Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.04.1994, Side 11

Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.04.1994, Side 11
SJÓNARHORN 11 PENNAVINIR Our names are Alexander (25) and Victor (30). We live in St. Petersburg, and we are looking for friends in Iceland, to know your country better, your people and gay life there. We are hoping to get in touch with some Icelandic guys. Could you please help us with good, serious con- tacts? Write to: Alexander Stabenkov P. O. Box 245 RU-198 215 St. Petersburg 215 Russia Hi, my name is Eric, I’m 34 years old gay guy from Germany. After staying a few times in Iceland I like your country very much and I would like to find an Icelandic gay pen-friend. Are you interested? Eric Pfefferle, D 3, 4 D-68159 Mannheim Deutschland I’m looking for pen-friends in Iceland. I’m 34 years old and living in the northern part of Poland. Among my interests: Film, tennis, swimming, meeting the friends, cinema, ballet. I’m also interested in foreign affairs. Please write to: Roman Morawski Kopemika 1 81846 Sopot Poland Félagsmiðstöð Á Lindargötu 49 er opið hús tvisvar í viku, mánudaga og fimmtudaga milli kl. 20-23. Einnig er opið á laugardags- kvöldum, leitið nánari upplýsinga í símatíma félagsins. Og síminn er 2 85 39. AA fundir AA fundir eru haldnir í hverri viku á Lindargötu 49, á þriðju- dagskvöldum kl. 21 og á sunnu- dögum kl. 10:30 (sporafundir). Á þessum tíma fer engin önnur starf- semi fram í húsinu. Þar hittast al- kohólistar á batavegi til að miðla reynslu sinni, styrk og vonum. Hér koma þeir sem eiga við áfengis- og vímuefnavandamál að stríða og eru þreyttir á því oki sem víman leggur á menn. Löngunin til að hætta neyslu er eina skilyrðið fyrir þátttöku í AA og AA-félagar svara í síma Samtakanna 78 klukkutíma fyrir fund. AST Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf efnir til helgistunda í húsi Samtakanna 78 næstsíðasta sunnu- dag í hverjum mánuði kl. 16.00 Tilgangur hópsins er að rækta trúarlíf á forsendum lesbía og homma og allir eru velkomnir. Að lokinni helgistund eru síðan um- ræður og ætíð er boðið upp á kaffi- veitingar. Ungliðahreyfing Ungliðar félagsins undir 26 ára aldri hittast fyrsta miðvikudags- kvöld í mánuði á Lindargötu 49. Nánari upplýsingar eru veittar í síma félagsins á mánudags- og fimmtudagskvöldum. Hringið í síma 2 85 39. Bókasafn Bóka- og myndbandasafn félags- ins er opið á mánudags- og fimmtudagskvöldum milli kl. 20- 23. Þar er að finna góðan bóka- kost, skáldskap og fræðirit. Einnig aðstoða starfsmenn bókasafnsins fúslega nemendur framhaldsskóla og háskóla sem koma þangað í gagnasöfnun og efnisleit. Stöðugt bætist við bóka- og myndbanda- kostinn, kannið málin hjá bóka- verðinum. Þá halda Konur með konum - KMK, og MSC-ísland reglulega kvenna- og karlakvöld í húsnæði félagsins. Leitið upplýsinga í hús- inu á Lindargötu 49. Klæðskiptingar! Höldum hópinn - Stöndum saman Við höfum myndað hóp í Reykja- vík til að sameinast um áhugamál okkar og þarfir. Styðjum hver annan og hver aðra! Fyllsta trúnaðar er gætt. Utanáskriftin er: Elísa Alfreðsdóttir Pósthólf 5279 125 Reykjavík Þrjú þrep til að komast út úr skápnum - án þess að lenda í endalausu hugtakaþrugli og sjálfsmyndar- kreppupælingum 1. Gakktu út frá því sem gefnu að allir viti að þú sért gay. 2. Gakktu út frá því sem gefnu að allir aðrir séu gay þangað til annað sannast. 3. Gakktu út frá því sem gefnu að allir aðrir gangi út frá því sem gefnu að allir aðrir séu gay þangað til annað sannast. Hugsaðu svo ekki meira um það en vertu ekki með kjaft við gagnkynhneigt fólk, þú ert ekkert merkilegri þótt þú sért gay. Enginn veit hvað veldur gagnkynhneigð, kannski er hún meðfædd og þetta fólk á rétt á að njóta lífsins rétt eins og aðrir. Stundum finnst manni óviðkunnanlegt að gagn- kynhneigðir séu að flíka samböndum sínum við gagnstæða kynið, en líklega eru það bara fordómar. Stella Hauksdóttir Fjögur Ijóð Lystarlaust hungur eldhúsborðið fullt af krásum gærdagsins Brúðarvalsinn þagnaður Vélrænar hendur gæla við brúðargjafapostulínið frá Bing & Grpndal Árin bíða þolinmóð á næsta homi. osnsð Við eldinn logar löngunin Teygi mig í þig En þú hrædd við gluggann Enginn sér hvísla ég inn í logann Jú, flugurnar hvíslar þú og breiðir sængina yfir. GS'SÐ Finn óttann í þér um að ég viti það sem þú veist Ég veit en segi ekkert Bíð betri tíma Drekk kaffibolla með leyndarmálinu horfi út um gluggann á fuglana dansa ástarvalsinn og bjóða nýja lífið velkomið í slaginn Finn óttann og veit hvað þú hugsar En segi ekkert. gSvSð í dag gerist það Silfraðir vængir kljúfa himininn og þú lendir í hjarta mínu Yrkjum ástaróð á hvítu lakinu Ástareld í frímínóttum.

x

Samtökin '78 - Sjónarhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Sjónarhorn
https://timarit.is/publication/1491

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.