Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.04.1994, Page 2
2
S JÓNARHORN
Miklir íþróttaleikar og hátíðahöld í júní
New York - New York
Ljóst er að New York verður mið-
stöð menningarlífs homma og
lesbía í sumar. Þann 18. júní hefj-
ast þar alþjóðlegu íþróttaleikam-
ir, Gay Games, þeir fjórðu í röð-
inni, og standa í viku. Tveir þeir
fyrstu voru haldnir í San Fran-
cisco, þeir þriðju í Vancouver og
nú eigum við von á þeim fjöl-
mennustu og glæsilegustu í mið-
borg New York.
Gert er ráð fyrir að um 15.000
manns keppi á leikunum og mikill
múgur kvenna og karla flykkist
líka til borgarinnar til að njóta fjöl-
breyttra. menningarviðburða á
sama tíma því um leið er haldin
mikil menningar- og listahátíð
samkynhneigðra, sú mesta í heim-
inum frá upphafi, að því að talið er.
Þar er hvaðeina að finna, tónlist,
dans leiklist, myndlist, ljósmynd-
un, arkitektúr.
í lok júní halda lesbíur og
hommar í New York upp á þau
tímamót að 15 ár eru liðin frá Sto-
newall-uppreisninni í Greenwich
village. Líklegt er að Gay Pride
gangan verði skrautlegri og fjöl-
mennari en nokkru sinni fyrr í
borginni. Sjónarhorn mun kosta
kapps um að senda fréttaritara sinn
í borginni á staðinn.
Randy Shilts látinn úr alnæmi
„Það hræðilega
bitnaði á mönnum
sem skiptu mig máli“
Árið 1987 kom út í Bandaríkjun-
um bók sem vakti umsvifalaust
heimsfrægð. And the Band Played
On nefndist hún og höfundurinn
var ungur blaðamaður í Kalifom-
íu, Randy Shilts. Hann hafði áður
vakið athygli fyrir ævisögu Har-
veys Milk, en hér fór ekki milli
mála að um tímamótaverk var að
ræða.
Einstætt afrek
Aldrei fyrr né síðar hefur einum
manni tekist að safna saman á bók
jafn lifandi lýsingum á hlutskipti
þeirra sem sýkjast af alnæmi og
varla á nokkur einn maður í banda-
rískum útgáfuheimi jafn stóran
þátt í því og Randy Shilts að opin-
bera sögu þeirra sem urðu fómar-
lömb alnæmis á síðasta áratug og
upplýsa heiminn um örlög þeirra.
Erfítt hlutskipti
Randy Shilts kom úr felum tvítug-
ur að aldri og smitaðist af HIV-
veirunni tæpum áratug síðar. Síð-
ustu árin vann hann að bók um
sögu homma í Bandaríkjaher sem
hann nefndi Conduct Unbecom-
ing. Allt lífsstarfið einkenndist af
skýrri meðvitund hans um hlut-
skipti sitt sem homma, það var afl-
vaki ritverka hans og knúði hann
til ábyrgðar í verkefnavali sínu.
Því eins og hann
sagði...
... þegar „The Band“ kom út fyrir
sex ámm: „Sérhver dugandi blaða-
maður hefði getað skráð þá sögu
sem mér tókst að koma á bók. En
ástæðan fyrir því að einmitt ég
gerði það, er líkast til sú að ég er
hommi. Allt það hræðilega sem
bókin segir frá bitnaði á mönnum
sem mér þótti vænt um og skiptu
mig máli.“
Randy Shilts lést af völdum al-
næmis á heimili sínu í Guemeville,
Kalifomíu í lok febrúar, 42 ára að
aldri.
Newsweek
Útgefandi:
Samtökin 78
Félag lesbía og homma á Islandi
Pósthólf 1262- 121 Reykjavfk
Ritnefnd:
Lilja Svanbjörg Sigurðardóttir, Veturliði Guðnason, Þorvaldur
Kristinsson.
Abyrgð:
Lilja S. Sigurðardóttir
Höfundar efnis í þessu blaði:
Haukur F. Hannesson, Heimir Már Pétursson, Hermann Hesse, Lilja
S. Sigurðardóttir, Stella Hauksdóttir, Walt Whitman, Þorsteinn
Gylfason, Þorvaldur Kristinsson.
Umbrot:
Þorvaldur Kristinsson og Jón Proppé
Prentun:
G. Ben. prentstofa hf.
Merktar greinar í Sjónarhorni eru birtar á ábyrgð höfunda sinna og
túlka ekki endilega stefnu útgefanda. Ritnefnd áskilur sér rétt til að
hafna aðsendu et'ni og stytta greinar í samráði við höfunda.
Piltar frá A-Evrópu flykkjast til Amsterdam
Er frelsið að fínna
fyrir vestan?
Óvíða á Vesturlöndum er kynlífsmarkaðurinn umfangsmeiri en í
Hollandi, enda er löggjöf Hollendinga frjálslyndari í því tilliti en
víðast annars staðar. Lögreglan í Amsterdam hefur nýverið séð
ástæðu til að beina athygli sinni að þeim fjölda pilta frá Austur-Evr-
ópu sem flykkjast til borgarinnar og hafa viðurværi sitt af vændi.
Um eitt hundrað strákar þaðan eru núna við þau störf í borginni og
flestir þeirra koma frá Tékklandi og Rúmeníu.
Strákarnir em ólöglegir innflytj-
endur í Hollandi, án vegabréfsárit-
unar, og rannsóknin beinist að
nokkru leyti að því hvort þeir em í
Amsterdam af fúsum og frjálsum
vilja eða hvort útsendarar stórbiss-
nesmanna í kynlífsbransanum hafa
beitt þá þvingunum, en algengt er
að vændiskonur frá Austur-Evr-
ópu og þriðja heiminum séu lokk-
aðar til Amsterdam með öðrum at-
vinnutilboðum og sitji síðan það
sem eftir er ævidaganna í fangelsi
hómhúsanna í Rauða hverfinu.
✓
Olöglegir í landinu
Fyrir fáeinum vikum lokaði lög-
reglan hómhúsi stráka í borginni
eftir að hafa rekist þar á sjö unga
Tékka undir lögaldri sem unnu þar
án vegabréfsáritunar. Vændi er
löglegt í Hollandi, en enginn undir
18 ára aldri hefur leyfi til að selja
sig á hóruhúsum í landinu. Piltar
úr Austur-Evrópu, sem stunda
vændi í Hollandi, virðast þó yfir-
leitt dvelja þar aðeins í þrjá mán-
uði, en halda svo úr landi með
spariféð sitt.
Fáfróðir um alnæmi
Dirk van der Woude, yfirmaður
þeirrar lögregludeildar sem hefur
eftirlit með vændi og kynsjúkdóm-
um því tengdum, segir að óttinn
við alnæmi meðal hollenskra
Nýleg rannsókn á ofbeldi gagn-
vart lesbíum og hommum í Ástr-
alíu sýnir að það er lögreglan
sem stendur að baki flestum lík-
amsárásum á þau.
Samkynhneigð er ekki bönnuð
með lögum í Ástralíu, en samt fer
það mjög í vöxt að okkar fólk sé
áreitt þar í álfu. Misþyrmingar og
tilefnislausar handtökur af hálfu
vændisstráka hafi opnað útlend-
ingunum leið inn á hóruhúsin.
„Hollensku strákarnir eru sér mjög
meðvitaðir um alnæmi og vita að
vændi eru stórhættulegt. Ég efast
um að strákarnir úr Austur-Evrópu
viti margt um þau mál.“
En þeir sem berjast gegn al-
næmi í Hollandi trúa lítið á boð og
bönn, heldur senda fólk á hóruhús-
in til að fræða Tékkana og Rúmen-
ana um staðreyndir lífsins. AP
lögreglunnar er eitt algengasta
áreiti gagnvart samkynhneigðum,
að því er rannsóknin leiddi í ljós.
Bent er á að engin leið sé að
sporna við þessu ofbeldi nema
ráðast að þeim rótgrónu fordóm-
um og íhaldssemi sem gegnsýra
allt samfélagið. Lögreglan spegli
ofbeldishneigðina sem einkennir
illa menntað samfélag. PAN
Löggan er langverst