Austri - 13.02.1997, Blaðsíða 1
150 REYKJAVfK
Leitið ekki langt
yfir skammt
Verslanir KHB
42. árgangur
Egilsstöðum, 13. febrúar 1997.
6. tölublað
Verð í lausasölu kr. 150.-
Fjárhagsáætlun Reyðarfjarðar
25% í fræðslumál
Fjárhagsáætlun Reyðarfjarðar-
hrepps fyrir árið 1997 var samþykkt
í síðasta mánuði. Tekjur hreppsins
og fyrirtækja hans eru áætlaðar 200
milljónir á árinu, en rekstrargjöld
nettó 168 milljónir, fyrir utan fjár-
magnsliði. Mismunurinn fer í fram-
kvæmdir og afborganir lána, en
stærstu lánin eru til komin vegna fé-
lagslegra íbúða. Stærsti einstaki út-
gjaldaliðurinn er, eins og við mátti
búast, fræðslumál, en 25% af skatt-
tekjum hreppsins fara til þessa mála-
flokks. Til samanburðar má geta
þess að á síðasta ári voru útgjöld til
fræðslumála 10%.
Útsvarsprósenta sveitarfélaga hef-
ur verið hækkuð til að mæta flutn-
ingi grunnskólanna frá ríki til sveit-
arfélaga. Hjá Reyðarfjarðarhreppi er
hún nú 11,99%, en var áður 9,2%.
Þá kemur til framlag frá Jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga, sem fer eftir
stærð þeirra.
ísak Ólafsson bæjarstjóri segir að
útsvarsprósentan og framlag Jöfnun-
arsjóðs eigi að koma á móti þeim
kostnaði sem sveitarfélögin verða
fyrir vegna skólans. “Þó getur einn
þáttur haft veruleg áhrif á þetta, það
er ef mikið atvinnuleysi verður í
viðkomandi sveitarfélagi, því það
kemur niður á útsvarstekjunum,“
segir Isak.
Han segir helstu framkvæmdir á
árinu verða gatnaframkvæmdir sem
kosta muni 4 milljónir. Meðal ann-
ars stendur til að ganga frá Odd-
nýjarhæðinni, sem er malamáma í
miðjum bænum, að miklum hluta.
Þar á að gera opið svæði að mestu,
en einnig einhverjar byggingalóðir.
Þá er verið að bora eftir köldu vatni
á vegum Vatnsveitunnar og kosta
þær framkvæmdir u.þ.b. eina millj-
ón.
Isak segir bjartsýni ríkja í sveitar-
félaginu. Nóg vinna sé eins og er og
fyrirtæki eins og Kambfell hafi auk-
ið frystigetu sína verulega og eins
GSR, en þar sé tiltölulega nýbyrjað
að frysta. Þá séu KK-matvæli komin
í nýtt húsnæði, en þar sé fyrirtæki
sem eigi möguleika á að stækka tals-
vert. Botnlaus vinna hafi verið á
vélaverkstæðum og Hönnun og ráð-
gjöf þenjist út. Þá sé Trévangur mjög
vaxandi verktakafyrirtæki.
Loðnusamn-
íngarnir
kærðir
Starfsmenn loðnuverksmiðjunnar á
Eskifirði hafa ákveðið að kæra fram-
kvæmd kosninga um kjarasamninga
starfsfólks í loðnuverksmiðjum á
Austurlandi, sem voru samþykktir
með naumum meirihluta. A meðal
þess sem þeir telja orka tvímælis um
framkvæmd kosninganna, er að reynt
hafi verið að hafa áhrif á starfsmenn á
Eskifirði með alls konar gylliboðum
á kjörstað, rétt áður en þeir fóru í
kjörklefann. Einnig telja þeir að
óeðlilega langur tími hafi liðið frá því
að skrifað var undir samningana þar
til að greidd voru um þá atkvæði.
Úrslit kosningana voru ljós um há-
degi á mánudag. Samkvæmt ákvæði í
samningum var atkvæðunum öllum
blandað í einn pott og síðan talið. Úr-
slit urðu þau að af 63 á kjörskrá
greiddu 62 atkvæði. Sögðu 35 já en
27 nei og voru samningamir því sam-
þykktir með 8 atkvæða mun. Samn-
ingamir náðu yfir fjórar verksmiðjur,
á Eskifirði, Neskaupstað, Vopnafirði
og Homafirði.
Frá Eskifirði.
Úr myndasafniAustra, mynd mm..
Ungmenni nota öskudaginn gjarna til að skrýðast hinum undarlegustu klœðum, œfa raddböndin og kýla vömbina. Þessi föngulegi
hópur var engin undantekning frá því, kyrjuðu fjörug lög og úðuðu í sig því gómsœta gúmmulaði sem að þeim var rétt.
Austramynd: AS
Vegurinn yfir Skeiðarársand
ilbúinn í júlí
Auglýst hefur verið útboð í end-
urbyggingu vega og varnargarða
sem skemmdust í Skeiðarárhlaupinu
í nóvember sl. Litlar breytingar
verða gerðar á þessum mannvirkj-
um og viðamestu lagfæringarnar
felast í að ýta efni í þau skörð sem
vatnsflaumurinn gerði. Vegur sem
leggja þarf er 8,9 km að lengd og
vamargarðar 6 km.
Vinnusvæðið byrjar 1,6 km aust-
an brúarinnar á Skeiðará og nær
vestur fyrir Stórafarveg. Heildarefn-
ismagn í fyllingar, burðarlög og rof-
vamir er um 370.000m3. Verkið var
boðið út 10. feb. og er ætlað að því
ljúki í júlí nk.
Framkvæmdir eru fjármagnaðar
þannig að tekin er af vegaáætlun
upphæð sem svarar kostnaði við
endurgerð vegar og vamargarða, en
brýr voru tryggðar hjá Viðlaga-
tryggingu. Ekki verður ráðist í fram-
kvæmdir við Gígju í þessum áfanga,
en gert er ráð fyrir að þar verði unn-
ið frá október 1997 til júní 1998.
Fyllingum verður ýtt upp að
mestu, en sá háttur var einnig hafður
á þegar vegurinn var byggður upp-
haflega, á ámnum 1973-1974.
Gert er ráð fyrir mjög litlum
breytingum á varnargarðakerfinu
við Skeiðará. Garðarnir eiga að
bresta þegar rennsli fer yfir
9.000m3/sek. I gögnum frá Vega-
gerðinni kemur fram að ef auka ætti
að einhverju marki það vatnsmagn
sem sleppur út úr garðakerfinu, um-
fram það sem átti sér stað í hlaupinu
í nóvember, þyrfti að breyta þeim
hluta garðakerfisins sem stóðst
hlaupið. Það yrði, að mati Helga Jó-
hannessonar, best gert með því að
færa garðana, sem byggðir voru árið
1985 við Skaftafellsbrekkur, út fyrir
upphaflega garðakerfið og nær
þjónustumiðstöðinni. Ekki er talið
mögulegt að ráðast í slíka breytingu
án ítarlegrar kynningar og umræðu
og óvíst að slfk breyting væri æski-
leg, jafnvel þó að með henni mætti
auka öryggi brúarinnar í stórflóðum.
- milljónir á laugardögum!
Loðnir loðnusamningar!
Ný vinnslulína hjá Borgey hf.
Afköst
tvöfaldast
Um þessar mundir er verið að taka í notkun nýja vinnslulínu hjá
Borgey hf. á Höfn. Hún byggir á mikilli sjálfvirkni og afkastar um 350
tonnum af loðnu á sólarhring.
í vinnslulínunni eru fjórar sjálfvirkar pökkunarlínur, sem þróaðar
voru í samvinnu Borgeyjar, Sameyjar og Landssmiðjunnar, árið 1994.
Þá eru frystikerfin fjögur og drifin af díselvélum. Frystikerfin eru sjálf-
stæðar einingar og eykur það á rekstraröryggi.
Algjörlega ný tækni við frystingu á loðnu og síld er tekin í notkun
með nýju vinnslulínunni og er gert ráð fyrir að afköst tvöfaldist miðað
við síðustu vertíð, en með u.þ.b. helmingi færri starfsmönnum á hvorri
vakt. Þá á aðstaða starfsfólks að batna til muna og hefur erfiðustu og
hættulegustu störfunum verið útrýmt.