Samtökin '78 - Hýraugað - okt. 2010, Side 2
VIÐTAL
STONEWALL
27. júní 1969 er
merkur dagur í sögu
hinsegin fólks. Þann
dag reis hópur fólks
upp gegn reglulegum
ofsóknum lögreglu og
yfirvalda.
Í kjöl far upp þotanna
mynduðust hópar
hin segin aðgerða-
sinna í New York
og um allan heim.
Dag blöð voru
stofnuð til að
tala fyrir mann-
réttindum hin segin
fólks. Fyrsta Gay
pride var 27.06.70.
SNARÖFUG
KEPPNI Í KÖLN
Ekkert hinsegin
óviðkomandi Hvað er IGLA?
Alþjóðleg Sundsamtök
Hinsegin fólks (Igla.org)
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir,var
kjörin í stjórn alþjóðafélagsins á
síðasta aðalfundi.
Sundíþróttamót IGLA er í
Reykjavík 2012
Dagana 31. júlí til 7. ágúst voru
haldnir Hinsegin leikar eða Gay
Games í Köln. Íþróttafélagið
Styrmir sendi hýran hóp til
þátttöku sem náði stórkostlega
góðum árangri. Sundhópurinn
kom heim með 19 gullpeninga,
3 silfur og 4 brons en auk
hans fóru blaklið og þónokkrir
fótboltamenn til keppni.
Hýraugað hitti sundkappana
Hafdísi Erlu Hafsteinsdóttur og
Andrés Watjanarat til að komast
að því hvernig upplifun þetta
hafi verið. „Ég get ekki útskýrt
það, þetta var bara ógeðslega
gaman“ segir Andrés en hann
fór í fyrsta skipti á alþjóðlegt
stórmót, aðeins 10 mánuðum
eftir að hann lærði að synda.
Ef við gefum okkur að lesendur
séu almennt ekki með augu í
hnakkanum þá ertu nú með
Hýraugað fyrir framan þig, nýtt
fréttabréf Samtakanna ‘78.
Hugmyndin að fréttabréfinu
komst á flug eftir opinn
trúnaðarráðsfund Samtakanna
í vor þegar nokkrir verðandi
blaðamenn gáfu sig fram við
stjórn og lýstu áhuga á að starfa
á þessum vettvangi. Undirritaður
tók að sér að leiða vinnuna og
titlar sig því nú ritstjóra og skrifar
fyrsta ritstjórnarpistil lífs síns.
Fyrst um sinn stefnum við á að
fréttabréfið komi út 3–4 sinnum á
ári á rafrænu formi og verði sent
til allra á póstlista S’78, auk þess
sem nokkur eintök verða prentuð
og látin liggja frammi á bókasafni
og í Regnbogasal. Hýrauganu
er ekkert hinsegin
óviðkomandi og
ætlum við að fjalla
um hver þau málefni
sem okkur finnst
eiga
erindi
við
les-
endur
með fjöl-
breytileikann að
leiðarljósi. Auk
þess hvetjum við
fólk til þess að
hafa samband ef
það lumar á góðu
efni. Fróðleikur
og skemmtun, allt
í sama pakka,
framreitt af því
fólki sem talið
er upp hér
að neðan.
Njótið vel!
ÚTGEFANDI OG ÁBM:
Samtökin ‘78
RITSTJÓRI:
Guðmundur Helgason
RITSTJÓRN
Ásta Kristín Benediktsdóttir
Atli Þór Fanndal
Sigurður Júlíus Guðmundsson
Hafsteinn Sverrisson
HÖNNUN OG UMBROT
Atli Þór Fanndal
LJÓSMYNDIR
Eva Ágústa
hyraugad@samtokin78.is
Allur réttur áskilinn. Allar tilvitnanir og
önnur notkun efnis úr blaðinu, þar með
talin afritun, birting, fjölföldun og hvers
kyns dreifing, er háð leyfi ritstjóra.2
RITSJÓRNARSPJALL
Guðmundur Helgason,
ritstjóri Hýraugans
Andrés segir að það hafi verið
mjög gaman að sjá hvað íslenski
hópurinn stóð vel saman en
mikill og góður liðsandi var hjá
íslensku keppendunum sem fékk
verðskuldaða athygli í Köln.
Hafdís, sem vann til 5
gullverðlauna á mótinu, segir
að upplifunin hafi verið alveg
frábær. „Það er hvað mest
heillandi að sjá allra þjóða
kvikindi á öllum aldri og öllum
kynjum, allt samankomið í einni
súpu“.
Sunddeild Styrmis, sem þjálfar
nú tæplega 20 manns, setur
stefnuna á Havaí á næsta ári og
að sjálfsögðu Reykjavík 2012.
Öllum er velkomið að taka þátt
og breytir engu hvort um vant
sundfólk er að ræða eða algjöra
byrjendur. „Við erum oftast á
braut 5,“ segir Hafdís, en æfingar
eru haldnar í Laugardalslaug.
En hvað er svo næst á dagskrá
hjá Styrmi?
„Slappa af“ segir Hafdís með
vott af glensi, en mánaðarfrí var
tekið frá reglulegum æfingum
eftir Hinsegin leikana.
>>> HORFA Á VIÐTAL Í
FULLRI LENGD
Það er hvað
mest heillandi
að sjá allra þjóða
kvikindi á öllum
aldri og öllum
kynjum
>>> Heimasíða Styrmis