Austri - 17.12.1998, Page 15
Jólin 1998
AUSTRI
15
lægðarinnar frá þéttbýlinu á vissan
hátt. Fólk vill gjarnan vera í sveita-
kyrrðinni, en fjarlægðin hefur auð-
vitað líka vankanta.
Leggist þið svo í dvala upp úr
miðjum september?
Helga: Nei, það er mikið um það
að fólk kemur hér á haustin, fé-
lagasamtök, hópar og eins eru fund-
ir. Þeir sem lengst eiga að, gista
jafnvel líka.
Nú eruð þið að byrja þriðja
rekstrarárið hérna. Finnst ykkur
að nýjabrumið sé kannski byrjað
að fara af?
Helga: Ekki myndi ég segja það.
Að vísu eru komnir fleiri staðir og
fólkinu fjölgar ekki á svæðinu, en
ég held að þörf hafi verið á þeirri
uppbyggingu sem orðin er í ferða-
mannaiðnaðinum og þetta styðji allt
hvað annað.
Svæðið hérna í kringum
Fossána er svolítið sérstakt og
gróskulegra en umhverfið. Hafið
þið ekkert hugsað ykkur að fara
í skógrækt?
Benedikt: Það verður kannski
það næsta sem ég fer í. Hér er kjarr
sem gefur svæðinu svip og skjól.
Það er búið að grisja hérna og gera
göngustíga sem gestir nýta sér. Það
er mikil vinna að hirða garðinn.
Þetta er um 100 hektara land
þetta afgirta skógarsvæði, sem við
systkinin eigum og sex þeirra hafa
byggt sér sumarbústaði hérna - sjö
ef Svartiskógur er talinn með. Það
má segja þetta sé minn sumarbú-
staður, því við Helga flytjum hing-
að á vorin og svo aftur heim á
haustin.
Hvernig er að búa á tveimur
stöðum ?
Helga: Það var dálítið flókið
fyrst í stað meðan maður var að átta
sig á því hvaða hlutir þyrftu að vera
til á báðum stöðum.
Benedikt: Eftir að við keyptum
tvenna tannbursta hefur allt gengið
vel.
Hvaða máli skiptir þessi rekst-
ur hérna fyrir sveitina í kring og
annað fólk sem hér býr?
Helga: Það er aðallega fólk hér
úr sveitinni sem er í vinnu hjá okk-
ur, þannig að þetta skapar atvinnu
fyrir það. Það er ómetanlegt að geta
leitað eftir vinnuafli hér á bæjunum
þegar mikið er að gera. Þetta bygg-
ist allt á því. Það gengur ekki upp
að vera með fastráðið fólk mestan
hlut árs í svona rekstri.
Hvernig viðbrögð fáið þið frá
gestum sem koma hingað til ykk-
ar?
Helga: Maður verður ekki var
við annað en að þeir séu ánægðir og
þess má geta að gestir sem gista á
tjaldstæðinu eru mjög hrifnir að
geta komið hér inn á hótelið og
fengið sér hressingu.
Benedikt: Eg hef tekið eftir því
og finnst svolítið sérstakt að flestir
okkar gestir, á hvaða aldri sem er,
kveðja með handabandi. Þetta kom
mér á óvart sérstaklega með ung-
lingana. Þetta gefur manni ákveðna
vísbendingu um að dvölin hérna sé
á einhvern hátt sérstök. Þessi sér-
staða skapast kannski ekki síst af
staðsetningunni, staðurinn er lítill
og tengslin verða nánari.
Gefíð þið ykkur einhvern tíma
til að sinna einhverjum áhuga-
málum?
Helga: Því miður er lítill tími í
þau. Við erum í Norður-Héraðs
kórnum .Það er að segja við æfum
með honum, en þegar hann heldur
tónleika er oft eitthvað um að vera
leika?
Benedikt: Já vonandi að þetta
verði hvatning fyrir okkur sveita-
fólkið. Það er ljóst að hefðbundinn
búskapur - kjöt og mjólkurfram-
leiðsla á í varnarbaráttu, svo ein-
kennilegt sem það nú er með þessa
lúksus vöru, en fyrir það verða þeir
að svara sem með sölumál landbún-
aðarins hafa farið. En þó halli und-
an öðrum fætinum má spyrna við
með hinum.
Jólahlaðborðið í Svartaskógi. Við borðið standa þœr Alda Hrafnkelsdóttir, Þórey
Ingimarsdóttir og Helga Jónsdóttir sem heiðurinn eiga af borðinu. Fyrir aftan Helgu
má sjá verðlaunagripinn sem þau hjón hlutu á bœndahátíðinni íhaust. AUSTRI/vms
hér á hótelinu. Nú orðið er fólk í
kórnum alls staðar af Héraðinu og
það er mikið félagslíf og skemmti-
legt í kringum hann.
Nú fenguð þið viðurkenningu á
bændahátíðinni í haust. Finnst ykk-
ur að svona viðurkenning hafi ein-
hverja þýðingu fyrir það fólk sem
enn er að þrjóskast við að búa í
sveitinni og hafa þar afkomumögu-
Þetta sem við höfum verið að
sýsla við hér í sveit hefur gengið
vel og það er mitt mat að það sé síst
verra að reka fyrirtæki í sveit, en í
þéttbýli. Það hagar t.d. víða þannig
til að ár og lækir falla í bröttum
fjallshlíðum og því víða hagstætt að
beisla orkuna og virkja hana og í
framhaldi af því koma á alls kyns
iðnaði - bara nefndu það.
Austri/VMS
Brœðurnir Benedikt og Helgi Hrafnkelssynir við heyskap. Myndin er tekin 1968.
MyndtOrri Hrafnkelsson
Búnaðarbanki íslands
hefur um árabil þjónað
íbúum á Austurlandi.
X
fia/i/iai* oáís/aft lm
á áf*i/ia o(j ó'S'/i(i/f
^ÁÁta^
^/e/fife^He/ófa/
X
Búnaðarbankinn
Egilsstöðum
/
X .e11cIcínv Fjjcínv Í' c L.'.ís c y>/Lli'LLL cc c > I
l.'íl.KíI'l s/lí'. f.í'~L'L.\.C á-cs/cc L'>.<. C t CCÍIL.
Ll ác ccÍc lS jL.'L l'l^ fíl; SnC ící Li .Í l'LI ILl IILL L
Kaupfélag Vopnfírðinga
Mjólkursamlag Vopnfírðinga
Sláturfélag Vopnfírðinga
\__________________ /