Alþýðublaðið - 24.01.1998, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 24.01.1998, Qupperneq 7
Janúar1998 7 I AýLÁAG NýruM kRAÍTA NýRRAR kyi\slóðAR TREySTUIVI LífssýlN jAflNAÖARIVlAfMfSIA FjÖlMENfNUM í pRÓfkjÖR REykjAVlkuRlÍSTANS Ágætu jafnaéarmenn ! A síðustu misserum tiefur AI|pýáuflokl<urinn rutt brautina í sameiningarferli jafnaéarmanna. Sameining jafnaðarmanna f einum stjórnmálasamtökum er nú í augsýn. Alþýðuflokkurinn á hrós skiliá fyrir opna starfshætti og víðtækan skilning á því að jafnaðarmenn er að finna í fleiri flokkum og utan flokka. Aljaýðuflokksmenn hafa með þessu sýnt að þeir eru menn sameiningar og sátta í hinni miklu hreyfingu jafnaðarstefnunnar. Þessi skilningur leiddi til þess að ég sem er utan flokka varð við áskorunum skoðanasystkina minna í Alþýðuflokknum um að gefa kost á mér í prófkjöri Reykjavíkuriistáns 31. janúar næstkomandi, Reykjavíkurlistinn er samtok jafnaðarmanna, samvinnumanna og félagshyggjufólks sem vill bjóða borgarbúum raunverulegan pólistískan valkost við |aað einveldi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið fyrir í borginni. Breytingarnar á þvt kjörtímabili sem er að líða færa okkur heim sanninn um að samstarfið er að skila árangri. Og við getum gert meira og við getum gert betur. Um leið og ég 'færi skoðanasystkinum mínum um lífssýn jafnaðarmanna í Alþýðuflokknum þakkir fyrir jákvætt viðmót í minn garð, hvet ég alla til að taka þátt í komandi prófkjöri. Þar gefst gullið tækifæri til að mynda lifandi bakland fyrir áframhaldandi starf Reykjavíkurlistans. Við þurfum að nýta þetta tækifæri og byggja upp öfluga og íýðræðislega fjöldahreyfingu jafnaðarmanna og félagshyggjufólks. Hrannar Björn Arnarsson. HRANNAR BJÖRN I BORGARSTJORN ! Heimili: Grundarstígur 5 B Sími: 551 8871 Netfang: hrannarb@centrum.is Heimasíða: http://www.centrum.is/hrannarb Frá félagsstarfinu í Hafnafirði

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.