileyfa í ár var seldur, alls 163. Það voru að langstærstum hluta íslendingar sem keyptu sér veiðileyfi. Útlend- ir veiðimenn voru einungis 7 tals- ins, 6 Bandaríkjamenn og 1 Dani. Þessir menn skiptust í þrjá hópa. Það má því segja að hreindýra- veiðar hafi gengið bærilega í ár. Ekki hefur orðið vart við veiði- þjófnað og hafi verið um slíkt að ræða hefur það í það minnsta ekki borist til eyrna lögreglu. Hreiijdýrksyæðin / k^7) * / 3 « Svæði 3 -s * !( / Kvóti: 35 dýr 16 dýr 2- 11 náðust ekki 7 4 . Svæðió- — J arfjtira“r Kvóti: 42 dýr Á Svæði 7 Kvóti: 28 dýr Svæði 9 r Kvóti: 8 dýr 7 náðust ekki Á þessu korti sést hvernig hreindýra- veiðisvœðinu er skipt niður og hve mörg dýr mátti veiða á hverju svœði. Eins er tekið fram hvar ekki náðist að veiða upp í kvóta.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.