Austri


Austri - 15.01.1998, Qupperneq 5

Austri - 15.01.1998, Qupperneq 5
Egilsstöðum, 15. janúar 1998. AUSTRI 5 Vegaáætlun 1999-2010 Um þrír milljarðar til Austurlands Hagyrðingakvöld í Tungubúð Gerð hefur verið langtímavegaá- ætlun í vegagerð fyrir árin 1999- 2010. Tillagan byggir á að vinnu- brögðum við gerð vegaáætlunar og langtímaáætlunar verði breytt, eink- um er varðar val verkefna á stofnveg- um, röðun þeirra og úthlutun fjár- magns. Fjármagn sem á að afla til vega- gerðar og verja til framkvæmda er: 1999-2002: 35.297 milljónir króna, 2003-2006: 37.217 milljónir króna, 2007-2010: 38.839 milljónir króna. Stefnt er að því að gera eftirfarandi á tímabilinu: - Ljúka hringveginum með bundnu slitlagi og vegum af honum til þétt- býlisstaða með 200 íbúa eða fleiri. - Tengja saman með uppbyggðum vegi nálæga byggðakjama með fleiri en 1000 íbúa á hvomm stað (fjarlægð < 80 km og stytting miðað við aðrar tengingar, sem em fyrir hendi >150 km). - Leggja bundið shtlag á mikilvæg- ar ferðamannaleiðir með mikla um- ferð (sumaramferð > 200 bílar á dag). - Endurbyggja brýr á helstu flutn- ingaleiðum (Hringveginum og teng- ingum þéttbýla við hann), sem ekki þola fullan þunga (Evrópu- þunga). - Breikka vegi þar sem umferð er svo mikil að flutningsgeta og umferð- aröryggi verða vandamál. - Endurbyggja kafla með mikilli umferð (>500 bflar á dag) þar sem bundið slitlag var lagt á gamla vegi án endurbóta og reynst hafa hættuleg- ir. - Breikka einbreiðar brýr á Hring- veginum þar sem umferð er mikil (>400 bflar á dag). I þessari upptalningu em verkefni á Höfuðborgarsvæðinu ekki tekin með, en þau hafa verið undir sérstökum lið og er miðað við að svo verði áfram. Skv. áætluninni er ekki miðað við að fara í neinar framkvæmdir á Breiðdalsheiði og við lokaafgreiðslu áætlunarinnar á Alþingi í vor hljóta þingmenn kjördæmisins að leggja áherslu á að breyting verði gerð þar á. Þá eru engar sérstakar jarð- gangnaframkvæmdir fyrirhugaðar, en að sögn Jóns Kristjánssonar, al- þingismanns, þýðir það ekki að búið sé að loka á þær. I þingsályktunar- tillögunni segir að „ef til slíkra framkvæmda kemur á áætlunar- tímabilinu er gert ráð fyrir að það verði samkvæmt sérstakri ákvörðun stjórnvalda þar sem einnig verði tekin afstaða til fjármögnunar." A hinn bóginn er veitt nokkm fé til jarðgangnarannsókna á Austur-, Norður- og Vesturlandi, samtals 120 milljónum króna á tímabilinu. Skv. vegaáætlun fyrir tímabilið 1997-1998 verður farið í eftirfarandi framkvæmdir á Austurlandi á þessu ári: Almenn verkefni og bundið slitlag Jökulsá - Biskupsháls: lOmilljónir. Skóghlíð - Urriðavatn: 40 milljónir. Stórverkefni Tenging Norður- og Austurlands: 180 milljónir. Jökulsá á Dal: 20 milljónir. Austurlandsgöng: 3 milljónir (rannsóknir). Framkvæmdaátak Almenn verkefni. Þéttbýlisstaðir á Austurlandi, lag- færingar á þjóðvegum: lOmilljónir. Tengivegir Á Vatnsskarði: 36 milljónir. Þann 29.nóvember sl.var haldið hagyrðingakvöld í Tungubúð. Þetta er í annað sinn sem Umf. Hróar sér um að halda slíkt kvöld og hafa þau tekist mjög vel. -Bæði hefur aðsókn verið góð og frábærir hagyrðingar hafa komið þar fram og skemmt áhorfendum með stórkostlegum vísum, stökum og heilum kvæðabálkum. Að þessu sinni voru það þeir Hákon Aðalsteinsson, Brynjólfur Bergsteinsson, Einar Einarsson og Þorsteinn Bergsson sem sátu háborðið og vill Umf. Hróar nota tækifærið og þakka þeim fyrir ánægjulegt kvöld og velvild í garð félagsins. í haust var auglýst samkeppni um ljóð sem fjalla skyldi um Fljótsdalshérað og bárust nokkur. Þau voru öll mjög góð og erfitt að gera upp á milli þeirra en eins og alltaf þegar keppni er þarf að finna sigurvegarann og reyndist hann vera Sævar Sigbjarnarson í Rauðholti með ljóð sem hann kallar Haustfagnaður á Héraði. Dómnefndin ákvað einnig að veita aukaverðlaun fyrir annað ljóð, sem reyndist vera eftir Brynjólf Bergsteinsson á Hafrafelli, en hann var sigurvegari í ljóðakeppni í fyrra. Heitir það Óður Héraðsbúans og fara þau bæði hér á eftir: Haust fagnaður á Héraði Fljótsdalshérað fegurst er á fóstutjörðu, fljótt og vel með frœgð og þokka, fólkið til sín kann að lokka. Okkur sem það 61 og geymdi í gróðurfaðmi gerði það að góðum mönnum, sem gleðjast nú að loknum önnum. Hérna skulum sameinast í söng og gleði, þó lengist nótt og líka snjói, lögur frjósi, dökkni mói. Hérað aftur kallar alla að vaka og vinna, þegar vor í viði ómar, vökna rósir söngur hljómar. Innjluttir þá ánetjast fljótt okkar lífi, með akra og skóg til allra handa, úr því verður frábœr blanda. Sævar í Rauðholti. Óður Héraðsbúans Fagur var fjallahringur fyrst þá augað leit. Dœmdi svo drengur slyngur dáði strax þann reit. Æskuárin líða oft með góðan feng. Fljótsdalshérað fríða faðmaði þennan dreng. S Sér léttstígur lék um grundir við Lagarins þunga nið. Lét ekki líðandi stundir lokka sig út á mið. Sá í sveitinni víða söngfugl á birkigrein. Fljótsdalshérað fríða faðmaði vaxinn svein. Lœrði þá list að lifa við land sem grœða þarf. Menntun manns að skrifa var meitluð í hans starf. Oft var strít að stríða og stefnuleysið faitn. En Fljótsdalshérað fríða faðmaði stœltan mann. Oft borgir í heimi hafa heillað marga stund. Fullorðinn var ekki í vafa valdi Héraðsgrund. Ol þar sinn aldurinn blíða alsœll við hlið hvers manns. Um Fljótsdalshérað fríða var ferðasaga hans. í ellinni sat í sœti með sigurbros á vör. Léttur af lífsins kceti lagði í hinstu fór. Sjálfsagt mun sálin hlýða á söng frá englafans. En Fljótsdalshérað fríða faðmar nú beinin hans. Brynjólfur á Hafrafelli. Margrét Árnadóttir Hallfreðarstöðum. Vegaáætlun 1999-2010, Austurland Tillaga um skiptingu fjármagns til nýframkvæmda Stórverkefni 1. tímabil 2. tímabil 3. tímabil 1999-2002 2003-2006 2007-2010 m.kr. m.kr m.kr. Lagarfljót 410 Jökulsá í Lóni 330 Brýr í Öræfum 290 Hringvegur á Austurlandi 630 630 50 Hringvegur-Vopnafjörður 100 100 280 Eyvindará 90 Hólmsá á Mýmm 80 Jarðgangnarannsóknir, landið allt 40 40 40 Óráðstafað, Landið allt 208 Meira um mannfjöldann í síðasta blaði birtust tölur um mannfjölda í Austurlandskjördæmi. f greininni vom prósentutölur í Neskaupstað og Hofshreppi mínustölur, en áttu að vera plústölur. í Neskaupstað fjölgaði íbúum um 2,24%, og í Hofshreppi fjölgaði íbúum um 0,93%. Austri biður lesendur velvirðingar á þessum mistökum. Til gamans fylgja hér með mannfjöldatölur í einstökum kjördæmum landsins. Höfundur segir í inngangsorðum 1196 1997 breyt.tala breyt.% bókarinnar: „íslensk biblíumáls- Reykjavík 105.487 106.617 1.130 1,07 hefð er því eldforn, hefur haldist Reykjaneskjörd. 71.446 73.443 1.997 2,80 órofin frá elstu heimildum, og hún Vesturlandskjörd. 13.995 13.934 -61 -0,44 hefur átt ríkan þátt í að móta rit- Vestfjarðakjörd. 8.856 8.634 -222 -2,51 menningu íslendinga. Það lætur því NorðurLkjörd. vestra 9.989 9.804 -185 -1,85 að líkum að áhrif Biblíunnar á ís- Norðurl.kjörd. eystra 26.652 26.588 -64 -0,24 lenskt mál séu afar margþætt. Þau Austurl.kjörd. 12.684 12.548 -136 -1,07 koma m.a. fram í almennu málfari, Suðurl.kjörd. 20.626 20.496 -130 -0,63 í flestum greinum íslenskra bók- Landlð allt 269.735 272.064 2.329 0,86 mennta og í lagamáli svo að nokk- uð sé nefnt“ Höfundur segir einnig: Höfuðborgarsvæðið 160.629 163.649 3.020 1,88 „Orðfræðileg áhrif Biblíunnar eru önnur sveit.fél. 109.106 108.415 -691 -0,63 svo mikil að telja má fullvíst að ekkert eitt rit hafi haft jafngagnger Samkvæmt framreikningi Hagstofunnar á mannfjöldaþróun verða íslend- áhrif á íslenska tungu og Biblían". ingar orðnir 279.908 árið 2000 og 297.593 árið 2010. RÆTUR MALSINS Út er komið eftir Jón G. Friðjóns- son, prófessor, stórbrotið grundvall- arrit um íslenskt mál sem nefnist RÆTUR MÁLSINS og er sjálfstætt framhald bókarinnar MERGUR MÁLSINS sem hlaut íslensku bók- menntaverðlaunin 1993. Að baki þessara tveggja bóka liggur margra ára þrotlaus vinna höfundarins. Rætur málsins eru prýddar hundruðum teikninga eftir lista- manninn Freydísi Kristjánsdóttur. Myndirnar varpa skemmtilegu ljósi á þær líkingar sem liggja að baki málsháttunum og orðatiltækjunum. Siglaugur Brynleifsson fjallaði um Rætur málsins í Lesbók Morg- unblaðsins þann 29. nóv. sl. og sagði þar m.a.: „Rætur málsins er safn orðatiltækja og málshátta, eitt- hvert viðamesta safn þeirrar tegund- ar sem sett hefur verið saman hing- að til og einnig málsöguleg heimild, tlvísun inn í meðvitund margra kyn- slóða, kynslóða sem voru mótaðar af þesari bók bóka, sem markaði daglegt málfar og endurnýjaðist og breyttist í aldanna rás en alltaf tengd málshefð upprunans. Rit þetta er málsöguleg snjallyrða náma, upp- flettirit og til lestrar þeim sem hafa unun af ágætustu textum íslenskrar tungu. Vinnan við þetta verk og full- vinnsla þess í bókarformi, er afreks- verk og ber vitni um einstaka ná- kvæmni, eljusemi og næmleika fyr- ir íslensku máli. Islendingar standa í þakkarskuld við Jón G. Friðjóns- son.“ RÆTUR MÁLSINS em gefnar út af íslensku bókaútgáfunni (áður Öm og Örlygur bókaklúbbur). Þær eru prentaðar hjá Félagsprentsmiðjunni Gutenberg og bundnar hjá Félags- bókbandinu - Bókfelli. Bókin er 608 bls. Leiðbeinandi verð hennar er kr. 7.980,-

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.