Samtökin '78 - Hýraugað - okt 2010, Qupperneq 3
fær í gegnum alla þá þjónustu
sem þeir kaupa á meðan
dvölinni stendur. Á Íslandi eru
kjöraðstæður til þess að gera
eitthvað svipað þessu. Hérna eru
réttindi samkynhneigðra með
þeim bestu sem gerist og í raun
ekkert því til fyrirstöðu að byrja
strax á svona átaki.“
Nú er ljóst að alþjóðlegt sundmót
á vegum IGLA (International Gay
and Lesbian Aquatics) verður
haldið á Íslandi í maí 2012.
Ómar sér mikla möguleika sem
tengjast þeim viðburði en telur
að ferðaþjónustuaðilar verði að
undirbúa sig vel. „Það er ekki
nóg að skófla öllum upp í flugvél
og til Íslands, það verður að
vera eitthvað fyrir þá að gera
hérna. Þetta sundmót er góð
landkynning en það þarf að fylgja
þessu vel eftir og helst að reyna
bjóða upp á eitthvað meira. Ef
mikill fjöldi gesta kemur er hægt
að vera með eins konar „mini
pride“ bara í kringum mótið.“
Erlendir ferðamenn sem
koma til Íslands sækjast ekki
allir eftir því sama og einn
markhópur sem huga þarf
að eru hinsegin ferðamenn.
Hýraugað spjallaði við Ómar
Inga Magnússon sem skrifaði
BS-ritgerð við viðskiptadeild
Háskólans á Bifröst er ber
heitið „Möguleikar Reykja-
víkur sem ákjósanlegur
áfangastaður fyrir samkyn-
hneigða ferðamenn“.
„„Bleika pundið“ eða „bleika
efnahagssvæðið“ eru hugtök sem
ferðaþjónustan hefur lengi notað
yfir þá umfram peninga sem
samkynhneigðir eiga og nota í
annað en barnauppeldi og slíkt, en
barneignir eru hlutfallslega færri
hjá þeim en gagnkynhneigðum.
Þessir fjármunir eru oft notaðir í
munað eins og ferðalög og aðra
afþreyingu,“ útskýrir Ómar.
Á Íslandi hefur lítið verið stílað
inn á að fá hinsegin ferðamenn til
landsins en ljóst er fyrirtæki gætu
grætt mjög á því að komast inn á
bleika efnahagssvæðið. „Það sem
hægt er að gera, og á að gera, er
að höfða beint til samkynhneigðra
sem markhóps,“ segir Ómar.
„Sá sem ætlar sér að ná til
samkynhneigðra þarf að þekkja
þarfir þeirra og væntingar og
koma með góðar lausnir til þess
að uppfylla þær þarfir.“
Ómari finnst að Reykjavíkurborg
ætti að taka beinan þátt í slíku
verkefni, enda gæti hún stórgrætt
á því til lengri tíma. „Ef við
tökum sem dæmi Manchester
í Englandi, þá markaði sú borg
sér stefnu í þessum málum fyrir
ca. 15 til 20 árum síðan. Þeir tóku
fyrir ákveðið hverfi og settu þau
skilyrði að allur rekstur þar skyldi
vera „gay related“. Með árunum
jókst straumurinn til borgarinnar
svo mikið að þangað koma
margar milljónir samkynhneigðra
ferðamanna á ári. Þú getur rétt
ímyndað þér tekjurnar sem borgin
Fast ak únn ar
Ston ew all Inn til-
heyrð u lág stétt,
jafn vel með al
sam kyn hneigðr a.
Drag drottn ing ar,
stelp ustr ák ar, ung ir
menn, transgend-
er og heim il is-
laus ir ung ling ar.
Mynd af for síð u
N.Y.D.N.29.06.1969
Stonewall Inn, 27.
júní 2010, á 41 árs
af mæli upp þotanna
og 40 ára af mæli
fyrstu Gay pride-
göngunnar. Hópur
fólks safnast þar
árlega saman á af-
mæli upp þotanna.
Stonewall er einn
þekktasti staður
réttinda bar áttunnar.
HINSEGIN FERÐAÞJÓNUSTA Á ÍSLANDI
Alþjóðlegt hinsegin
sundmót í Reykjavík
2012
Árlegt sundíþróttamót IGLA
verður haldið í Reykjavík árið
2012 en það var ákveðið á
ársfundi IGLA í lok júlí.
Búist er við allt að 1000
erlendum keppendum ásamt
fylgdarfólki og mun verða keppt
í garpasundi, víðavatnssundi,
sundknattleik, dýfingum og
samhæfðri sundfimi.
Mótið, sem stendur í viku, verður
haldið í lok maí og er stærsta
sundmót sem haldið hefur verið
á Íslandi til þessa. Íþróttafélagið
Styrmir mun sjá um að halda
mótið með dyggri aðstoð frá
Sundsambandi Íslands og
Íþróttasambandi Íslands.
Mótið mun koma Íslandi og
Styrmi rækilega á kortið og
draga fjölda erlendra sundkappa
og aðra ferðamenn til landsins.
Gríðarmikil vinna er fram undan
við undirbúning og framkvæmd
mótsins en sundhreyfingin á
Íslandi hefur gott orð á sér og
góða reynslu af framkvæmd
sundmóta sem mun nýtast vel
fyrir þessa leika.
Reykjavík mun svo sannarlega
verða hýr á brá sumarið 2012
þótt vert sé að taka fram að ekki
er nauðsynlegt að vera hinsegin
til að taka þátt í keppninni.
Það er ekki nóg
að skófla öllum
upp í flugvél og til
Íslands, það verður
að vera eitthvað
fyrir þá að gera
hérna.
3
BLEIKAR KRÓNUR
ÍÞRÓTTIR
>>> Ritgerð Ómars má lesa hér