Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.04.1994, Síða 12

Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.04.1994, Síða 12
12 SJÓNARHORN Hommum í Bretlandi mismunað fyrir lögum Ekkert hálft jafnræði Hópar homma stóðu fyrir utan breska þinghús- ið síðasta mánudagskvöld í febrúar og hlustuðu á útvarp frá þinginu. Niðurstaðan var skýr: Þingið hafði fellt tillögu um að lækka lágmarks- aldur kynmaka meðal karla úr 21 ári í 16, en sættist þess í stað á 18 ár. Hommarnir eru þar með dregnir sérstaklega í dilk, nú sem fyrr, því lágmarksaldur fyrir lesbíur og gagnkynhneigða er 16 ár. Framan af kvöldi var stemmningin fyrir utan þinghúsið þrungin eftir- væntingu, en þegar tilkynnt var um úrslit atkvæðagreiðslunnar, braust út reiði, margir viðstaddra tóku að öskra og gera atlögu að rúðum þinghússins, og sumir heyrðust kalla nöfn þingmanna sem taldir eru vera hommar í felum. Sumir Stjórnarskipti á aðalfundi í lok mars Nýr formaður Samtakanna 78 Alnæmisfræðsla Rússa í molum Samkynhneigð lífshættuleg Áður var samkynhneigð glæpur í Rússlandi. Nú er hún ekki leng- ur talin refsiverð - en kannski lífshættulegri en nokkru sinni fyrr. Þetta segir baráttufólk í röðum rússneskra lesbía og homma um þessar mundir. Þau óttast meira en nokkru sinni fyrr að alnæmi breiðist út á komandi árum svo ekkert verði við ráðið. „Hér hefur orðið bylting í við- horfum og hegðun hvað snertir kynlíf og kynhegðun,“ segir Julie Stachowiak, sem stýrir forvarnar- starfi í Rússlandi. „Aðstæður eru þannig að þegar minnst varir getur alnæmi breyst í plágu sem ekkert verður við ráðið.“ Hún bendir á að vændi hefur aukist gífurlega og sýfilistilfellum fjölgað mjög á síðustu árum. Um leið riðar allt heilbrigðiskerfið til falls og rússnesk yfirvöld hafa lítið til málanna að leggja í fræðslu um alnæmisvarnir. „Fáfræðin er verst,“ segir Julie Stachowiak, „al- menningur veit ekkert um AIDS, fólki er bara sagt að forðast kyn- mök við útlendinga og hórur. Hér er engin almenn fræðsla." I febrú- ar var þó opnuð forvarnarmiðstöð í Moskvu, AESOP, sem er ætlað að skipuleggja fræðslu og styðja alnæmissamtök og hópa HlV-já- kvæðra um allt land. Sú einangrun sem Rússar bjuggu við til skamms tíma varð þó til að seinka útbreiðslu alnæmis til mikilla muna og til ársins 1991 varð alnæmis sjaldan vart í land- inu. Opinberar tölur telja einungis rúmlega 700 HlV-jákvæða í þessu fjölmenna landi, þriðjungur þeirra eru börn sem smituðust á sjúkra- húsum á árunum 1988-1989, og sögðu yfirvöld að þann farald mætti rekja til manns sem smitað- ist í Afríku. Talsmenn samtaka homma og lesbía leggja þó engan trúnað á þessar tölur. Rússnesk yfirvöld hafa langa æfingu í snotrum talna- leikjum. Dmitri Lychov, sem rit- stýrir útbreiddu hommatímariti í Moskvu, lýsti því yfir nýlega að sennilega væri tala HlV-jákvæðra í landinu um 35.000. AP Aðalfundur Samtakanna 78 var haldinn 26. mars sl. Þar lét Lana Kolbrún Eddudóttir af for- mennsku í félaginu eftir að hafa gegnt embættinu í eitt ár, en við tók Margét Pála Ólafsdóttir. Hún hefur um árabil tekið virkan þátt í pólítísku starfi félagsins og sat meðal annars á síðasta ári í þeirri nefnd sem endurskoðaði og samdi Sú nefnd sem ríkisstjórnin skip- aði á síðasta ári til að kanna stöðu samkynhneigðra hér á landi og leggja á ráðin um úr- bætur, situr enn að störfum en hyggst skila skýrslu sinni til rík- isstjórnarinnar í vor, að sögn Guðna Baldurssonar sem er annar fulltrúi Samtakanna 78 í nefndinni. Starfið hefur að miklu leyti falist í því að gera rækilega grein fyrir réttarstöðu homma og lesbía í nágrannalöndunum og benda á nauðsynlegar úrbætur hér á landi í ljósi þess samanburðar. I greinar- gerð sinni fyrir stöðu mála á Is- landi hefur nefndin stuðst við fjöl- breytt safn vitnisburða sem fulltrú- ar Samtakanna 78 í nefndinni hafa lagt fram. Að sögn Guðna hefur þing Evr- ópusambandsins nýverið sam- ný lög félagsins, þau sem sam- þykkt voru á aðalfundi 1993. Með henni í stjórn sitja: Halla Frímannsdóttir, Percy B. Stefáns- son, Reynir Baldursson, Stella Hauksdóttir, Sveinn V. Jónasson og Þórhallur Vilhjálmsson. Sjónarhorn óskar Margréti Pálu og liðsmönnum hennar allra heilla á nýju starfsári - þau lifi! þykkt ályktun þess efnis að sam- kynhneigðir skuli njóta réttar til að ættleiða börn á borð við aðra þegna. Ályktunin er ekki bindandi fyrir aðildarlönd, en með hana í höndum má búast við að léttara verði í næstu framtíð að knýja fram breytingar í Danmörku og Noregi á lögum um skráða sambúð fólks af sama kyni. Það fordæmi sem Evrópusambandið gefur mun eflaust líka létta íslenskum lesbí- um og hommum róðurinn þegar þar að kemur. Um leið má benda á að lesbíum er lögum samkvæmt ekki meinað að nýta sér tækni- frjóvgun á löggiltum sjúkrastofn- unum í þessum löndum, né heldur á Islandi. Það eru læknarnir sjálfir sem hafa sett sér eigin siðareglur án þess að njóta neins stuðnings af lagabókstafnum. Þetta þýðir að danskar lesbíur hafa í seinni tíð reyndu að klifra upp veggina á þinghúsinu og nokkrir voru hand- teknir. Skör lægra öðrum körlum „Skilaboðin eru skýr,“ sagði Dav- id Allison frá Outrage, róttækum baráttusamtökum homma í Bret- landi. „Hommar eru enn settir skör lægra öðrum karlmönnum. Þetta gerir ekkert annað en að næra þær hugmyndir samfélagsins að við hljótum að vera „slæmir“ í einum eða öðrum skilningi.“ Og Edwina Currie frá íhalds- flokknum sem barðist fyrir 16 ára lágmarksaldri sagði: „Þessi mála- miðlunartilaga er rugl, það er ekk- ert til sem heitir hálft jafnræði. Annað hvort er jafnræði með þegnunum eða ekki.“ Bretland var síðasta land Evr- ópu til að standa á 21 árs lág- marksaldri til kynmaka. Annars staðar í Vestur-Evrópu er hann miðaður við 12 ár þar sem hann er lægstur og 18 ár þar sem hann er hæstur og ekki gerður munur á samkynhneigðum og gagnkyn- hneigðum. Á íslandi er lágmarks- aldurinn 14 ár fyrir alla. Nýlega neyddi Mannréttindadómstóll Evrópu Þýskaland og írland til að samræma lágmarksaldur í þessum löndum þannig að eitt gengi yfir alla. Sjá nánar um atburði og þróun mála í Bretlandi á bls. 10 getað leitað uppi þá spítala sem veita tæknifrjóvgun en sniðgengið aðra. Þegar skýrsla íslensku nefndar- innar liggur fyrir er boltanum þar með varpað til ráðherra viðeigandi málaflokka. Að sjálfsögðu kemur þá aftur til kasta Samtakanna 78 að knýja á um skjótar aðgerðir. Auk Guðna sat Guðrún Gísla- dóttir í nefndinni á síðasta ári en þá tók Lana K. Eddudóttir sæti henn- ar. Aðrir nefndarmenn eru Drífa Pálsdóttir frá dómsmálaráðuneyt- inu, Margrét Harðardóttir frá menntamálaráðuneytinu, Ingi Val- ur Jóhannsson frá félagsmálaráðu- neytinu, en formaður er Sigurður Júlíus Grétarsson, dósent í sál- fræði. Af nefndarstarfínu

x

Samtökin '78 - Sjónarhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Sjónarhorn
https://timarit.is/publication/1491

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.