Austri - 19.09.1996, Síða 5
Egilsstöðum, 19. september 1996.
AUSTRI
5
Hugleiðingar um hótelmál
Hótelmál hafa verið mikið í sviðs-
ljósinu hér á Egilsstöðum síðustu miss-
erin. Umræðan um þau hefur verið
bæði jákvæð og neikvæð.
Jákvæð að því leyti að löngu er tíma-
bært að auka við gistirými, af því tagi
sem talað er um, til þess að mæta þörf-
um markaðarins. Neikvæð að flestu
öðru leyti.
Akveðnir einstaklingar hér í bæ hafa
á mjög svo ósmekklegan hátt blandað
eiginhagsmunum sínum í þetta mál og
því miður verið í aðstöðu til þess.
Þar á ég fyrst og fremst við staðsetn-
ingu nýs hótels. Enginn raunverulegur
vilji virðist hafa verið fyrir því að
tengja nýja hótelbyggingu við það hótel
sem fyrir er í byggðarlaginu og nýta á
þann hátt þá fjárfestingu sem fyrir er,
heldur hafa ákveðnir bæjarfulltrúar
komið ár sinni svo vel fyrir borð að nýtt
hótel skal rísa á þeirra eigin grunni sem
lagður verður í púkkið sem hlutafé!!!
Ekki þarf að minna fólk á að Egilsstaða-
bær á einn stærsta hlutinn í hinu ný-
stofnaða hlutafélagi um hótelbyggingu.
Það er þó ekki ætlun mín að fjalla sér-
staklega um „siðgæðisvitund“ einstakra
bæjarráðsmanna. Það er frekar málefni
sem rifja þarf upp fyrir næstu kosning-
ar. Hins vegar ætla ég að fjalla lítillega
um þau alvarlegu skilaboð sem þetta
mál felur í sér til okkar bæjarbúa og
varðar að hluta til uppbyggingu atvinnu-
lífsins hér í bæ.
Eins og kunnugt er á Egilsstaðabær
stóran hlut í Hótel Valaskjálf og hefur
umráðarétt yfir hlut annarra sveitarfé-
laga á svæðinu.
Fyrir nokkrum árum var mikil um-
ræða um bága stöðu hótelsins og ráðist í
björgunaraðgerðir. M.a. voru bæjarbúar
hvattir til þess að leggja nú sitt að mörk-
um. Margir létu til leiðast og lögðu
hlutafé í hótelið.
Til þess að gera langa sögu stutta þá
var hlutafé í Hótel Valaskjálf fært niður
um 50% á aðalfundi í vor. Gott og vel ef
það yrði til þess að laga fjárhagsstöðu
þess. Fyrir nokkrum vikum barst síðan
bréf til hluthafa um að stjórnarfundur
hafi tekið þá ákvörðun að auka hlutafé
hótelsins og nytu hluthafamir forkaups-
réttar!!!
Kvisast hefur að stærsti hluthafinn,
Egilsstaðabær, ætli sér að nýta þetta
tækifæri og leggja 5 milljónir í hlutafé í
Hótel Valaskjálf. Menn velta auðvitað
tilganginum fyrir sér !!!
Á sama tíma skrifar formaður bæjar-
ráðs undir samning f.h. Ásgarðs hf., nýs
hlutafélags um hótelbyggingu, og í um-
fjöllun í Austra við þetta tækifæri, er
látið að því liggja að Hótel Valaskjálf
verði lagt niður sem hótel, þegar nýtt
hótel tekur til starfa á næsta ári.
Þetta mál kennir okkur bæjarbúum
ákveðna lexíu. I fyrsta lagi segir það
okkur að við höfum ofmetið getu þeirra
fulltrúa sem við kusum okkur til þess að
ráðstafa skatttekjum okkar.
I öðru lagi og öllu alvarlegri eru þó
þau skilaboð sem Egilsstaðabær sendir
okkur bæjarbúum. Þau eru að við skul-
um ekki láta okkur detta í hug að fjár-
festa í fyrirtækjum í okkar ágæta heima-
bæ. Alla vega ekki þeim fyrirtækjum
sem Egilsstaðabær kemur á einhvern
hátt nærri.
Karen Erla Erlingsdóttir
„Rétt er vörður
við að hressa“
/
jk CJí V 02 Yl fl 1
^ . -
g V G 1 %
Pappír
Á hverjum degi fer mikið af pappír í gegnum hendur
okkar, ekki síst þeirra sem vinna skrifstofuvinnu eða nem-
enda og kennara í skólum, svo dæmi sé tekið. Sjaldnast
hugsum við þó um hvernig pappírinn er framleiddur og
hvert hann fer þegar við hendum honum. Pappír er unn-
inn úr trjám sem ræktuð eru í nytjaskógum, og til dæmis í
Finnlandi gildir sú regla að gróðursett eru 4 tré fyrir hvert
eitt sem er fellt. Þannig er auðlindinni viðhaldið.
Oft kemur upp sú spuming hjá þeim sem vilja taka meira
tillit til umhverfisins, hvort endurunninn pappír sé betri
valkostur en frumunninn. Því er til að svara að frumunninn
pappír er í öllum tilfellum umhverfisvænni en sá endur-
unni, að því gefnu að hann sé unninn úr nytjaskógum - sem
er almennt tilfellið t.d. á Norðurlöndum. Það tekur end-
urunna pappírinn 4 sinnum lengri tíma að brotna niður í
náttúrunni en þann frumunna. Þar við bætist að við sjálft
endurvinnsluferlið er notað talsvert af kemískum efnum.
Gjarnan er notaður klór til að gera endurunna pappírinn
hvítari, en sjaldgæft er orðið að frumunninn pappír sé klór-
bleiktur.
I eldhúspappír og annan rakadrægan pappír er m.a. notað
evkalyptustré, sem flokka má undir náttúruskógatré, þó það
vaxi ekki í skógum. Auk þess brotnar það seint niður í
náttúrunni og er þessi pappír því mjög lengi að eyðast.
Ef þú vilt taka upp umhverfisvænni notkun á pappír, get-
urðu haft eftirfarandi í huga: Minnkaðu notkunina, notaðu
báðar hliðar á pappímum og notaðu óklórbleiktan pappír.
Sjálfsagt er að nota endurunninn pappír að einhverju marki,
en ekki er þó allt fengið með því. Gættu þess að bruðla
ekki með pappír, eða eyða honum að óþörfu. Notaðu tusk-
ur og klúta þar sem það er hægt. Heimild: „Hráefnið
pappír“ grein eftir Olaf Steingrímsson, markaðsstjóra
Prentsmiðjunnar Odda hf„ í Sérriti Skinfaxa um umhverf-
ismál.
Flestir kannast við öll þau
ógrynni af pósti sem berast inn um
póstlúgur manna nú á þessum síð-
ustu og verstu tímum. Fer þar mest
fyrir svokölluðum gluggaumslögum
frá hinum og þessum stofnunum og
auglýsingapésum af öllum stærðum
og gerðum sem falbjóða flest
heimsins gæði á spottprís. Er póstur
þessi að jafnaði fljótlesinn og fer
ýmist í reikningahauginn eða rusla-
fötuna. Einstaka sinnum kemur þó
fyrir að pósturinn dregur forvitnileg
umslög úr pússi sínu og er þeim
gjarnan snúið og velt á
ýmsa vegu, áður inni-
haldið er tekið til rann-
sóknar. Eitt slíkt umslag
barst mér á dögunum og
reyndist það við nánari
athugun hafa að geyma
bókina, „Fomir fjallvegir
á Austurlandi". Að riti
þessu, sem er einkar fróð-
legt og skemmtilegt,
stendur hópur áhuga-
fólks um forna fjallvegi,
sem hefur einnig að
markmiði að vinna að
viðhaldi og varðveislu
varða og hefur nú þegar
hafið starf við endurbygg-
ingu þeirra. í ritinu er að
finna kort og leiðarlýsingar sem ná
yfir 195 fjallvegi á Austurlandi.
Einnig eru þar birt erindi sem flutt
voru á ráðstefnu um vörður og fjall-
vegi sem sem haldin var í Hótel
Valaskjálf vorið 1995 á vegum úti-
leikhússins, „Hér fyrir austan“. Á
bak við bók sem þessa liggur mikið
og óeigingjarnt starf og hafa að-
standendur hennar, Philip Vogler,
Magnús Hjálmarsson, Bragi Björg-
vinsson, Guðrún Kristinsdóttir og
Guðrún Gunnarsdóttir lagt að mörk-
um mikla vinnu. Heimildir eru ým-
ist fengnar úr bókum eða munnlegar
frá staðkunnugum og er ekki að efa
að hér hefur margs konar fróðleik
verið bjargað frá að lenda í glatkist-
una. Grónar götur og vörður, marg-
ar að hruni komnar, vitna um fomar
leiðir um fjöll og firnindi, sem um
aldir voru samgönguæðar forfeðra
okkar. Allir eiga þessir fjallvegir
örnefni og sögur sem ekki mega
Fornir fjallvegir
á Austurlandi
Afgreiðslur
á öllum
þéttbýlisstöðum
á
Austurlandi.
VIGGÓ HF.
477-1190
Austri
471-1984
1996
gleymast komandi kynslóðum og
vissulega eru vörðurnar mannvirki
sem ber að halda við. Um marga
þessa fjallvegi hefur umferð hafist á
ný, þar sem æ fleiri kjósa að eyða
frítíma sínum í gönguferðir. Það að
hafa aðgang að örnefnum og sögu
hlýtur að auka gildi ferðalagsins til
muna. Hafið þökk fyrir gott fram-
tak. Arndís Þorvaldsdóttir.
ALLT
TIL
BYGGINGA
/
Uti sem inni
Vinnupallar
Vinnuúlpur
Vinnuskyrtur
Vin nuvcttl i n o’ar
Opnunartími:
Mánud. -föstud. 8-12 og 13-18.
Laugard.:10-14.
FELLABÆ
Búðin
701 Egilsstöðum
■ O" SM \l,„.
Egilsstaðabær
Laus til úthlutunar er 4ra
herbergja félagsleg kaupleiguíbúð
að Hléskógum 2 - 6.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á
bæjarskrifstofunni.
Bæjarstjóri
Ertu fær í flestan snjó?
Fyrir ueturinn:
ðstandsskoð un
Mótorstillingar
Rthuga:
Rstand rafgeyma,
hleð slukerfis
og startara.
.. Bifreiðaverkstæði
ROGNVALDAR
Lagarbraut 4 - Fellabæ - Sími 471 1887