Austri - 19.09.1996, Qupperneq 2
2
AUSTRI
Egilsstöðum, 19. september 1996.
MI5IRI
Útgefandi: AUSTRI Tjamarbraut 19, 700 Egilsstaðir.
Súni 471-1984. Fax 471-2284. Módern 471-2594.
Netfang: austri@eldhorn.is
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson.
Útgáfustjóri: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir.
Blaðamenn: Amdís Þorvaldsdóttir,
S. Bjöm Blöndal, Marinó Marinósson
Askriftarverð pr. mán. kr. 500.-m/vsk.
Setning og umbrot: Austri
Prentun: Austprent
Efni skal skila í tölvutæku formi (dos, Word) eða vélrituðu.
Austri er aðili að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.
Vegamál fyrir
vestan og austan
Vestfjarðagöng hafa nú verið tekin formlega í notkun, og
munu þau valda byltingu í samskiptum á norðanverðum
Vestfjörðum og breyta samfélaginu þar. Það er full ástæða
til þess að samfagna Vestfirðingum vegna þessa áfanga,
enda hafa Austfirðingar ætíð skilið þörfina á jarðgangna-
gerð þar vestra og ekki gert athugasemd við þá forgangs-
röð sem uppi var höfð.
Nú þegar þessum framkvæmdum er lokið er ástæða til
þess að ræða um framhald jarðgangnagerðar almennt.
Gerð jarðgangna undir Hvalfjörð stendur nú yfir og heyrst
hefur hér eystra gagnrýni á þá framkvæmd. í því sambandi
má ekki gleyma sérstöðu þeirrar tengingar, sem felst í því
að jarðgangnagerðina sjálfa á að kosta með veggjaldi, þótt
verulegur kostnaður muni falla á vegasjóð vegna aðkomu
beggja megin.
Hins vegar þarf að liggja fyrir við endurskoðun vegaá-
ætlunar síðari hluta vetrar stefnumótun um framhald ann-
arrar jarðgangnagerðar og var ætíð gengið út frá því að það
framhald yrði á Austurlandi. Þingmönnum kjördæmisins
ber að vinna eftir þeirri forsendu og móta stefnu sína sam-
kvæmt því.
Austurland og Vestfirðir hafa sérstöðu í vegamálum.
Hún er vegna mikilla og erfiðra fjallvega innan fjórðung-
anna. Það er alveg ljóst að ástand vega er verra í þessum
landshlutum en annars staðar á landinu. A Vestfjörðum er
nú keppikeflið að tengjast „hringveginum" svokallaða, en
á Austurlandi er að finna hina óuppbyggðu kafla hringveg-
arins. Lengstir þeirra eru vegurinn „yfir Fjöllin“, eins og
hann er nefndur í daglegu tali, um Jökuldal og til Egils-
staða, og vegurinn yfir Breiðdalsheiði frá Skriðdal yfir í
Breiðdal, Berufjarðarbotninn og kaflar í Alftafirði. Hér
er eingöngu talað um kafla með malarslitlagi, en einnig er
á þessari leið að finna brýr sem þola ekki umferðina eins
og hún er orðin eftir þá byltingu sem varð þegar vöniflutn-
ingar komu meira og minna á land. Einnig eru fiskflutn-
ingar nú stundaðir á vegum um landið þvert og endilangt.
Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar, sem komu
fram á aðalfundi SSA, myndi það taka 25 ár að ljúka al-
mennri vegagerð í fjórðungnum, það er að segja uppbygg-
ingu vega með bundnu slitlagi, með þeim hraða sem verið
hefur og því fjármagni sem nú er til ráðstöfunar ár hvert.
Það er ljóst að ef stytta á þenna tíma verður Austurland að
auka hlut sinn í fjármagni til vegagerðar og eðlilegast væri
að það gerðist með því að hringvegurinn væri gerður að
stórverkefni. Svigrúm til annarra verkefna af hlut kjör-
dæmisins í vegafé mundi þá aukast.
Byltingin í vöruflutningum og almennri umferð er slík
að úrbætur á vegum á Austurlandi þola ekki áratuga bið.
Þess vegna ætti þessi breyting að vera réttlætismál og það
á ekki að blanda henni saman við framtíðaráform í jarð-
gangagerð í fjórðungnum eða gera Austfirðingum að velja
þar á milli. J.K.
Húsgrunnur hættulegur börnum
Um þriggja metra hátt fall er niður af grunninum og steypujárnið stendur í allar
áttir. Erþað mikið lán að engin alvarleg slys hafa orðið hingað til svo vitað sé.
í síðustu viku færði Steinunn
Ingimarsdóttir bæjarstjóra Egils-
staðabæjar, Helga Halldórssyni,
lista með undirskriftum íbúa og for-
eldra í næsta nágrenni húsgrunns
við Utgarð 4, alls 55 manns. Gmnn-
urinn sem staðið hefur óhreyfður á
annan áratug hefur lengi gengið
kaupum og sölum án þess að byggt
haft verið á honum. Steinunn sagði
að af og til undanfarin ár hafi íbú-
arnir í nágrenninu kvartað undan
grunninum og beðið um aðgerðir,
en það hafi ekki enn borið neinn ár-
angur. Væru nágrannarnir orðnir
uggandi um böm sín og langeygðir
eftir úrbótum því gmnnurinn er vin-
sælt leiksvæði og mikil slysahætta á og við hann.
Steypustyrktarjám sem einhvem tíman hafa verið
beygð niður standa nú í allar áttir. Einnig er hátt fall
Helgi Halldórsson, bœjarstjóri sagði við móttöku undir-
skriftanna úr hendi Steinunnar Ingimarsdóttur að þær
kæmu sem óvœnt hjálp og vœru bœjaryfirvöldum góður
stuðningur við að þrýsta á eigendur að grípa til ráðstaf-
ana.
niður af grunninum, sérstaklega á þeirri hlið sem snýr
að veginum eða um 3 metrar þar sem hann stendur í
brekku og má því teljast mikil mildi að engin alvar-
leg slys hafi orðið.
Helgi Halldórsson bæjarstjóri sagði að lengi hefði
verið reynt að finna út hver réttur eigandi gmnnsins
væri og hefðu nokkrir talið sig eiga hann. Nú lægi það
fyrir að fyrirtækið Vökvavélar á Egilsstöðum sé talið
réttur eigandi og sendi hann undirskriftalistann og
beiðni um úrbætur til þess strax í síðustu viku.
Svar Vökvavéla barst svo nú í vikunni á þá leið að
lóðasamningar fyndust ekki og á meðan ekki væri
ljóst svo óyggjandi væri að Vökvavélar væm þing-
lýstur eigandi gmnnsins væru menn þar á bæ ekki til-
búnir til að hefja framkvæmdir við hann. Verið er að
vinna í að finna lóðasamninga og ganga frá annarri
pappírsvinnu varðandi grunninn og reiknað með að
lausn í máli þessu finnist innan tíðar.
Athyglisverður sumarbústaður
Þetta flugvélarflak er notað sem sumarbústaður á Hoffellssandi í Homafirði. Vélin lenti út af flugbrautinni
á Höfn í hliðarvindi árið 1975. Hún var áður notuð sem veiðihús við stöðuvatnið Þveit í Homaf. Stélið var
brotið af, en eigandinn, Helgi Jóhann Jónsson, fékk annað af vél sem brotlenti á Sólheimasandi. Þess má
geta að enginn slasaðist þegar vélin endaði flugferil sinn.
37. Kjördæmisþing
Framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið í
Félagsheimilinu Herðubreið,
Seyðisfirði 4. og 5. október 1996.
Dagskrá:
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER.
kl: 20:00 Þingsetning.
Skýrsla, ávörp og almennar
stjórnmálaumræður.
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER.
kl: 09:00 Þingi framhaldið
Sérmál þingsins: Umhverfismál,
nefndarstörf og ályktanir.
Þinglok áætluð kl: 18:00.
Árshátíð
Hin árlega árshátíð Framsóknarmanna á Austurlandi
verður haldin í Félagsheimilinu Herðubreið, Seyðisfirði
laugardagskvöld 5. október.
Fundur
um bæjarmálin
í Austrahúsinu
mánudaginn
23. september,
kl. 20:30.
Bcejarfulltrúarnir
verða á staðnum.
Þeir sem eru í nefndum og
ráðum á vegum
FramsóUnarfloUksins
em Uvattir til aá Uoma.
F ramsóknarfélag
Egilsstaða