Samtökin '78 - Sjónmál - 15.05.1991, Side 1
1.TBL. 1.ÁR
MAI 1991
Með
lesbíum í
Madrid
• • •
Heiftarleg
árás
á rokkara
• • •
Jákvœðir
dregnir í
dilk
• • •
Þorirðu að
sofa hjá
manni sem
hóstar?
• • •
Nýtt
kvennablað
í haust
• • •
„Kína-
lífselexír“
Lesbíur og hommar á íslandi
Baráttan fyrir
réttlátri löggjöf
eftir Þorvald Kristinsson
Árið 1985 var lögð fram á Al-
þingi þingsályktunartillaga um
afnám misréttis gagnvart lesbí-
um og homrnum. Að henni
stóðu þingmenn fjögurra
flokka, en Kristín Kvaran frá
Bandalagi jafnaðarmanna var
fyrsti flutningsmaður tillögunn-
ar. Tillögunni var síðan vísað
til Allsherjarnefndar og ,jörð-
uð með kransi“ eins og það
heitir á þingmannamáli.
Eyrnalangir þóttust líka hafa
hlerað að karlmenn í nefndinni
hafi talið málið „ekki brýnt“.
Þessi merka tillaga var tví-
þætt. Annars vegar var þar lýst
vilja Alþingis til að vinna gegn
misrétti gagnvart samkynhneigð-
um hér á landi. Hins vegar var
ríkisstjóminni falið að skipa
nefnd til að kanna lagalega, fé-
lagslega og menningarlega stöðu
lesbía og homma, og gera tillög-
ur um úrbætur og nauðsynlegar
lagasetningar.
En dugandi þingmenn hafa
það að leiðarljósi að taka ekki
nei fyrir nei, eins og þar stendur.
Á síðastliðnum sex árum hefur
margt gerst í réttindamálum ná-
grannalanda okkar. Flestir kann-
ast við vemdarákvæði þau sem
aukið var í norska löggjöf 1981,
lög um skráða sambúð samkyn-
hneigðra hafa gengið í gildi í
Danmörku og eru væntanleg í
Noregi og Svíþjóð.
Hvað ísland snertir skiptir það
miklu máli að æ fleiri stjóm-
málamenn verða sér þess betur
vitandi að við höfum dregist
heldur betur aftur úr hvað bætur
á réttarstöðu homma og lesbía
snertir. Nokkrum sinnum hafa ís-
lenskir þingmenn á vettvangi
Norðurlandaráðs svarað út í hött
þegar spurt er um þau mál á
vettvangi ráðsins - gegn betri
vitund. Samt fjölgar þeim, ís-
lensku þingmönnunum, sem
skilja ábyrgð sína gagnvart okk-
ur.
Breytingar á refsilög-
gjöfinni
í íslenskum lögum er okkar
hvergi að góðu getið. Hins vegar
er að finna ótal sérákvæði um
samkynhneigða í 12. kafla
refsilaganna frá 1940 sem enn
eru í fullu gildi og fjalla um
kynferðisafbrot. Samkvæmt þeim
er refsialdur fyrir samkynhneigð
kynmök enn 18 ár og meira
segja er hægt að dæma fólk yfir
21 árs í allt að tveggja ára fang-
elsi fyrir að hafa mök við ein-
hvem á aldrinum 18-21 árs hafi
sá „beitt yfirburðum aldurs og
reynslu til að koma hinum til að
taka þátt í mökunum“.
Lög þessi vom endurskoðuð
af stjómskipaðri nefnd og vann
Framhald á bls. 2
Þeir voru fyrstir samkynhneigðra í heiminum til að hljóta löggilda hjónavígslu. Eigil og Axel Axgil
fyrir utan ráðhúsið í Kaupmannahöfn 1. október 1989.