Rit Búvísindadeildar - 15.09.1996, Síða 26
varð niðurskipan reita ekki eins og best verður á kosið. Þetta veldur nokkuixi
skekkju á uppskerutölunum sem þó er hægt að leiðrétta.
Tafla 1.1.1.11 Tilbúinn áburður kg/ha: 1221: N-31 P-15,7 K-43. 1932-'37: N-64,6 P-32,8
K-89,6. Kúamvkia t/ha: 1931 16 t, 1932-'37 33.14 t.
Áburður Fundin meðaluppsk. Reiknuð meðaluppskera
hey hkg/ha hey hkg/ha
a) Áburðarlaust 12,9 13,1
b) Mykja 29,6 29,4
c) N,P,K 54,8 54,7
d) N,P 45,5 46,2
e) N 34,9 34,5
(Ei-1931(7)-ktl)
Öryggi tilraunarinnar var gott. Munur milli áburðarreita og áburðarlausra reita
var hámarktækur og eins milli áburðartegunda. Meðalskekkja fyrir áburðarliði ±
43 kg hey/ha og meðalmunurinn m/m = ± 60 kg hey/ha, hvortveggja mjög lítið.
Kúamykjan sýndi ekki mikinn vaxtarauka sem m.a. var skýrt af lélegri geymslu
og óhentugum áburðartíma. Þess er getið að augljós skortur kom fram á fosfór og
kalí í tilrauninni. Mistök áttu sér stað á fyrsta ári við áburðardreifingu og var
liðunum bætt tapið með örlitlu af saltpétri.
Rit landbúnaðardeildar B-flokkur nr. 10:63-67.
Bændaskólinn á Hvanneyri
Hv-1922(3)-kt Tún
Fyrsta ber að nefna tilraun sem hófst árið 1922. Hún stóð í 3 ár og innifól hvorki
meira né minna en 9 liði. Um þessa tilraun er afar lítið vitað þar sem
frumheimild fannst ekki. En hún var líklegast gerð á túni sem trúlega hefur verið
í góðri rækt samanber uppskeru af a-lið.
16