Austri


Austri - 15.01.1998, Page 8

Austri - 15.01.1998, Page 8
Upplýsingar og bókanir í síma 471 1122 ATR - 421 Jafnþrýstibúnaður 46 sœta I 3 f óhöfn Þegar þú flýgur með Íslandsflugí tryggir þú áfram hagstæð fargjöld á flugleiðum innanlands ISLANDSFLUG gerir fleirum fært aö fljúga Egifsstöðum, 15. janúar 1998 2. tölublað. Breiðdalshreppur-Djúpavogshreppur Ekki forsendur fyrir sameiningu í byrjun desember barst Djúpa- vogshreppi erindi frá Breiðdalshreppi um hugsanlega sameiningu þessara sveitarfélaga. Niðurstaða sveitar- stjómar Djúpavogshrepps var að for- sendur fyrir sameiningu væm ekki fyrir hendi, en taldi rétt að skoða samstarf þessara sveitarfélaga á ýms- um sviðum. Ólafur Ragnarsson, sveitarstjóri, segir það hafa verið mat sveitarstjóm- ar Djúpavogshrepps, að sameining við Breiðdalshrepp væri í raun of lít- il. „Þegar semeinað er, hefur fólk ákveðnar væntingar um aukna þjón- ustu o.fl. og við mátum það þannig að við réðum ekki við að koma til móts við þær væntingar.“ Hann segist hafa lagt til að samstarf milli hrepp- anna verði aukið eftir næstu kosning- ar, jafnvel að hafa sameiginlegar nefndir og samrekstur á skrifstofum. Þetta hefur þó ekki ekki verið rætt til hlítar. Aðspurður um hvort sveitarstjóm Djúpavogshrepps hafi athugað sam- einingu í suðurátt, þ.e. við Austur- Skaftafellssýslu, segir Ólafur það ekki vera á döfinni í augnablikinu, en á hinn bóginn sé samstarf þar á milli að aukast og þar sé fyrir hendi þjón- usta sem ekki verði unnt að koma upp á Djúpavogi. Ólafur segist telja að miðað við auknar kröfur til sveit- arfélaga sé Djúpavogshreppur of lít- ill til að mæta þeim, en segir skiptar skoðanir um það innan hreppsins. Því sé mjög líklegt að leitað verði eftir viðræðum við nágrannasveitarfélög um sameiningu á næstu árum. Gamla KaupfélagshúsiS sem á nœstu árum verður endurbyggt í upprunalegri mynd stendur rétt neöan viö Löngubúö. Myndasafn Austra. Djúpavogshreppur Gamla faktorshúsið endurbyggt Djúpavogshreppur hefur keypt gamla kaupfélagshúsið, Búð 3, sem stendur neðan við Löngubúð. Húsið verður endurbyggt í upprunalegri mynd og hefur Húsfriðunarsjóður gefið vilyrði um styrk til verksins. Húsið er timburhús var byggt um 1850 og var það framan af bústaður faktors hjá Djúpavogshöndlun og gekk undir nafninu Faktorshúsið. Það komst síðar í eigu Kaupfélags Bemfjarðar sem byggði við það við- byggingu úr steini árið 1930 og rak þar verslun fram til ársins 1986. Faktorshúsinu er ætlað það hlutverk í framtíðinni að hýsa bókasafn Djúpavogshrepps, ásamt fuglasafni og steinasafni sem hreppurinn fékk að gjöf fyrir nokkru síðan. Húsið keypti hreppurinn af útgerðarfélag- inu Tríton og var kaupverðið 3,7 milljónir króna. Nýju eigendurnir tóku við því um áramót og verður það, til að byrja með, nýtt að hluta sem félagsaðstaða fyrir unglinga. Ætlunin er að bókasafnið verði flutt í viðbygginguna næsta sumar en hún verður síðar látin hverfa. Ólafur Ragnarsson sveitarstjóri telur að það muni taka fjögur til sex ár að gera upp húsið og hefur nú þegar verið sótt um styrk úr Húsfriðunarsjóði. Svavar, Helgi (Starfsmaður FMA) og Kolbrún Svavar og Kolbrún í eina sæng með FMA Vöruflutningar Svavars og Kol- brúnar, Flutningamiðstöð Austur- lands og Landflutningar-Samskip hafa gert með sér samstarfssamning sem tekur til vömflutninga og vöm- afgreiðslu. Þar með sameinast fyrir- tækin um vöruafgreiðslu á Egils- stöðum, og um flutninga á milli Austurlands og Reykjavíkur. Þá flytja Svavar og Kolbrún afgreiðslu sína í Reykjavík aftur til Landflutn- inga í Skútuvogi, frá Vömflutninga- miðstöðinni. I fréttatilkynningu frá Samskip segir að markmið samstarfsins sé að bæta og auka þjónustu við við- skiptavini fyrirtækjanna, hagræða í rekstri og styrkja heildarkerfi flutn- ingaþjónustunnar á Austurlandi. Hass fannst á Egilsstaðaflugvelli - aukin fíkniefnaneysla í fjórðungnum? Sl. laugardag tók lögreglan á Eg- ilsstöðum mann á Egilsstaðaflug- velli með 9 gr af hassi. Jón Þórarinsson, lögreglumaður, segir að meira hafi verið í umferð af fíkniefnum á síðasta ári, en undan- farin ár. Hann segist telja þetta vera svipað um allan fjórðunginn. Jón telur að stór hluti efnisins komi frá Reykjavík, en einnig sé töluvert um að það komi með skipum í gegn um hafnir hér austanlands. Nýtt embætti rannsóknarlög- reglumanns á Eskifirði hefur að sögn Jóns skilað töluverðum ár- angri, og leitt til betri árangurs varðandi fíkniefnamál en fyrr. Þar er nú unnið að samantekt upplýs- inga um fíkniefnamál í fjórðungn- um á síðasta ári og verður fjallað um niðurstöðurnar í Austra þegar þær birtast. Mannekla hefur háð lögreglunni í umdæmi Sýslumannsins á Seyð- isfirði verulega undanfarin ár, og ekki síst í sambandi við fíkniefna- mál. Jón segir það hafa komið fyr- ir að ekki hafi verið hægt að sinna ábendingum um fíkniefni, því lög- reglumaður sem er einn á vakt get- ur lítið gert. A síðasta þingi var samþykkt heimild til að fjölga lög- reglumönnum í umdæminu, en ekkert hefur gerst í því enn. Eldhús- og baðinnréttingar Trésmiðja Fataskápar Guðna J. Þórarinssonar Útihurðir o.fl. Másseli, sími 471-1093 Opið til kl. 23:30 alla daga V Fellabæ Sími 471-1623 Fax471-1693 y Kurl Annars staðar hér í blaðinu er sagt frá hagyrðingamóti sem hald- ið var í Tungubúð þann 29. nóv. sl., en það þótti takast mjög vel. Veg og vanda að undirbúningi mótsins, höfðu félagar í Ung- mennafélaginu Hróari og var Aðalsteinn Hákonarson (Aðal- steinssonar) einn þeirra. Nokkru fyrir mótið ræddust þeir við í síma, Aðalsteinn og Þorsteinn Bergsson bóndi á Unaósi, einn þeirra fjögurra hagyrðinga sem sitja skyldi við háborðið á mótinu. Leyfði Þorsteinn Aðalsteini við það tækifæri að heyra nokkra fyrriparta sem hann hugðist leggja fyrir félaga sína að botna. Var sá sem hér fer á eftir einn þeirra og má ætla að Þorsteinn mæli þama af sárri reynslu: Nú er kommi vont að vera veikja flokkinn kratasóttir. Aðalsteinn botnaði á þessa leið og fer ekki á milli mála að piltin- um kippir í kynið: Ekki er við þvígott að gera gribban rœður Frímannsdóttir. Börkur NK tilbúinn Breytingum á Berki NK er nú lok- ið, en skipið var tekið til gagngerðra breytinga í Póllandi á síðasta ári. Skipið hefur verið lengt um 14,64 m, ný brú hefur verið sett á það, skipt um öll spil, settur sjókælibúnaður o.m.fl. Áhöfn skipsins er nú í Póllandi, ásamt Finnboga Jónssyni fram- kvæmdastjóra Sfldarvinnslunnar, og Freysteini Bjamasyni, útgerðarstjóra. Að sögn Björgvins Jónssonar, starfs- manns Sfldarvinnslunnar, hafa menn verið að prófa skipið undanfama daga og á þriðjudag var vonast til að allt yrði orðið klárt í vikulokin. Þá er meiningin að sigla strax heim. Viðkomustaðir m/f Norröna 1998: Seyðisfjörður - Þórshöfn í Færeyjum - Hanstholm í Danmörku - Leirvík á Hjaltlandi og Bergen í Noregi Hringið og biðjið um áætlun og verðlista ^r*\ AUSTFAR Fjarðargötu 8, 710 Seyðisfirði S: 472-1111 -FAX: 472-1105 Frá Seyðisfirði: /Maí / Júní / Júlí / Ágúst / 28. /4.-U.-18.-og30. /2.-9.-16.-23.-og 30. 6,-13,-20. og 27. *Brottför frá Seyöisfiröi á fimmtudögum nema 8. september sem er þriðjudagur September 3. og 8.*

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.