Samtökin '78 - Sjónmál - 15.05.1991, Blaðsíða 5
Sjónmál
5
Þorirðu að sofa
hjá manni sem
hóstar?
Undanfarin ár hefur mikið verið rætt og skrifað um al-
næmi. Hvort sem okkur líkar betur eða verr er það
orðið þáttur í hversdagsreynslu okkar. Við höfum öll
tekið einhverja afstöðu til veirunnar hvort sem við
erum jákvæð eða neikvæð. Við högum okkur í sam-
ræmi við það og orðið alnæmi veldur ekki lengur
beinum hræðsluviðbrögðum. En þótt óttinn hafi þokað
merkir það ekki að við höfum unnið úr hræðslunni og
öðlast eðlilegt viðhorf til jákvæðis og smithættu. Hátta-
lag okkar slær oft á eigin ótta en verndar ekki gegn
smiti.
Spyrðu góðan, neikvæðan, vin hvort hann geti
hugsað sér að sofa hjá jákvæðum. Eða spyrðu hann
hvort jákvæðir eigi að segja frá greiningu sinni áður
en þeir fara í sex. Þá kemurðu yfirleitt af stað heilu
flóði af útskýringum, málalengingum, afsökunum,
hræðslu og ótta sem hann hefur ekki unnið úr. Sumt
er byggt á rökum, annað er fjarri allri skynsemi. Við
hefðum mörg gott af því að endurskoða viðhorf okkar
og umgengni okkar við veiruna. Við byrjum þá um-
ræðu með ávarpi sem Jerry Kampf, félagi í Pluss, já-
kvæða hópnum í Noregi, flutti á ráðstefnu norska
alnæmisfélagsins í Osló í haust.
Vinakynni
Fertugur maður sem hefur
áhuga á útiveru og notaleg-
um samverustundum óskar
eftir kynnum við mann á
svipuðum aldri. Skrifaðu mér
í pósthólf 1262, 121 Reykja-
vík og merktu umslagið „Allt
er fertugum fært“. Þú færð
örugglega svar til baka!
26 ára Þjóðverji í A-Berlín
vill eignast íslenska bréfavini.
Áhugamálin eru fjölbreytt,
hann er menntaður í félags-
fræðum og hefur starfað við
þýska ríkissjónvarpið og við
stofnanir sem vinna að fé-
lagslegum könnunum. Hann
segir að nýr heimur hafi opn-
ast fyrir sér við sameiningu
þýsku ríkjanna og upp á
síðkastið hafi hann m.a. lagt
lið í sjálfsstyrktarhópum
homma í Berlín. Heimilis-
fangið er:
Jens U. Lohberger
Bremestrasse 51
0-1100 Berlin
Alexander er 23 ára Rússi í
Síberíu og óskar eftir penna-
vinum á íslandi. Hægt er að
skrifa honum á ensku. Hann
er læknastúdent á fimmta ári
og nefnir kvikmyndir, leik-
hús, tónlist, sund og bóklest-
ur sem áhugamál.
Bjartsýnismaður, viðkvæmur,
heiðarlegur, húmoristi og ein-
lægur aðdáandi myndarlegra
karlmanna. Svo segir hann.
Alexander Horshev
RO.Box 73
Bamaul - 99
656099 USSR
Jákvæðir dregnir í dilk
eftir Jerry Kampf Pluss
Hér eru sorgir og gleði kynlífs-
ins til umræðu. Ég verð oft var
við að fólk telur víst að fyrst
ÉG sé jákvæður hljóti ég að lifa
ömurlegu kynlífi. Það er nú ekki
alveg rétt því eiginlega er eng-
inn stórmunur á mínu kynlífi og
þínu. Það gengur svona upp og
niður rétt eins og hjá þér. Eini
munurinn er sá að ég er jákvæð-
ur og það setur ákveðin tak-
mörk. Langoftast ert það þó ÞU
sem setur nautninni takmörk því
ég er alveg með það á hreinu
hvers konar sex ég má stunda en
það ert þú ekki. Þú ert ekki með
þitt kynlíf á hreinu og þess
vegna óskarðu eða krefst þess af
mér að ég segi þér að ég sé já-
kvæður. En hvaða máli skiptir
þótt ég sleppi því að segja þér
það? Ég myndi ekki þora að fara
í hættulegt sex með þér þótt ég
væri neikvæður.
Þú vilt vita það til þess að að
geta útilokað mig. Og hvers
vegna viltu útiloka mig? Jú, það
er vegna þess að þú stundar ekki
öruggt kynlíf. Kannski gerirðu
það í níu af hverjum tíu skiptum
sem þú sefur hjá en ekki í tí-
unda skiptið. Og það veistu.
Þess vegna viltu hafa möguleik-
ann á að útiloka mig.
Það er sjaldan eða aldrei rætt
um það að í kynlífi taka menn
þá áhættu að smitast af kvefi
eða flensu. Jákvæðir hafa minna
mótstöðuafl svo slíkt getur haft
slæmar afleiðingar en fæstir líta
á málið frá þeirri hlið. Nei, við
Því skyldu jákvæðir segja
bólfélögum sínum frá
greiningunni? Allir eiga
að stunda öruggt kynlíf
og þá er ekkert að óttast.
eigum að segja frá og bera
ábyrgðina á því að við erum já-
kvæðir. Hvað um gagnkvæma
ábyrgð?
Þú verður að læra að taka
ábyrgð á þínu eigin kynlífi rétt
eins og ég geri í hvert sinn sem
ég sef hjá.
Hugsaðu þér að þú hafir
krækt þér í virkilega álitlegan
gæja eða píu, allt sé komið á
fulla ferð og stefni bara í eina
átt. Við þær aðstæður finnst mér
ekki vera rétti tíminn til að segja
að ég sé jákvæður því sú um-
ræða tekur einn til tvo klukku-
tíma og þá er öll spenna farin
forgörðum.
Þetta veldur því að ég kýs
oftast að fara einn heim í bólið
og þá er kynhvötin mér til ama.
Það er háskalegt því kynhvötin
er ein sterkasta hvöt mannsins
og sjálfur met ég hana einna
mest allra minna hvata. Mér
þykir sex vera afar forvitnilegt
fyrirbrigði, nokkuð sem maður
fær aldrei kannað til fulls. Strax
og maður fer að þora að leika
sér með kynhvötina fer maður
að kynnast sjálfum sér svolítið
betur. I þeim leik gildir aðeins
ein regla: Langi þig til þess er
það leyfilegt.
Við tölum bara svo sárasjald-
an um kynlíf. Hve margir ræða
um síðustu kynlífsreynslu sína,
um ánægjustundir og ósigra? Við
verðum að læra að taka sjálf
okkur alvarlega og virða leyndar
óskir án þess að óttast þær. Það
sem háir okkur mest að mínu
mati er það að við höfum ekki
lært að tjá okkur á kynferðis-
sviðinu, að þora að sýna ástvin-
inum: svona er ég, þetta finnst
mér gott, þetta vil ég ekki.
Af eigin reynslu get ég sagt
að eftir að ég varð jákvæður og
fór að pæla af alvöru í kynlífi
mínu hef ég líka komist að
ýmsu um skapgerð mína og per-
sónuleika, um ástæðumar fyrir
hegðun minni og viðbrögðum.
Mér óaði við sumu - það er allt
að því ógnvænlegt að kynnast
nýjum hliðum á sjálfum sér. Oft
er það eitthvað sem maður hefur
bælt niður langalengi af því að
það telst öfuguggaháttur. Það er
ekki til neinn öfuguggaháttur í
kynlífi, það er bara orð sem þú
velur og byggist eingöngu á þín-
um eigin hugsunarhætti. Auðvit-
að ertu ekki fyrir allt í sexi, það
er ég ekki heldur, en ég kalla
það ekki öfuguggahátt af því að
mér líkar það ekki. Sjálfsagt
finnst einhverjum það vera öf-
uguggaháttur af mér að vera
hommi.
Það sem skiptir máli er að
bera virðingu fyrir öðrum og
kynlífi þeirra en allra mikilvæg-
ast er þó að bera virðingu fyrir
sjálfum sér og eigin kynhvöt.
Úr Lovetann 2 - 1991
Munið félagsgjöld Samtakanna 78, við þurfum á stuðningi
ykkar að halda!