Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.04.1994, Síða 6

Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.04.1994, Síða 6
6 SJONARHORN Samkynhneigðir og börn Blessað barnalán eftir Þorvald Kristinsson Um allan hinn vestræna heim ræða sjálfskipaðir verðir sið- gæðis og réttarfars um það af ákafa hvort lesbíur og hommar eigi að njóta réttar til að fæða og ala upp börn. Umhyggjan fyrir velferð barnanna er sett á odd- inn, en umræðan er í rauninni á misskilningi byggð. Því flestir tala eins og börn samkyn- hneigðra foreldra séu ekki til, eins og börn okkar lesbía og homma séu fyrst og fremst hug- mynd í kollinum á okkur, og að barneignum sé hægt að stjórna með lagaboðum. En í heiminum er að finna millj- ónir bama sem eiga yfirlýsta lesb- íu að móður eða opinn homma að föður, og fjöldi bama elst upp hjá tveimur lesbíum eða tveimur hommum. Þegar „fræðingar" og fjölmiðlar ræða um hlutskipti þessara barna, þá er þeim stillt upp að vegg sem hverju öðru vanda- máli og þau fá oftar en ekki að heyra að foreldrar þeirra séu eðli sínu samkvæmt óæðri og ófull- komnari öðrum foreldmm. Þessi umræða er ekkert annað en gróf móðgun við börn okkar og stjúp- börn. Þeim mikla fjölda bama, sem á homma eða lesbíu að föður eða móður, ber sami réttur og öðrum börnum til að vera stolt af foreldr- um sínum. Þau eiga rétt á að sleppa við illar glósur fullorðinna um það hvort þau verði nú sam- kynhneigð eða gagnkynhneigð þegar þau vaxa úr grasi, hvernig það sé að eiga pabba sem heitir Sigríður eða hvort maðurinn hans pabba hafi nokkurn tíma þuklað „dónalega“ á stjúpsyni sínum. Rannsóknir sýna að um 20% homma og 35% lesbía á Vestur- löndum nútímans hafa á einhverju skeiði ævinnar lifað í hjónabandi eða sambúð með gagnstæðu kyni og af þeim hafa 25%-50% slíkra homma og um 50% kvennanna eignast barn í þessum sambönd- um. Þá eru ótalin öll þau börn sem samkynhneigðir eignast án þess að nokkurn tíma kæmi til hjónabands eða eftir að þeir hafa horfst í augu við tilfinningar sínar og tekið fulla ábyrgð á þeim. Þeir streitast á móti En sú staðreynd að börn eru lifandi þáttur í lífi fjölmargra lesbía og homma varð mönnum ekki ljós fyrr en við urðum sýnileg heimin- um á 8. og 9. áratug aldarinnar. Og þá var ekki að sökum að spyrja, í leit okkar að jafnræði fyrir lögum hefur löggjafarvaldið reynt að leggja hömlur á það hvort samkyn- hneigðir fái að njóta þess réttar að ala upp börn - að vísu með litlum árangri. í hjúskaparlögum sam- kynhneigðra á Norðurlöndum er rétturinn til að ættleiða börn þess vegna ekki enn til staðar þótt sýnt sé að það muni breytast fyrir áhrif Evrópusambandsins. Og ekki skortir „rök“ þegar spurt er um hvað sé svona óhollt afkvæmum okkar, bornum og óbornum. Menn bera fyrir sig hættuna á að bömin verði fyrir að- kasti, einnig heyrist sagt að öll börn þurfi bæði móður og föður að fyrirmynd (en enginn virðist hafa áhyggjur af föðurlausum börnum einstæðra gagnkynhneigðra mæðra), og látið er í veðri vaka að kynímynd bamanna geti brenglast, svo fátt eitt sé talið. Allt er þetta mál vafið í orð sem eiga að sýna fram á visku, fordómaleysi og um- hyggju fyrir ungviðinu. En annað liggur að baki. Það er sjaldan sagt beinum orðum nema í hita umræð- unnar þegar menn missa niður grímu skinhelginnar. Þá kemur þetta í ljós: - Samkynhneigð er óeðlileg og þessum öfuguggum er það mátulegt að eignast ekki börn. - Samkynhneigðir, og þá sérstak- lega hommarnir, hafa enga stjórn á greddu sinni og eru eins líklegir til að misnota börnin kynferðislega. - Börnin verða samkynhneigð og þá margfaldast öfuguggaháttur- inn uns ekkert verður við ráðið. Vísindin svíkja sið- gæðisverðina En í opinberri umræðu missa sið- gæðisverðir og sérfræðingar sam- félagsins sjaldan grímuna. Það er nú einu sinni hluti af fagmannlegri þjálfun þeirra. Þetta fólk kemur sárasjaldan beinum orðum að hómófóbíu sinni. Vísindin verða þá helsta von þeirra sem hylla lífs- stíl og gildismat hinnar hefð- bundnu kjarnafjölskyldu sam- kvæmt skilgreiningunni pabbi, mamma, börn og bíll (og kötturinn Brandur). Við háskóla heimsins starfa vísindamenn sem á liðnum árum hafa að undirlagi yfirvalda eytt ómældum kröftum í að rann- saka hlutskipti barna sem alast upp með tveimur feðrum, tveimur mæðrum eða eiga sér helgarpabba og helgarmömmu sem býr með sínu eigin kyni. Ekki eru þó þessar rannsóknir gerðar að frumkvæði okkar homma og lesbía eða barn- anna okkar. Samt bregður svo und- arlega við að þeir sem tala harðast gegn rétti okkar og friði til að ala upp böm, vitna sárasjaldan í þess- ar kannanir. Það skyldi þó aldrei vera að vísindin hafi „svikið“ sið- gæðisverðina. í heitri umræðu um hjúskapar- rétt homma og lesbía í Svíþjóð á liðnum ámm tóku tveir sálfræð- ingar við Háskólann í Gautaborg sig til og söfnuðu saman þeim könnunum sem þeir komust yfir víðsvegar að úr heiminum um líf og hlutskipti bama sem alast upp með samkynhneigðum foreldrum. Þeir Kurt Ernulf og Sune Innala gerðu úttekt á rúmlega sextíu um- fangsmiklum rannsóknum sem gerðar hafa verið síðastliðin fimmtán ár. Þær taka mið af börn- um sem alast ýmist upp með sam- kynhneigðum eða gagnkynhneigð- um foreldrum. Það er skemmst frá að segja að í niðurstöðum þeirra félaga er öllum staðhæfingum vísað á bug um

x

Samtökin '78 - Sjónarhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Sjónarhorn
https://timarit.is/publication/1491

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.