Samtökin '78 - Hýraugað - okt. 2010, Síða 1

Samtökin '78 - Hýraugað - okt. 2010, Síða 1
HÝRAUGAÐ hinsegin fréttabréf FRÉTTABRÉF SAMTAKANNA ‘78 FÉLAGS HINSEGIN FÓLKS Á ÍSLANDI // október 201001. TÖLUBLAÐ 01. ÁRGANGUR FERÐAIÐNAÐUR Hýraugað talar við Ómar Inga Magnússon um hinsegin ferðaiðnað ... Bls. 3 FORDÓMAR Erum við sjálf með fordóma? Hýrauganu beint að innhverfum fordómum ... Bls. 5 MENNING Drottningar, ást og drama.La Cage aux folles sem nú er sýnt á Broadway... Bls. 2 DREIFT FRÍTT Á RAFRÆNU FORMI TIL FÉLAGSMANNA SAMTAKANNA ‘78 OG ÁHUGAFÓLKS UM HINSEGIN MÁLEFNI UNGLIÐASTARF Ungliðahreyfingin sjálfstæð eining innan S’78 Eins og fólk hefur eflaust tekið eftir er félagsmiðstöð Samtakanna ‘78 lokuð. Regnbogasalurinn hefur verið nær óbreyttur frá opnun fyrir rúmum áratug og því þótti kominn tími til að fríska upp á húsnæðið. Ákveðið var að nota sumarið til þessa, enda rólegur tími og lítil starfsemi hefur verið á sumrin. Nær eingöngu hefur verið treyst á sjálfboðaliða við framkvæmdirnar. Stjórn S’78 kann öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg bestu þakkir. Formleg opnun Regnbogasals verður auglýst síðar. Nýverið voru gerðar breytingar á fyrirkomulagi ungliðahóps Samtakanna ‘78 í þá átt að gera hann að sjálfstæðari einingu undir hatti Samtakanna. Ungliðar þjóni hinsegin táningum til 18 ára aldurs. Til þessa hafa ungliðarnir tekið á móti ungu fólki upp að 20 ára aldri en nú er stefnt að því að lækka þetta aldursþak niður í 18 ár. Síðustu ár hefur þróunin orðið sú að sífellt yngri krakkar hafa sótt fundi ungliðanna sem eiga fátt sameiginlegt með eldri krökkunum. Starfsemi ungliðanna í framtíðinni er ætlað að styðja betur við þessi ungmenni en stefnt er að því að fá fjárveitingu til þess að ráða ungmennafulltrúa sem myndi sjá um þetta starf og leiða hópinn. ENDURBÆTUR Á REGNBOGASAL Nýkjörin stjórn Ungliðahreyfingar S’78. Frá vinstri: Guðmundur Helgi Arnarson (alþjóða- og samskiptafulltrúi), Grímur Ólafsson (varaformaður), Steina Daníelsdóttir (formaður) og Linda Andrea Mikaelsdóttir Persson (ritari).  Mynd frá Gender Bender-kvöldi Ungliðanna.  Samtakanna 78 Þríréttuð máltíð :: Dansleikur Búrdívurnar úr La Cage aux Folles Allur ágóðu rennur til starfs S'78 >>> Upplýsingar & miðapantannir<<< Galakvöldverður & ball ÍÞRÓTTIR FRÁBÆR ÁRANGUR 19 gull, 3 silfur og 4 brons. Hýraugað hittir hýrasta íþróttahóp landsins ... Bls. 2 SAMTÖKIN ‘78 // FACEBOOK /// TWITTER /// FLICKR /// YOUTUBE

x

Samtökin '78 - Hýraugað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Hýraugað
https://timarit.is/publication/1500

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.