Austri


Austri - 17.12.1998, Side 21

Austri - 17.12.1998, Side 21
Jólin 1998 AUSTRI 21 Nokkrar heimildir um B ændakir kj una í Húsavík eystri Elstu heimildir okkar Húsvíkinga (eystri) um kirkjuna eru frá 1834. Hún stóð þá niður á sjávarbakkan- um utan við svonefnt Smáragil. Þar var einnig gamli kirkjugarðurinn fyrir ofan bita á vesturgaflinum að innan hlaupnar úr grópinu. Gólfið á fremsta stafgólfi kirkjunnar laslegt og tvær fjalir á því aldeilis brotnar. Bekkjafóðrin flestöll laus og skrap- Kirkjan í Húsavík ( eystri ), stendur örugg og tignarleg á hólnum sínum, umvafin sóleyjum og öðrum sumargróðri. Mynd/hg sem nú hrynur alltaf meir og meir úr sjávarmegin. Það ár seldi bóndinn í Húsavík Bjarni Jónsson Hallgrími Olafssyni bónda á Hólshúsum part af jörðinni Húsavík og yar Hall- grími falin umsjón kirkjunnar. Virðist þá ástand hennar hafa verið orðið frekar bágborið, svo sem seg- ir í kirkjustól þetta ár. “Kirkjan fyrirfinnst nú að mestu leyti í sama ásigkomulagi og henni er lýst á úttektinni af 29. okt 1832, að því undanteknu að þau þar til greindu brostfeldugheit hafa verið lagfærð og súðlistar settir til beggja stafna. Þar á mót finnast nú þessir gallar á innanbyggingu hússins að standþilið er víða á framhliðinni laust í grópi og sumpart hlaupið úr því. Líka hærufjalimar báðu megin andi og ein skífa af þeim á fremsta gólfi framan megin ónýt. Einnig vantar fóður og uppstandara undir þverbekkinn utanmegin við kirkju- dyrnar. Þar að auki smálista til að hylja rifur meðfram bekkjum. Þilið fyrir kórgaflinum er gisnað frá stafnum í suð-austurhorninu og þyrfti að setja þar góðan lista utan yfir. Þess er og að geta að súðin á úthliðinni er um tvennar fellingar vatnsgengin og líklega feyrnuð, þyrfti hún því að takast af og auka einu borði á alla hliðina fyrir það feyrnaða, sem úr fellur. Gráðan fyr- ir altarinu er mikið lasleg fúin og álíst óbrúkandi lengur. Hleri lasleg- ur fyrir kórglugganum þarf að end- urbætast og þar útskornu bríkur á altarinu setjast fastar. Sendum viöskiptavinum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. K Þökkum samstarf á liðnu ári. ögfræðiþjónusta Austurlands ehf. Bjarni G. Björgvinsson hdl. Lögg. fasteigna- og skipasali Bernhard Bogason lögfræðingur hdl. Veðbréfamiðlari Fagradalsbraut 11, Egilsstöðum Sími 471-1131 Fax 471-2201 L Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi sendir Austfírðingum og Héraðsbúum 0 a bestu jóla- og nýárskveðjur og þakkar samstarf og samskipti á árinu sem er að líða. Við moldir kirkjunnar hefir ekk- ert verið gjört síðan hún var seinast úttekin þarf því ekki síður nú en þá að taka allan suðurvegginn og þak af kirkjunni hið allra fyrsta skeð getur.” (tilvitnun líkur) Á næstu árum virðist hafa verið tekin ákvörðun um að byggja nýja kirkju og skildi hún standa upp við bæinn sunnanverðan. Lauk því verki árið 1844. Er sagt að kirkjan hafi verið “ á 5 stafgólfum, ellefu álnir og þrjú kvartil á lengd innn stafna og þilja og á breidd fjórar álnir og eitt kvart- il, og af gólfi upp í mæni, fimm álnir og þrjú kvartil.” Á kórgafli hafa verið 3 gluggar en tveir á vesturgafli einn sitt hvoru megin við hurð, en hliðarveggir og þak úr torfi. Ur gömlu kirkjunni voru notaðir eftirtaldir munir: kirkjuhurðin, altari, predikunarstóll, tvær klukkur, nýlegur hökull, rikki- lín, altarisklæði, silfurkaleikur með patínu og dúk, skírnarfat úr tini, tveir koparstjakar, aldamótasálma- bók og graftól. Upp úr aldamótum fór kirkjan að láta verulega á sjá og árið 1930 var hún orðin svo léleg að prófastur taldi að yrði hún ekki lagfærð mætti til að leggja niður söfnuðinn sem sér söfnuð og sameina hann Bakka- gerðis- eða Klifsstaðarsókn. Árið 1931 keyptu móðurbræður mínir, Magnús, Anton, Gunnþór og Kristinn Þorsteinssynir frá Litluvík, Heima-Húsavík og það ár var tekin ákvörðun um að rífa kirkjuna, selja úr henni timbur og járn og byggja nýja.Á næstu árum var þeim send teikning fá Biskupsstofu sem þótti of viðamikil. Árið 1937 var svo byrjað að byggja kirkjuna sem nú stendur. í aftakaveðri 5. mars 1938 fuku íbúð- arhús og flest öll gripahús í Heima- Húsavík. Kirkjan var þá í smíðum og skemmdist nokkuð á henni báru- járnsklæðningin, vegna grjótfoks ofan af bæjarhólnum, en hún stóðst stormviðrið að öðru leyti. Dældirnar sjást í járninu enn þann dag í dag. Byggingu kirkjunnar lauk árið 1939, en hún er úr timbri, jámklædd Að innan er panilklædd boga- hvelfing og veggir, fjórir bekkir hvoru megin sem rúma alls 24 í sæti. Við erum búin að endurnýja tvo glugga af fjórum, hurðina og kirkjan er máluð reglulega. Stend- ur hún öllum opin á sumrin og þeg- ar við frændfólkið erum á staðnum, skartar hún öllum sínum munurn. Undanfarin ár um hásumarið hef- Eftir guðsþjónustu í Húsavíkurkirkju, 25. júlí 1998. Sr. Þórey Guðmundsdóttir og Guðmundur Sigurðsson, organisti umkringd ánœgðum og þakklátum kirkjugestum. Mynd/lig á steyptum grunni 8 1/2 alin á lengd og 6 álnir á breidd ( um 20 fer- metra). I klukknaporti er ein klukka því hin klukkan var seld til Bakkagerð- iskirkju, svo hægt væri að kaupa efnivið í kirkjuna. Af gömlu mununum eigum við því; aðra klukkuna, hökulinn, rikki- línið, skírnarskálina og koparstjak- ana. Síðar gaf Ingibjörg Magnús- dóttir móðir Húsavíkurbræðra altar- istöflu, sem er mynd af fjárhirðin- um. Númeratafla kom síðastliðið sumar smíðuð af Svani Bragasyni. ur séra Þórey Guðmundsdóttir predikað í kirkjunni, einnig séra Sverrir Haraldsson sem nú er látinn. Þau hafa gift og skírt meðlimi Húsavíkurættarinnar og eru þessar stundir okkur ættingjunum ógleym- anlegar. Að endingu vil ég biðja litlu kirkjunni okkar guðs blessunar og ykkur lesendur góðir óska ég gleði- legra jóla og bið ykkur guðs bless- unar á nýju ári. Ingibjörg Ósk Óladóttir. Gleðilegjól -þarsemtryggingar snúast um fólk Svæðisskrifstofa Egilsstöðum, Svæðisskrifstofa Eskifirði, Miðvangi 2, sími 471-1975 Strandgötu 19, sími 476-1272 tfiviaf{(/>/ a/aa('///(/>> offar oy fuAffi/’cíáiyu/Ji öfff/ii (jWf// óf/fir rt/ii fy/ccíi/cfjf)f oof(rxœ/f fo/ncf/if/t ó/r. Po/f/tM aiffsii/i tn a ári/t Faskruðsfiröi Fellabæ Höfn Neskaupstað Reyðarfirði

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.