Austri


Austri - 13.02.1997, Page 2

Austri - 13.02.1997, Page 2
2 AUSTRI Egilsstöðum, 13. febrúar 1997. niisnti Útgefandi: AUSTRI Tjamarbraut 19, 700 Egilsstaðir. Sími 471-1984. Fax 471-2284. Módem 471-2594. Netfang: austri@eldhorn.is Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson. Útgáfustjóri: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir. Blaðamenn: Amdís Þorvaldsdóttir, S. Bjöm Blöndal, Marinó Marinósson Áskriftarverð pr. mán. kr. 500.-m/vsk. Setning og umbrot: Austri Prentun: Austprent Efni skal skila í tölvutæku formi (dos, Word) eða vélrituðu. Austri er aðili að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Breytingar í samgöngumálum Frá og með 1. júlí næstkomandi falla niður sérleyfi á flugleiðum innanlands. Þess sjást nú merki að flug- rekstraraðilar búi sig undir þessa breytingu. Flugleiðir og Flugfélag Norðurlands hafa sameinast í einu félagi sem ber það gamla nafn Flugfélag íslands og ætlað er að sinna innanlandsflugi við þessar breyttu aðstæður. Með þessu má segja að aðeins tveir aðilar séu eftir á innanlandsmarkaðnum, Islandsflug og þetta nýja félag með gamla nafninu. Flug er afar þýðingarmikið fyrir Austurland, þannig að ástæða er til að fylgjast grannt með framgangi mála. Eftirsóknarvert er að ná niður verði á flugfargjöldum með samkeppni, en ekki má gleyma öðrum þýðingar- miklum þáttum, svo sem öryggi flugfarþega, sem ætíð verður að vera í fyrirrúmi. Hætt er við að hið nýja félag verði markaðsráðandi, en þó verður reynslan að leiða í ljós hvort um raunveru- lega samkeppni verður að ræða. Farþegar í innanlands- flugi gera kröfur um þægindi sem fylgja jafnþrýstiklef- um í flugi og öryggi. Mjög kostnaðarsamt er að uppfylla þessar kröfur og ryðja sér jafnframt til rúms á markaðn- um. Ymsar blikur eru á lofti í samgöngumálum þegar flug- inu sleppir. Sérleyfi á landleiðum eru sums staðar í upp- námi, vegna þess að Flugleiðir og Póstur & sími hf. hafa sagt upp samningum um flutninga. Grundvallaratriði er, fyrir samgöngur í fjórðungnum, að almenningssamgön- gur milli staða séu tryggðar allt árið og full þörf er á að endurskoða stuðning ríkisvaldsins með tilliti til breyttra aðstæðna. Ríkisvaldið veitir stuðning nú þegar, en hann er einkum bundinn vetrarsamgöngum og þeim sem þurfa að bregðast við erfiðri færð. Vegamálin eru svo einn þáttur enn sem mun verða til umræðu á næstunni og er reyndar ætíð í umræðunni. Þær aðstæður blasa nú við á Austurlandi að stór hluti vegakerfisins er sprunginn undan þungaflutningum bíla sem draga fullhlessta fjörutíu feta gáma. Breyttar áætl- anir skipafélaganna og hin miklu umsvif í sjávarútvegi hafa skapað þær. Uppbygging vega á Austurlandi, með hinum mörgu fjallvegum og gífurlegu vegalengdum, hefur gengið hægar en skyldi, en þarna eru aðstæður komnar upp sem þarfnast sérstakrar skoðunar og úrbóta. Nú er uppbyggingu vegar yfir Oddsskarð lokið og að ljúka yfir Fjarðarheiði. Tvímælalaust á nú að auka vetr- arþjónustu á þessum leiðum, burtséð frá því hvað verð- ur um framkvæmdir við jarðgangnagerð. Þá er ástæða til að minna rækilega á það heiðursmannasamkomulag sem var um að jarðgöng á Austurlandi kæmu á eftir Vestfjarðagöngum og mótmæla tilraunum samgöngu- ráðherra til að drepa því máli á dreif. J.K. Egilsstaðabúar, standið ykkur í „Gjugginu“ Helgina 21. til 23. febrúar verður svokölluð Gjugghelgi með tilheyrandi uppákomum í Egilsstaðabæ. Gjugg- helgin er samstarfsverkefni Flugleiða og Egilsstaðabæjar, en hinn síðamefndi tekur þátt í verkefninu ásamt fimm öðrum kaupstöðum og hafa nokkrar gjugghelgar nú þegar verið haldnar víðs vegar um land. Markmið- ið er að fá fólk af suðvesturhominu til að heimsækja landsbyggðina og kynnast því sem þar er í boði. Á Egilsstöðum setur árstíminn sinn svip á viðburðina. Vetraríþróttir verða í öndvegi og stendur margt til boða, s.s. skíðaferðir í skíðamið- stöðvamar í Oddsskarði og Stafdal. Farið verður í skógargöngu á skíð- um í Selskógi ef aðstæður leyfa og þar verður á laugardagskvöldið gönguferð með leiðsögn sem endar við útileikhúsið, þar sem unað verð- ur við varðeld og ýmis skemmtiatriði. Handverksfólk verður einnig á vaktinni um helgina. M.a. gefst fólki kostur á að fylgjast með Guðrúnu Sigurðardóttur í Tómstundaiðjunni gera skógarskreytingar, í Listiðjunni Eik verður opið hús og listsýning og Randalínur sýna hvernig unnið er úr endurunnum efnum. Þá verða ýmsar uppákomur á öldurhúsum bæjar- ins og Bíó Valaskjálf efnir til Evrópskra bíódaga. íþróttamiðstöðin verð- ur opin og geta menn á laugardagsmorguninn bmgðið sér í sund, bad- minton eða körfubolta. Á sunnudag verður Minjasafnið opið og efnt verður til hestaferðar. Egilsstaðabúar vonast til þess, að sem flestir sæki þá heim um þessa helgi til að taka þátt í „gjugginu“ og verður gestum, sem fara um flug- stöð, fagnað með lúðrablæstri sem framinn verður af nemendum Tón- skólans, bæði við komu og brottför. Gjugghelgin stendur þó og fellur með bæjarbúum sjálfum og er hér með skorað á þá að taka vel á móti gestum sínum og taka virkan þátt í því sem í boði er. í vændum er mik- ið hátíðarár með fjölbreyttum viðburðum í tilefni 50 ára afmælisins og því tímabært að hefja upphitun. FUNDARBOÐ Egilsstaðir Bæjarstjórnarfundir eru haldnir 1. og 3. þriðjudag í hverjum mánuði. 1. og 3. mánudag kl.20:30 er bæjarmálafundur í Austrahúsinu, þar sem bæjarfulltrúar Framsóknarmanna ræða bæjarmálin. Næsti fundur er mánu- daginn 17. febrúar. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Egilsstaða Minnum á afmœlistilboðið cn / • .. 'JÉb sem er 50 skipti og Góð verðlaun og viðurkenninga\ Nánuri upplýsbiear i s. 471-1866 5S stendur til 24. maí. 5. Djöflaeyjan, kvikmynd Friðriks Pórs Friðrikssonar, er gerð eftir vinsælum skáldsögum. Hver er höfundur þeirra? Til þess að taka þátt í getraion- inni verður fólk að vera áskrifend- ur eða gerast áskrifendur á tima- bilinu. Skila verður inn svörum við öllum 10 hlutunum, en hver inniheldur 5 spurningar. Auglýst verður síðar hvenær skilafrestur rennur út. Verðlaunin eru ekki af verri end- anum: flugferð fyrir tvo með ís- landsflugi, flugferð fyrir einn með íslandsflugi, ferðatæki með geisla- spilara, bíómiðar í Bíó Valaskjálf, VHS myndbandsspólur með efni að eigin vali. ?íí 1. Gunnar Gunnarsson rithöfundur byggði sér mikið slot á jörð í Fljótsdal árið 1939. Hvert er nafn jarðarinnar? 2. Hvað var leyniþjónusta komm- únistastjórnarinnar í Austur- Þýskalandi kölluð? 3. Hvaða lið varð íslandsmeistari í blaki kvenna á síðustu leiktíð? 4. Hver er stærsta eyjan við Austur- land? ISLANDSFLUG

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.