Austri


Austri - 15.01.1998, Side 6

Austri - 15.01.1998, Side 6
6 AUSTRI Egilsstöðum, 15. ianúar 1998. Til umhugsunar fyrir þingmenn Austurlandskj ördæmis Spurning víkunnar Varst þú farin(n) að sakna snjósins? Haraldur Hállsteinsson, Snæfellsnesi: Nei, alls ekki. Hafsteinn Jóhannsson, Egilsstöðum: Já, mikið. Lífið er miklu bjart- ara núna. María Valgeirsson, Fáskrúðsfirði: Agalega mikið. Það er enginn snjór hjá okkur. Ágúst Ólafsson, Egilsstöðum: Ju, ég ætla að fara að pússa skíðin og kíkja til fjalla. Ragnhildur Jónsdóttir, Fáskrúðsfirði: Nei, það er ekki hægt að segja það. Annars er mér alveg sama, maður er vanur snjónum héma. Lilja Björk Benediktsdóttir, Neskaupstað: Já, bæði og. Það er vetrarlegra þegar snjórinn er. Ekki alls fyrir löngu var sagt frá því í fréttum og haft eftir Halldóri Blöndal, samgönguráðherra, að Al- þingi hafi veitt hundrað milljóna króna upphæð á fjárlögum til að rannsaka hugsanlegan kostnað við jarðgangnagerð á Austur-, Norður- og Vesturlandi. Ég leyfi mér hér með að minna þingmenn Austur- landskjördæmis á að fylgja því fast eftir að engir staðir, þar sem hugs- anlegt og skynsamlegt er að kanna kostnað við jarðgangnagerð, verði útundan hér á Austurlandi. Ég vil minna á að síðast þegar hliðstæð athugun var gerð við kostnað við jarðgangnagerð hér á Austurlandi urðu a.m.k. tvær leiðir útundan. Hér á ég að sjálfsögðu við hugs- anleg jarðgöng undir Berufjarðar- skarð, úr Svartagili skammt fyrir utan og ofan bæinn í Berufirði og yfir í Flögudalinn, neðanverðan. Slík jarðgöng myndu stytta veginn, hringveginn, um 45-48 km, enda er brú á ánni rétt fyrir utan Flögu. Jarðgöng þarna í gegn hygg ég að séu ekki nema ca. 1700 til 2000 m. Þau væru verulega mikil stytting á hringveginum og hefðu líka þann kost að þau yrðu það neðarlega í fjallinu að þau yrðu alltaf opin þegar á annað borð er fært um byggðina. Hin jarðgöngin, sem ég tel mjög nauðsynlegt að kanna, hvað myndu kosta eru jarðgöng í gegn- um fjallið innst í Færivallaskriðun- um skammt fyrir utan bæinn Snæ- hvamm í Breiðdal, en Breiðdals- megin er fjallið snarbratt. Stöðvar- fjarðarmegin er ekki nærri eins bratt, en þó hygg ég að jarðgöng þar í gegn séu varla nema 1200- 1500 metra. Ég bið ykkur vinsam- legast að hafa það í huga að í skriðunum milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar hafa orðið nokkur stórslys og má telja að það hafi nánast gengið kraftaverki næst að ennþá hefur ekki orðið dauðaslys þar. Og skemmst er að minnast þess þegar heljarstór skriða féll þar um tveimur mínútum eftir að vega- gerðarmenn voru staddir þar. Svo er samgönguráðherra að gjamma um að vegur nr. 1, hringvegurinn, verði um þessa manndrápsleið. Hann þekkir greinilega ekkert til staðhátta þarna og ætti að spara sér allar yfirlýsingar um þessi mál. Þess vegna skora ég hér með á ykkur alla þingmenn Austurlands- kjördæmis að beita ykkur fyrir því að á næstu þremur til fjórum árum verði vegurinn frá Eydölum í Breiðdal að Stóra-Sandfelli í Skriðdal byggður upp og lagður bundnu slitlagi. Jafnframt lýsi ég ábyrgð á hendur ykkur ef ekki verður búið innan þriggja ára að gera jarðgöng milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar og hinn stórhættu- legi vegur um skriðurnar þarna á milli aflagður. Hver vill bera ábyrgð á því þeg- ar búið verður að beina umferð allra þungaflutningabíla, stórra fólksflutningabíla og venjulegra fólksbíla um veginn í skriðunum? Varla þið, eða hvað? Ég get fullvissað ykkur um það að það er ekki ég einn heldur fjöldi annarra Austfirðinga, sem hefur vaxandi áhyggjur af stórfelldri slysahættu á þessari leið. Þið sem eruð kjörnir fulltrúar okkar fyrir Austurland eigið og getið tekið í taumana áður en það er um seinan, en ekki látið einhverja bjálfa ráða þessu. Ég hef oft áður hvatt ykkur í blaðagreinum til að gera þessar vegabætur síðustu 15-20 árin, en þið hafið ekki tekið neitt mark á viðvörunum mínum. Nú eftir að stóra skriðan féll í Kambaskriðum hef ég orðið mjög mikið var við hve mörgum er þessi vegur mikið áhyggjuefni. Þetta mál þolir enga bið, og ábyrgðin af hugsanlegu stórslysi hvflir á herðum ykkar. Nú er borunartæknin orðin svo full- komin og tiltölulega ódýr. Leggið á minnið þessi varnaðarorð mín. Sigurður Lárusson ísmolar Undanfarna daga hafa þvælst um í hausnum á mér áhugaverð skrif sem ég las í nýútkomnum Glettingi „Vegurinn heim“ eftir Smára Geirsson og svo frétt á Stöð tvö, þar sem fram kom að þrátt fyrir nýsamþykktar tillögur á Alþingi um að malbika alla 200 manna slóða landsins fyrir árið 2010, þá telja þingmenn norður- lands vestra sig hafa loforð fyrir vegagerð um Þverárfjall í allra nánustu framtíð. I Glettings skrifum Smára er sögu vegarins um Oddsskarð gerð góð skil og má þar lesa um framsýni Norð- firðinga að hafa brotið sig út úr viðjum krákustígsins í stað þess að þræða víkur, firði og skriður á veginum heim þó svo að upphaf- lega hafi það verið meiningin. Fram kemur að tilhneiging hafi verið til að þakka Lúvík Jóseps- syni þetta afrek sérstaklega, ein- hvern veginn finnst mér að þetta hafi orðið til þess að honum var tryggt sæti við hringborð riddar- anna. Vegur um Þverárfjall á Skaga styttir vegalengdina milli svæða á Norðurlandi vestra um tugi kílómetra og er einungis merkilegur fyrir þær sakir að þar yrði farið yfir fjall til að stytta vegalengdir og á skjön við útgef- in markmið í vegamálum svipað og Norðfirðingar gerðu í sinni byltingu. Hafi krákustígurinn einhvers- staðar komist nálægt því að ná tæknilegri fullkomnun má segja að það sé á Austurlandi. Nú get- um við verið riddurunum þakklát fyrir að ártalið 2010 er komið til sögunnar, þannig að engin vendi- punktur verður í þessum efnum alveg á næstunni. Hefði slíkt að- eins hatrammar deilur í för með sér innan fjórðungs og er nú fólksflóttinn nógur fyrir. Stund- um hefur því verið fleygt að fólksfækkun í fjórðungnum sé samspil margra þátta og sam- göngur geti jafnvel spilað þar inní. Ég efa að svo sé því við svona krákustíg byggja riddarar, stigamenn og almúginn lífssýn sína og virðast flestir vera sam- mála um helgi stígsins. Riddar- ar krákustígsins geta farið um hann og talið hverjum kjósenda trú um að svona sé þetta nú í pottinn búið alveg sérstaklega fyrir þá. Stigamenn krákustígs- ins geta stundað sín óknytti í skjóli skriða og krappra beygja, jafnvel framið mannrán íbúaskrá síns sveitarfélags til hagsbóta. Hefur mig oft undrað það hvað íbúatala sveitarfélags míns hefur haldið velli þrátt fyrir að reikn- ings kunnáttan mín gefi aðrar niðurstöður. En þegar þetta er skoðað nánar í skrá Hagstofunn- ar þarf þetta ekki að koma á óvart því þar hefur mátt finna ungverska fjölskyldu, sem hafði hér stuttan stans fyrir nokkrum árum. En stigamennirnir hafa séð ástæðu til að ásælast ár eftir ár. I einu af næstu húsum við mitt hefur komið fyrir að 1. des. hafa verið skráðar tvær fjögurra manna fjölskyldur til heimilis þrátt fyrir að húsið hafi staðið autt mánuðina á undan og eftir. Síðastliðinn 1. des. varhúsið enn einu sinni tómt og bíð ég nú spenntur eftir útskrift Hagstof- unnar um hverjir nágrannar mín- ir eru. Eins má ætla að sumir sem skráðir eru íbúar hafi ein- ungis verið sakleysingjar á ferð um krákustíginn sem enginn veit frekari deili á. Mig grunar að þessi mannrán séu ekki einsdæmi í mínu sveitarfélagi, svona álfa- byggðir megi finna víða um landið og kannski verðugt rann- sóknarverkefni fyrir fleiri en sýslumanninn í Skorradal. Helsti kosturinn sem svo almúginn sér við þennan krákustíg er að alltaf verður leiðin greiðfærari suður. Stytting vegalengda innan fjórðungs með jarðgöngum og fjallvegum t.d. yfir Öxi virðast því ekki verða ágreiningsmál næstu 13 árin. Vegur um Öxi myndi stytta vegalengdina milli norður og suðurhluta fjórðuings- ins um 60-120 km eftir því hvort miðað er við firði eða Breiðdals- heiði og um 30 km til hins nýja Austurríkis. Fram hefur komið að góður uppbyggður vegur með bundnu slitlagi kostaði um 400 millj. Áætlaður vegur um Þver- Magnús Sigurðsson. árfjall á Skaga myndi kosta um 500 millj. og stytta vegalengdir um 30 km, samkvæmt fyrr- nefndri frétt. Ef minnst er á Öxi sem kost til vegagerðar er ýmis- legt tínt til t.d. gæti snjóað á þennan 20 km kafla, lækirnir eru illteljanlegir, lítið er um ofaní- burð á leiðinni og Djúpavogsbú- ar hefðu mest not af veginum. Reyndar er ekki hægt annað eftir þannig útskýringar en að stóref- ast um eigin dómgreind og kom- ast við yfir þeirra eindæma snilld að hægt hafi verið að þræða krákustíginn um þau svæði sem þessir annmarkar voru viðráðan- legir. Ur því að „Vegurinn heim“ var ekki lagður lengra en í Viðfjörð og að ekki var farið út á Barðs- nes og um Hellisfjörð til Norð- fjarðar, heldur frá Eskifirði um Oddsskarð, má segja að þar hafi verið framið eitt stærsta stflbrotið á krákustígnum. Trúir þú á álfa- sögur? Magnús Sigurðsson

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.